Bergstaðastræti 50B árið 1929. Stóri glugginn vinstra megin er á viðbyggingu við upprunalega húsið. Bakhús við Bergstaðastræti: Aldargamalt og aldrei fallegra (1984, 12.-18. júlí). Vikan, 28. tbl., 46. árg., bls. 3.
Bergstaðastræti 50B árið 1929. Stóri glugginn vinstra megin er á viðbyggingu við upprunalega húsið. Bakhús við Bergstaðastræti: Aldargamalt og aldrei fallegra (1984, 12.-18. júlí). Vikan, 28. tbl., 46. árg., bls. 3.

Bergstaðastræti 50 B, Reykjavík

Byggingarár: 1887
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Steindór Jónsson snikkari
Aðrir eigendur:
1909: Trésmiðjan Völundur
1927: Guðmundur S. Guðmundsson
Upphafleg staðsetning: Klapparstígur, Reykjavík
Flutt: 1927 að Bergstaðastræti 50 B, Reykjavík
Hvernig flutt: Dregið af götuþjappara

Saga:

Saga þessa húss hófst árið 1884 við Klapparstíg í Reykjavík þegar Steindóri Jónssyni snikkara var veitt leyfi til að byggja þar timburhús. Hann lauk þó ekki smíðinni fyrr en árið 1887. Þá var húsið 9 x 8 ½ ál. að stærð úr bindingi sem múrað var upp í. Á hæðinni voru 3 herbergi auk eldhúss, sem öll voru þiljuð með borðum. Á loftinu voru 2 herbergi þiljuð með borðum og var lítill ofn í öðru herberginu en eldavél í hinu.

Árið 1909 seldi Steindór snikkari trésmiðjunni Völundi hús sitt, en athafnasvæði trésmiðjunnar var skammt frá og árið 1927 keypti Guðmundur S. Guðmundsson verkstjóri í Héðni húsið til að flytja á Bergstaðastíg, sem síðar nefndist Bergstaðastræti og fékk húsið númerið 50B, en það stendur á baklóð við götuna. Flutningurinn þótti mikið ævintýri á sínum tíma sem margir fylgdust með og tók heila þrjá daga.1Bakhús við Bergstaðastræti: Aldargamalt og aldrei fallegra (1984, 12.-18. júlí). Vikan, 28. tbl., 46. árg., bls. 3-6. Í þessari klausu í Alþýðublaðinu 8. júní 1927 kemur fram að húsið hafi verið dregið af götuþjappara2Hús flutt (1927, 8. júní). Alþýðublaðið, bls. 4.:

Guðmundur byggði við húsið á nýja staðnum og þegar húsið var virt árið 1942 var húsið á steyptum kjallara með 2 herbergjum, eldhúsi, geymslum, vatnssalerni og þvottaherbergi. Á hæðinni voru 4 íbúðarherbergi og búið að setja þar baðherbergi, en á loftinu voru 2 íbúðarherbergi og þurrkloft. Steinsteyptur inn­göngu­­­­skúr var þá við húsið.3Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Húsaskrá. Bergstaðastræti 50 B.

Bergstaðastræti 50 B, 2009. Ljósm.: Höfundur.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. desember, 2023