Fagridalur í Kringlumýri. um 1944. Hluti myndar hér að neðan.
Fagridalur í Kringlumýri. um 1944. Hluti myndar hér að neðan.

Bleikargróf 15, Reykjavík

Heiti: Fagridalur
Byggingarár: 1929
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Þórður Jónsson og Gróa Steinunn Sveinbjörnsdóttir
Aðrir eigendur:
1961: Sæmundur Bjarnason og Kristín Grímsdóttir ?
1966: Eggert N. Bjarnason og Regína Einarsdóttir
Kringlumýri 1

Kringlumýrarvegur um 1944. Fagridalur er lengst til hægri á myndinni. Ljósm.: Loftur Guðmundsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. LOG 012 4-3. Sótt 24. október 2026 af Myndasafn.

Bleikargróf 15 1

Bleikargróf 15, Reykjavík, í júní 2025. Sótt 24. október 2026 af ja.is.

Saga:

Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Hluti úr mynd LOG 0124-3, ljósmyndari Loftur Guðmundssson. Sótt 24. október 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/798342/.

Árið 1929 byggðu hjónin Þórður Jónsson (1889-1967) og Gróa Steinunn Sveinbjörnsdóttir (1880-1961) lítið timburhús í svokallaðri Kringlumýri í Reykjavík, skammt frá þar sem göturnar Skipholt og Háteigsvegur mætast.  Svæðið frá Rauðarárholti austur undir Grensásveg nefndist Kringlumýri. Á þessu svæði var beitiland fyrir búpening bæjarbúa og þarna var mjótekja fram undir 1920. Eftir það risu þarna nokkur grasbýli, sem kallaðir voru Kringlumýrarblettir. Þar var tækifæri til að vera með garðrækt og skepnuhald, því stærð byggingarlóða var oftast um einn fjórði úr hektara. Yfirleitt var það húsmóðurin og börnin sem sáu um búskapinn en húsbóndinn vann utan heimilis. Á þessum slóðum komu síðar göturnar Kringlumýrarbraut, Skipholt, Lágmúli, Háaleitisbraut o.fl.

Hús sitt nefndu þau Þórður og Gróa Fagradal. Í upphafi var það skráð sem Kringlumýrarblettur eða Kringlumýrarvegur 10, síðar sem Skipholt 70.1Freyja Jónsdóttir (1998, 28. mars). Húsin í bænum: Kringlumýrarblettir. Dagur – Íslendingaþættir, 81. og 82. árg., 53. tbl., blað 3, bls. II; Anna Lísa Guðmundsdóttir (2022, 27. nóvember). Blesugróf. Sótt 24. október 2026 af Blesugróf | Facebook – https://www.facebook.com/groups/161094773266/search/?q=Fagridalur.

Þegar húsið var brunavirt í nóvember 1929 kemur m.a. fram að það sé einlyft með risi og kjallara, byggt úr bindingi og klætt utan með borðum, pappa, listum og járni á veggjum og þaki. Á aðalhæðinni voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús, búr og anddyri. Veggir voru þiljaðir með panel, lagðir striga og pappír, ýmist veggfóðraðir eða málaðir. Risið var notað sem þurrkloft. Bæði inn- og útveggir kjallara voru steinsteyptir ásamt gólfi. Þar var þvottaherbergi og tvö geymsluherbergi. Steinsteyputröppur voru við vesturgafl hússins. Undir þeim var gengið inn í kjallarann. Í húsinu voru tveir ofnar og eldavél. Grunnflötur hússins var 43,5 fermetrar, hæð hússins með risi 3 m og hæð kjallara 2,1 m.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-01-1928 til 21-06.1930. Aðf.nr. 744. Brunav.nr.: 2619.

Þórður stundaði almenna verkamannavinnu í Reykjavík og var einnig til sjós og líklega hafa þau hjón verið með kindur. Þau hjón virðast ekki hafa átt börn. Í manntali 1961 eru þau síðast skráð til heimilis í Fagradal.3Manntöl Reykjavík. Sótt 24. október 2026 af Manntöl Reykjavíkur | Skjöl Reykjavíkur; Freyja Jónsdóttir (1998, 28. mars); Íslendingabók. Sótt 24. október 2026 af Íslendingabók – Innskrá.

Íbúa í húsinu er síðast getið í manntali Reykjavíkur árið 1963. Þá búa þar hjónin Sæmundur Bjarnason (1906-1991) og Kristín Grímsdóttir (1911-1999) ásamt stálpuðum syni sínum.4Manntal í Reykjavík 1963. 1. hluti: Aðalstræti – Langholtsvegur.

Þegar farið var að skipuleggja svæðið undir íbúðabyggð og húsnæði undir ýmsa þjónustu upp úr 1960 hurfu mörg húsanna af sjónarsviðinu, en einhver þeirra voru flutt, þ. á m. Fagridalur sem fluttur var inn í Blesugróf þar sem það stendur enn.5Freyja Jónsdóttir (1998, 28. mars);

Þann 1. september 1966 var gerður leigusamningur við Eggert Norðdahl Bjarnason (1937-2026) um lóð nr. 15 við Bleikargróf í Reykjavík og honum veitt heimild til að endurbyggja íbúðarhús á lóðinni.6Fasteignaskrá. Lóðarleigusamningur dags. 1. september 1966.

Sama ár voru hjónin Eggert N. Bjarnason og Regína Einarsdóttir (1940-1980) skráð þar til heimilis ásamt fimm ungum börnum sínum.7Manntal í Reykjavík 1966. 1. hluti: Aðalstræti – Langholtsvegur.

Húsið hefur verið stækkað mikið og því breytt, þannig að erfitt er að sjá líkindi með því og litla timburhúsinu sem var flutt.

 

Leitarorð: Blesugróf

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. október, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. október, 2026