Böðvarsdalur árið 2014. Eyðibýli á Íslandi (2014, 1. nóvember). Sótt 1. apríl 2023 af https://www.facebook.com/Eydibyli.
Böðvarsdalur árið 2014. Eyðibýli á Íslandi (2014, 1. nóvember). Sótt 1. apríl 2023 af https://www.facebook.com/Eydibyli.

Böðvarsdalur, Vopnafirði

Heiti: Böðvarsdalur
Byggingarár: 1903-1906
Upphafleg notkun: Verbúð
Fyrsti eigandi: Bóndinn í Fagradal
Aðrir eigendur:
1910: Bóndi í Böðvarsdal
Upphafleg staðsetning:

Bjarnarey, Héraðsflóa

Flutt:

1910 í Böðvarsdal í Vopnafirði

Hvernig flutt: Tekið niður og flutt á róðrarbát

Saga:

Skaginn sem skilur að Héraðsflóa og Vopnafjörð ber ekkert heildarheiti, en í seinni tíð hefur hann verið kallaður Kollumúli, en áður var hann nefndur Múli eða Ketilsstaðamúli Héraðsmegin en Kolmúli í Vopnafirði. Um 1 km austur af Standandanesi, sem er austast á skaganum, er Bjarnarey, 11 ha að flatarmáli, vogskorin og algróin ofan fjöru. Útræði var frá Bjarnarey öldum saman, sauðfé var látið ganga sjálfala og gjöfult æðarvarp. Föst búseta var þar með mislöngum hléum, en síðustu ábúendur voru þar 1884-1890.1Hjörleifur Guttormsson (2008). Úthérað ásamt Borgarfirði eystra, Víkum og Loðmundarfirði, bls. 286 og 298. Reykjavík: Ferðafélag Íslands; Guðný Zoëga (2007, desember). Minjar í landi Ketilsstaða í Hlíð, Fagradals í Vopnafirði og Bjarnarey. Fornleifaskráning, bls. 5. Byggðasafn Skagfirðinga – Rannsóknarskýrslur. Skýrsla nr. 2007/70.

Þegar fornleifaskráning var gerð í eyjunni árið 2007 sáust minjar þeirrar starfsemi sem þar var, en skráningarskýrslan tilgreinir ekki þær minjar sem vísa án vafa til þess húss sem hér er fjallað um.2Guðný Zoëga (2007, desember). Því er hvorki vitað hver byggði verbúðina né hvenær það var gert, en í I. bindi ritraðarinnar um sveitir og jarðir í Múlaþingi segir að árið 1910 hafi bóndinn í Böðvarsdal keypt „timburhús (verbúð) úti í Bjarnarey, rifið og flutt í B[öðvarsdal] á róðrarbát og byggt þar upp. Sneri timburvegg sv. [suðvestur] að hlaði. Torfveggir á 3 vegu upp að bitum. Stærð (F ’18) [fasteignamat 1918] 16×7 álnir. Niðri eldhús, stofa o.f., uppi tvískipt. Járnþak.“3Sveitir og jarðir í Múlaþingi. I. bindi. Strönd, Vopnafjörður, Jökulsárhlíð, Jökuldalur, Hróarstunga, Fell (1974), bls. 183-184. [Egilsstöðum:] Búnaðar­samband Austur­lands. Þegar þessi húsaflutningur átti sér stað var tvíbýlt í Böðvarsdal, þar bjuggu þeir Runólfur Hannesson (1867-1936) og Kristbjörg Pétursdóttir (1871-1939) og Guðmundur Magnússon (1873-1930) og Elín Stefánsdóttir (1876-1938) ásamt samtals 11 börnum.4Manntal 1910, Vopnafjarðarsókn, Norður-Múlasýslu. Sótt 10. apríl 2023 af https://manntal.is/. Ekki er vitað hvor bændanna flutti húsið, en væntanlega hefur ekki veitt af húsakostinum fyrir allt þetta fólk.

Bærinn Böðvarsdalur er nyrst í samnefndum dal sem liggur vestan við Hellisheiði eystri. Frá bænum er örstutt til sjávar. Húsið úr Bjarnarey var notað til ársins 1949, en þá var byggt nýtt íbúðarhús í Böðvarsdal. Það hús brann árið 1997 og fór þá jörðin í eyði.5Arnar Logi Björnsson o.fl. (2014). Eyðibýli á Íslandi. Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Suður-Múlasýslu og Norður-Múlasýslu sumarið 2014, bls. 29. [Útg.staðar ekki getið:] Eyðibýli – áhugamannafélag.

Húsinu var þannig lýst árið 2014:

Framhlið hússins sem snýr suðurvestur að hlaði er úr timbri. Hinar hliðar hússins voru torfveggir. Húsið er tvílyft með mænisþaki sem er að hluta hrunið inn í bygginguna. Líklegt er að framhliðin fari sömu leið með tímanum, en hún hallar verulega inn í húsið til norðausturs. Burðarvirki er illa farið og skakkt. Timburgrindin er með liggjandi timburklæðningu, tjörupappa og bárujárni sem fokið er af að miklu leyti. Einangrað hefur verið með hálmi. Innra skipulag hússins er að mestu horfið.6Arnar Logi Björnsson o.fl. (2014), bls. 29.

Sennilega hefur húsinu verið breytt talsvert mikið og það stækkað þegar það var reist í Böðvarsdal, því ósennilegt er að verbúð í Bjarnarey hafi verið eins veglegt og hús þetta hefur ugglaust verið á upphafsárum sínum í Böðvarsdal.

Leitarorð: Vopnafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. apríl, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Hjörleifur Guttormsson (2008). Úthérað ásamt Borgarfirði eystra, Víkum og Loðmundarfirði, bls. 286 og 298. Reykjavík: Ferðafélag Íslands; Guðný Zoëga (2007, desember). Minjar í landi Ketilsstaða í Hlíð, Fagradals í Vopnafirði og Bjarnarey. Fornleifaskráning, bls. 5. Byggðasafn Skagfirðinga – Rannsóknarskýrslur. Skýrsla nr. 2007/70.
  • 2
    Guðný Zoëga (2007, desember).
  • 3
    Sveitir og jarðir í Múlaþingi. I. bindi. Strönd, Vopnafjörður, Jökulsárhlíð, Jökuldalur, Hróarstunga, Fell (1974), bls. 183-184. [Egilsstöðum:] Búnaðar­samband Austur­lands.
  • 4
    Manntal 1910, Vopnafjarðarsókn, Norður-Múlasýslu. Sótt 10. apríl 2023 af https://manntal.is/.
  • 5
    Arnar Logi Björnsson o.fl. (2014). Eyðibýli á Íslandi. Rannsókn á eyðibýlum og yfirgefnum húsum í Suður-Múlasýslu og Norður-Múlasýslu sumarið 2014, bls. 29. [Útg.staðar ekki getið:] Eyðibýli – áhugamannafélag.
  • 6
    Arnar Logi Björnsson o.fl. (2014), bls. 29.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. apríl, 2026