Beggubúð, Kirkjuvegur 1, Byggðasafni Hafnarfjarðar
Beggubúð árið 1974. Mynd í eigu Stjána Venus. Sótt 5. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=131960860321899&set=gm.459247564169343&idorvanity=247258775368224.
Beggubúð á Byggðasafni Hafnarfjarðar, líklega árið 2022. Ljósm.: Guðjón Friðriksson. Sótt 5. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10228525601755170&set=a.1099305772984.
Saga:
Árið 1906 byggði Jón Steingrímsson (1842-1906) báta-, skipa- og húsamiður í Hafnarfirði hús fyrir sig og fjölskyldu sína við Strandgötu í Hafnarfirði, sem síðar fékk númerið 1 við götuna (og enn síðar númerið 5). Ekki átti Jón þó húsið lengi því hann lést síðla sama ár. Kona Jóns var Guðný Magnúsdóttir (1851-1927).
Egill Jacobsen (f. 1880) kaupmaður í Reykjavík eignaðist húsið árið 1908 og opnaði þar útibú frá stórverslun sinni í Reykjavík. Hann verslaði aðallega með vefnaðarvöru, leikföng, fatnað, saumavélar og fleira smálegt í þeim dúr. Verslunin var í tíð Egils oft nefnd Jacobsensbúð. Þegar Egill lést af heilblóðfalli sem orsakaðist af byltu sem hann varð fyrir við leikfimiiðkun árið 1926 tók kona hans, Soffía Helgadóttir (1889-1973) og sonur þeirra, Egill Jacobsen, við rekstri verslana Egils í Reykjavík og Hafnarfirði.1Byggðasafn Hafnarfjarðar (2015, 13. mars). Sótt 5. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo?fbid=1008020219231681&set=a.970402652993438; Carl Olsen (1926, 1. október). Knud Egill Jacobsen. Verslunartíðindi, 9. árg., 10. tbl., bls. 109-110; Haukur Óskarsson (1973, 8. maí). Soffía Jacobsen kaupkona – Minning. Morgunblaðið, 60. árg., 103. tbl., bls. 22; Manntal 1901. Sótt 5. júní 2024 af https://manntal.is/.
Um Soffíu var ritað í minningargrein:
Egill deyr af slysförum árið 1926. Soffía tók þá við rekstri verzlunarinmar. Komu fljótt í Ijós hinir milku hæfileikar, er hún var búin. Hún rak verzlunina og annaðist heimilið og uppeldi drengjanna af fádæma dugnaði. Þau hjónin höfðu búið sér fallegt heimili, sem bar vott um listrænan smekk. Soffía var fagurkeri í orðsins fyllstu merkinigu, og eignaðist margt fágætra málverka og listmuna.
Soffía lét stjómmál mikið til sín taka. Hún var í stjórn Hvatar í mörg ár, og vann þar mikið starf í þágu Sjálfstæðisflokksins. Hún var einn af stofnendum Kaupmannasamtakanna og sæmd gullmerki þeirra. Var henni sýndur ýmis annar virðingarvottur.2Haukur Óskarsson (1973, 8. maí). Soffía Jacobsen kaupkona – Minning. Morgunblaðið, 60. árg., 103. tbl., bls. 22.
Til er brunavirðing af húsinu frá árinu 1916. Þá var því lýst þannig:
Húsið er einlyft með risi 1m ósundurskift, klætt innan með panel og fóðrað að nokkru leiti, allt málað, eingöngu notað sem sölubúð. Allt raflýst. 5 gluggar á húsi. Við norðurhlið hússins er skúr 6,45 á lend, 2,80 á breidd, með vatnshallaþaki, honum er skift í skrifstofu og geymslu. 2 gluggar á skúr.3Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 64. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
Árið 1937 urðu eigendaskipti og tók þá við rekstrinum í þessu litla verslunarhúsi kona að nafni Bergþóra Nýborg. Eftir það festist nafnið Beggubúð við verslunina. Árið 1959 hafði Vigdís Madsen tekið við rekstrinum og rak hún og síðan dætur hennar Beggubúð allt til ársins 2000. Hafði þá vefnaðarvöruverslun verið rekin í húsinu í hartnær heila öld.4Guðjón Friðriksson (2022, 20. febrúar). Sótt 5. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10228525601755170&set=a.1099305772984.
