Lindargata 37 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0836.jpg. Sótt 13. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.
Lindargata 37 árið 1971. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0836.jpg. Sótt 13. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/.

Bjargarstígur 12, Reykjavík

Byggingarár: 1903
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Stefánsson
Aðrir eigendur:
1983: Samtök um kvennaathvarf
Upphafleg staðsetning: Lindargata 37 (áður nr. 15), Reykjavík
Flutt: 1983 á Bjargarstíg 12, Reykjavík
OLYMPUS DIGITAL CAMERA

Húsið á Fríkirkjuveginum á leið frá Lindargötu að Bjargarstíg. Ekki verður betur séð en lyftari haldi undir hornið á bíslaginu. Ljósm.: Ólafur Bjarnason. Sótt 28. maí 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=24624204427168072&set=gm.3197893283682094&idorvanity=149822718489181.

Bjargarstígur 12 2

Saga:

Árið 1903 lét Guðmundur Stefánsson (1863-1947) skútuskipstjóri byggja fyrir sig timburhús á lóð sinni við Lindargötu. Áður hafði Guðmundur búið ásamt fjölskyldu sinni í litlum steinbæ við Lindargötu, Gvendarbæ.1Sigríður Guðmundsdóttir – Minningarorð (1981, 3. mars). Morgunblaðið, 68. árg., 51. tbl., bls. 37.

Fyrst var nýja húsið númer 15 við Lindargötu, en fékk síðar númerið 37. Í október 1903 var húsið metið til brunabóta. Í virðingargjörðinni segir m.a.:

Hús þetta er byggt af bindingi klætt utan með 5/4″ borðum plægðum, pappa og járni þar yfir og með járnþaki á plægðri 1″ borðasúð með pappa á milli. Allir útveggir eru stoppaðir í binding með marhálmi. Niðri í húsi þessu eru 3 íbúðarherbergi, eldhús búr og 1 fastur skápur sem allt er þiljað og 2 herbergin með pappa á veggjum en striga og pappír á loptum, allt málað. Þar eru 2 ofnar og 1 eldavjel. Uppi eru 4 íbúðarherbergi, gangur og 1 fastur skápur sem allt er þiljað og málað. Þar eru 3 ofnar. Kjallari er undir öllu húsinu 2 álnir á hæð. Í honum er ekkert gert. …
Við austurgaflinn er fordyri byggt af sama efni sem húsið sjálft, járnvarið utan og þiljað og málað innan. …
Við norðurhliðina á þessu húsi er inn og uppgönguskúr með kjallara undir byggður eins og húsið, járnvarinn utan en þiljaður og málaður innan. …
Við vesturgaflinn á íbúðarhúsinu er geymsluskúr, byggður  af binding, klæddur utan með járni á langböndum og með járnþaki á langböndum, hólfað í tvennt.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1900 til 1905. Aðfnr. 735. Sótt 13. október 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf

Þegar Guðmundur hætti sjómennsku árið 1910 gerðist hann næturvörður í Reykjavík og síðar lögregluþjónn. Þegar manntal var tekið árið 1920 bjó Guðmundur í húsi sínu ásamt eiginkonu sinni, Vigdísi Vigfúsdóttur (1867-1946) og fjórum börnum þeirra. Einnig bjó þar önnur fjölskylda og tvær lausakonur, alls 12 manns. Árið 1932 fluttu Guðmundur og Vigdís með börnum sínum og tengdabörnum að Ránargötu 22, sem þau höfðu byggt í sameiningu.3Sigríður Guðmundsdóttir – Minningarorð (1981, 3. mars).

Þegar til stóð að byggja fjölbýlishús þar sem húsið stóð við Lindargötuna var ákveðið að flytja húsið að Bjargarstíg 12, þar sem það stendur enn. Húsið var flutt árið 1983 og var þá í eigu Samtaka um kvennaathvarf.4Húsaskrá Borgarsögusafns. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. maí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 28. maí, 2025