Bergstaðastræti 36, Reykjavík

Byggingarár: 1904
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Helgi Helgason, Einar Sveinsson og Björn Helgason
Aðrir eigendur:
?: Jón J. Víðis
1979: Reykjavíkurborg
1979: Hans Kristján Árnason og Anna S. Pálsdóttir
Upphafleg staðsetning: : Hverfisgata 6, varð síðar Hverfisgata 40, Reykjavík
Flutt: 1979 að Bergstaðastræti 36, Reykjavík
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Bergstaðastræti 36 2

Hverfisgata 40 árið 1964. Ljósm.: Skarphéðinn Haraldsson. Ljósmyndasafn Reykjavíkur. Mynd nr. SKH ÁBS 0318.jpg. Sótt 5. október 2023 af https://ljosmyndasafn.reykjavik.is/

Bergstaðastræti 36 4

Húsið auglýst til sölu 8. júní 1979. Tíminn, 63. árg., 126. tbl., bls. 18.

Bergstaðastræti 36 3

Húsið á horni Hverfisgötu og Lækjargötu í september 1979. Hús flutt um set (1979, 20. september). Morgunblaðið, 66. árg., 205.tbl., bls. 27

Bergstaðastræti 36 5

Bergstaðastræti 36 árið 2013. Ljósm.: Höfundur.

Saga:

Í lok maí 1904 var virt til brunatrygginga timburhús sem trésmiðirnir Helgi Helgason, Einar Sveinsson og Björn Helgason höfðu byggt á lóð sinni við Hverfisgötu í Reykjavík. Í fyrstu var lóðin nr. 6 við Hverfisgötu en fékk síðar númerið 40. Í brunavirðingunni segir m.a.:

Hús þetta er byggt af bindingi, klætt utan með gólfborðum pappa og járn þar yfir á þaki og veggjum. … Niðri eru 5 íbúðarherbergi, eldhús, búr, gangur og 1 fastur skápur sem allt er þiljað og herbergin með striga og pappír á veggjum og loptum, allt málað. Þar eru 3 ofnar og 1 eldavjel. Uppi eru 6 íbúðarherbergi, eldhús og 4 fastir skápar sem allt er þiljað og herbergin með striga og pappír á veggjum, súð og loptum, allt málað. Þar eru 4 ofnar og 1 eldavjel. Á hanabjálka er þurklopt. Kjallari er undir öllu hús … Í honum eru 2 herbergi þiljuð og máluð … Ennfremur eru þar 3 geymsluklefar, 2 gangar og þvottaklefi með vatnspotti og eldstæði … Í húsinu eru 2 reykháfar. … Við suðurhliðina er inn og uppgönguskúr byggður eins og húsið. Í honum eru 2 gangar og 3 fastir skápar. Undir honum er kjallari með steinsteyptu gólfi og 2 salernum.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar 1900 til 1905. Aðfnr. 735. Sótt 5. október 2023 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf

Árið 1979 hafði Reykjavíkurborg eignast húsið því það þurfti að fjarlægja til að greiða fyrir umferð um Hverfis­götu, því húsið stóð of nærri götunni. Borgarsjóður auglýsti eftir tilboðum í húsið í júní 1979 með ákveðnum skilyrðum. Það voru hjónin Hans Kristján Árnason og Anna S. Pálsdóttir, síðar Dómkirkjuprestur, sem keyptu húsið og létu flytja það á nýjan grunn sem gerður hafði verið á lóðinni nr. 36 við Bergstaðastræti.2Hús flutt um set (1979, 20. september). Morgunblaðið, 66. árg., 205.tbl., bls. 27; Hús til sölu (1979, 8. júní). Tíminn, 63. árg., 126. tbl., bls. 18.

Eiríkur Gunnarsson framkvæmdastjóri flutningafyrirtækisins Gunnar Guðmundsson hf. lýsti flutningnum á þessa leið:

Ég flutti húsið á sunnudagsmorgni og bíllinn var umkringdur af fólki. Eins og flestir vita eru götumar í Þingholtinu þröngar og til að bæta gráu ofan á svart var leiðinni sem við áttum að fara breytt á slðustu stundu og við lentum í alls kyns hremmingum vegna þess. Það voru t.d. nokkrir ljósastaurar sem við sluppum ekki á milli og hús sem voru fyrir. Við fengum þó óvænta hjálp því einn úr hópnum sem var að fylgjast með klifraði upp í staurana og batt í þá og áhorfendur toguðu í bandið þannig að við sluppum. Það var aftur á móti meira mál með húsin. Við þurftum að tjakka húsið á vagninum upp öðrum megin og þannig slapp það. Þakskeggið fór undir þakskeggið á húsinu sem var öðrum megin en yfir það hinum megin. Þetta hafðist að lokum og við fengum gott klapp fyrir.3Þyngsti hluturinn 100 tonn – þetta hafðist að lokum og við fengum gott klapp fyrir (2000, 4. október). Dagblaðið Vísir – DV, 90. og 26. árg., 228. tbl., bls. 16-17.

Í febrúar 2022 fjallaði Guðjón Friðriksson sagnfræðingur um húsið við Bergstaðastræti 36 á „Fésbókarsíðu“ síðu sinni. Þar segir hann m.a.:

Þetta stílfagra sveitserhús með slútandi þakskeggi og útskorum listum yfir krossgluggum, hálfmánalöguðum gluggum í risi ásamt miðjulista og stórum stofuglugga móti suðri hefur ekki alltaf staðið hér. Það var reist árið 1903 við Hverfisgötu 6 sem síðar varð Hverfisgata 40. Tveir trésmiðir, þeir Einar Sveinsson og Helgi Helga­son reistu það í sameiningu og bjuggu báðir í húsinu eða þar til Einar seldi Helga sinn hluta árið 1913. Síðar komst húsið í eigu Jóns J. Víðis landmælinga­manns hjá Vegagerðinni og mikilvirks húsateiknara. Bjó hann í því fyrsta kastið en leigði það síðan út. Þess nutu m.a. ættingjar hans, þeirra á meðal systurdóttir hans, Þóra Þorvaldsdóttir sem gift var Má Nikulássyni bílstjóra. Meðal barna þeirra sem ólust upp í húsinu var Nikulás Úlfar Másson arkitekt. En þetta fallega hús skagaði út í Hverfisgötu og var því ákveðið að fjarlægja það árið 1979.4Guðjón Friðriksson (2022, 16. febrúar). Sótt 6. október 2023 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10228503183634731&set=a.1099305772984.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. apríl, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. apríl, 2024