Þegar Bergþóra (1898-1959) keypti verslunina árið 1937 hafði hún starfað frá unga aldri hjá Agli Jacobsen kaupmanni og veitt útibúi hans í Hafnarfirði forstöðu um áraraðir.5Matthías Á. Mathiesen (1960, 24. mars). Bergþóra Nýborg. Minningarorð. Morgunblaðið, 47. árg., 70. tbl., bls. 9. Þegar Vigdís Madsen (1903-1989) systir Bergþóru, keypti búðina árið 1959 var hún áfram rekin undir nafninu Verslun Bergþóru Nýborg. Þegar Vigdís hætti að versla tóku dætur hennar Karen og Guðrún við búðinni. Í grein Morgunblaðsins árið 1999 segir m.a.:
Húsinu má í raun líkja við vin í eyðimörk, en það stendur einsamalt á malbikuðu bílastæði líkt og það hafí neitað að víkja fyrir nýjum tímum. Og eftir áratugalöng kynni er vegfarendum í Hafnarfirði fullkunnugt um hvaða starfsemi fer fram innan dyra. Hvorki er þörf á skilti á framhliðinni né auglýsingum í fjölmiðlum. „Það var helst að við minntum á okkur fyrir jólin hér áður fyrr en annars höfum við afskaplega lítið auglýst,“ segir Karen og bætir því við að langt sé síðan útsala var haldin í búðinni. „Við setjum frekar einstaka vörutegundir á tilboð, ef vel liggur á okkur,“ segir hún hlæjandi.
Hún segir enga þörf á útsölum af tveimur ástæðum, viðskiptavinirnir séu sáttir við hagstætt verð búðarinnar og lagerinn fyllist aldrei af gömlum vamingi sem losna þurfí við. „Hér er nefnilega enginn lager,“ útskýrir Karen fyrir blaðamanni sem einmitt hafði haft það á tilfinningunni að eitthvað vantaði. Kaffibrúsar og kex að heíman.
„Við pöntum inn jafnóðum enda er eina afdrepið þessi litla skonsa hér,“ heldur Karen áfram og bendir á einstaklega lítið herbergi sem þær systur kalla réttilega kompuna. „Kompan okkar gegnir í senn hlutverki skrifstofu, kaffistofu og mátunarklefa,“ upplýsir hún og játar að aðstaðan veki undrun margra. En þótt í kompunni sé hvorki tölva, kaffivél né spegill sinnir hún að sögn fjölbreyttu hlutverki sínu með sóma.6Enginn lager í búðinni (1999, 3. september). Morgunblaðið, 86. árg., bls. b 7.

Beggubúð komið fyrir í Byggðasafni Hafnarfjarðar í janúar 2003. Ljósm.: Björn Pétursson. Heimild: Beggubúð í verslunarminjasafnið (2003, 7. janúar). Morgunblaðið, 91. árg. 5. tbl., bls. 22.
Árið 2001 var húsið flutt á geymslusvæði í Hafnarfirði og árið 2003 var það sett niður á safnasvæði Byggðasafns Hafnarfjarðar við Vesturgötu 6 og hefur húsnúmerið Kirkjuvegur 1. Þar sem opnuð var verslunarminjasýning árið 2008.7Byggðasafn Hafnarfjarðar. Beggubúð. Sótt 5. júní 2024 af https://byggdasafnid.is/syning/beggubud/.
Leitarorð: Hafnarfjörður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. júní, 2024
Heimildaskrá
- 1Byggðasafn Hafnarfjarðar (2015, 13. mars). Sótt 5. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo?fbid=1008020219231681&set=a.970402652993438; Carl Olsen (1926, 1. október). Knud Egill Jacobsen. Verslunartíðindi, 9. árg., 10. tbl., bls. 109-110; Haukur Óskarsson (1973, 8. maí). Soffía Jacobsen kaupkona – Minning. Morgunblaðið, 60. árg., 103. tbl., bls. 22; Manntal 1901. Sótt 5. júní 2024 af https://manntal.is/.
- 2Haukur Óskarsson (1973, 8. maí). Soffía Jacobsen kaupkona – Minning. Morgunblaðið, 60. árg., 103. tbl., bls. 22.
- 3Gláma – Kím (2021, 15. janúar). Vesturbær Hafnarfjarðar. Húsakönnun, bls. 64. Hafnarfirði: Hafnarfjörður. Umhverfis- og skipulagssvið.
- 4Guðjón Friðriksson (2022, 20. febrúar). Sótt 5. júní 2024 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10228525601755170&set=a.1099305772984.
- 5Matthías Á. Mathiesen (1960, 24. mars). Bergþóra Nýborg. Minningarorð. Morgunblaðið, 47. árg., 70. tbl., bls. 9.
- 6Enginn lager í búðinni (1999, 3. september). Morgunblaðið, 86. árg., bls. b 7.
- 7Byggðasafn Hafnarfjarðar. Beggubúð. Sótt 5. júní 2024 af https://byggdasafnid.is/syning/beggubud/.
Deila færslu
Síðast uppfært 5. júní, 2024

