Bjarg, Vesturvegur 28, Vestmannaeyjum
Vesturvegur 28, Vestmannaeyjum, árið 2019. Ljósm.: Höfundur.
Vesturvegur 28, Vestmannaeyjum, í júlí 2023. Unnið að breytingum á húsinu. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Húsið Bjarg var reist við Miðstræti 13 í Vestmannaeyjum árið 1907. Ekki er vitað hver var fyrsti eigandi hússins, en verið getur að það hafi verið hjónin Ólafur Diðrik Ólafsson (1865-1913) sjómaður og María Guðrún Jakobsdóttir (1870-1951), því þau voru búsett þar þegar manntal var tekið árið 1910. Þau eignuðust fimm börn, en tvö þeirra dóu ung. Þegar Ólafur drukknaði árið 1913 stóð ekkjan uppi með þrjár ungar dætur.
Árið 1952 var Bjarg flutt að Vesturvegi 28 í Vestmannaeyjum, þar sem það stendur enn, mikið breytt.1Heimaslóð (2007, 21. júní). Bjarg; Viglundur Þór Þorsteinsson (2015, 15. ágúst). Heimaslóð. María Guðrún Jakobsdóttir; Víglundur Þór Þorsteinsson (2019, 17. maí). Heimaslóð. Ólafur Diðrik Ólafsson.
Í umsögn Minjastofnunar Íslands frá árinu 2021 um fyrirhugaðar breytingar á húsinu kemur eftirfarandi fram:
Bjarg stóð upphaflega við Miðstræti 13 en var flutt á núverandi stað árið 1952. Af myndum að dæma er húsið mjög mikið breytt og lítið sem ekkert í núverandi útliti og innri gerð sem vitnar um aldur þess og uppruna. Í ljósi þess er varðveislugildi hússins metið mjög lágt. Því er ekki gerð krafa um að breytingar á húsinu taki mið af upphaflegri stílgerð þess.2Fundargerð umhverfis- og skipulagsráðs Vestmannaeyja 19. apríl 2021. Umsögn Minjastofnunar Íslands um Vesturveg 28.
Leitarorð: Vestmannaeyjar
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 12. júlí, 2024
Heimildaskrá
- 1
- 2
Deila færslu
Síðast uppfært 12. júlí, 2024

