Blöndalshús, Húsavík
Blöndalshús árið 1951. Ljósm.: Sigurður Pétur Björnsson. Húsavík: Fyrr og nú. Sótt 4. apríl 2025 af https://www.facebook.com/groups/1980279532198180/posts/2962051007354356/.
Blöndalshús dregið af grunni sínum. Ljósm.: Björn Sigurðsson. Húsavík: fyrr og nú. Sótt 4. apríl 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10203681356271570&set=pcb.2421048291454633.
Saga:
Á norðurhluta lóðar sem nú er Garðarsbraut 7 á Húsavík var árið 1896 reist lítið barnaskólahús úr timbri, sem síðar var nefnt Blöndalshús í daglegu tali.
Í 1. bindi Sögu Húsavíkur segir m.a. um húsið:
Það lét ekki mikið yfir sér, nema að því leyti, að það stóð feti framar við götuna en hin húsin, svo til baga var orðið. Þó á þetta hús merkilegri og fjölbreyttari sögu en flest eða jafnvel öll önnur gömul hús í bænum.
Húsið var byggt 1896 sem barnaskólahús, af Jóni Pálssyni [1832-1925] í Tröllakoti. Var kennslustofa eða kennslustofur niðri en lítil íbúð uppi á loftinu. Þarna starfaði barnaskólinn þar til hann flutti í nýtt skólahús árið 1908.
Árið 1905 var Sýslubókasafn S.-Þingeyinga flutt til Húsavíkur og fékk það húsnæði þá þegar í þessu húsi á neðri hæðinni. Var það geymt fyrst í lokuðum skápum, en símstöðin var opnuð á sömu hæð, var innréttað sérstakt herbergi fyrir það í suðausturhorninu. Þar var það til ársins 1926, en varð þá að víkja úr þessu húsnæði.
Hinn 29. september 1908 var opnuð símstöð í húsinu, og var síminn þar til vorsins 1921 … Á sama tíma bjó stöðvarstjórinn Páll Sigurðsson [1863-1936] uppi á loftinu en hafði þó eitt herbergi á neðri hæðinni. …
Þegar símstöðin var flutt burtu, flutti Ásgeir Blöndal [1858-1926] fyrrverandi héraðslæknir í húsið, og mun hann hafa keypt það þá þegar. Átti hann það til dauðadags og síðan ekkja hans Kirstín Blöndal [1874-1936]. Á þessum árum var farið að nefna húsið Blöndalshús.
Árið 1939 kaupir Pöntunarfélag verkamanna húsið, en félagið var þá nýlega stofnað, og hefur þar vörusölu, meðan það er að byggja nýtt sunnar á lóðinni, það sem nú er Garðarsbraut 7.
Árið 1941 selur Pöntunarfélagið Friðþjófi Óskarssyni [1916-1967] rakara húsið og flytur hann þangað með fjölskyldu sína og setur þar upp rakarastofu.
Haustið 1943 flytur Friðþjófur Óskarsson úr bænum, en Helgi Hálfdanarson [1911-2009] lyfsali, sem þá er að flytjast hingað, kaupir af honum. Kemur Helgi lyfjabúðinni fyrir í norðvesturhorninu og er þá búið að setja þar inngöngudyr, svo að hægt er að ganga þar inn frá götunni, þessar dyr voru teknar af síðar. Helgi bjó einnig í húsinu.
Á árinu 1948 flytur Helgi Hálfdanarson í nýtt hús, sem hann hefir látið byggja við Garðarsbraut 13, og kaupir þá Pöntunarfélagið af honum aftur.
Að lokum kaupir Kaupfélag Þingeyinga þetta ágæta hús árið 1959.
Auk þeirra sem hér hafa verið taldir, leigðu fjölmargar fjölskyldur og einstaklingar þarna, einkum á síðari árum, og voru oftast tveir og jafnvel þrír leigjendur í einu, þó að ekki sé húsnæðið stórt.
Á tímabili mátti lesa nokkra drætti úr sögu hússins á þeirri hliðinni sem að götunni snýr, þvi þar grisjaði gegnum málningu í „Apotek“ með stóru letri, og á öðrum stað í „Rakari“, auk þess sem hliðin bar ör eftir sár undan símastrengjum.1Karl Kristjánsson (1981). Saga Húsavíkur. 1. bindi, bls. 125-126. Húsavíkur: Húsavíkurkaupstaður.
Örlög þessa merkilega húss urðu hálf ömurleg og einsdæmi meðal þeirra húsa sem fjallað er um á þessum vef. Í lok árs 1966 var húsið flutt í heilu lagi upp á Skálamel fyrir ofan Húsavík, þar sem það var haft í bálköst á áramótabrennu íþróttafélagsins Völsungs 2. janúar 1967.2Karl Kristjánsson (1981), bls. 126.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. apríl, 2025
Heimildaskrá
- 1Karl Kristjánsson (1981). Saga Húsavíkur. 1. bindi, bls. 125-126. Húsavíkur: Húsavíkurkaupstaður.
- 2Karl Kristjánsson (1981), bls. 126.
Deila færslu
Síðast uppfært 4. apríl, 2025

