Líkleg tóft þinghússins á Hanastöðum. Heimild: Lilja Laufey Davíðsdóttir og Sædís Gunnarsdóttir (2018). Glæsibær í Eyjafirði: Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 30. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. FS682-18021.
Líkleg tóft þinghússins á Hanastöðum. Heimild: Lilja Laufey Davíðsdóttir og Sædís Gunnarsdóttir (2018). Glæsibær í Eyjafirði: Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 30. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. FS682-18021.

Baldursheimur, Mánahlíð 3, Akureyri

Heiti: Þingheimur – Baldursheimur
Byggingarár: < 1900
Rifið: 2006
Upphafleg notkun: Þinghús
Fyrsti eigandi: Glæsibæjarhreppur
Aðrir eigendur:
1919: Baldvin Sigurðsson og Anna Soffía Jónsdóttir
Upphafleg staðsetning: Hanastaðir, Glæsibæjarhreppi, nú Hörgársveit
Fyrst flutt: 1910 að Sólborgarhóll, Kræklingahlíð, Hörgársveit
Flutt: 1919 að Mánahlíð 3, Glerárþorpi, Akureyri
Hvernig flutt: Dregið í heilu lagi á ís 1919

Saga:

„Strandlengjan frá Glerá að Hörgárósum og hlíðin þar upp frá milli fjalls og fjöru heitir Kræklingahlíð.“1Hörgársveit. Kræklingahlíð. Sótt 30. október 2024 af https://www.horgarsveit.is/is/stjornsysla/fjarmal-og-gjaldskrar/sveitarlysing/kraeklingahlid. Á Hanastöðum í Kræklingahlíð var þinghús Hlíðunga byggt skömmu fyrir aldamótin 1900 og nefnt Þingheimur. Ekki er vitað nákvæmlega hvar þinghúsið stóð, en í heimatúni Hanastaða er tóft, sem talið er líklegt að séu ummerki þinghússins.

Árið 1910 var þinghúsið flutt í land Sólborgarhóls, sem  segja má að sé fyrir miðri hlíðinni. Þar var húsið einnig nýtt sem skólahús. Árið 1919 var nýtt þinghús tekið í notkun og var þá gamla húsið dregið í heilu lagi á sleðum inn í Glerárþorp og reist þar sem nú er lóð númer 3 við Mánahlíð og nefnt Baldursheimur. Fyrstu húsráðendur í Baldursheimi voru hjónin Baldvin Sigurðsson (1883-1954) og Anna Soffía Jónsdóttir (1886-1968) og hafa þau væntanlega staðið fyrir flutningi hússins.

Húsið var rifið árið 2006.2Lilja Laufey Davíðsdóttir og Sædís Gunnarsdóttir (2018). Glæsibær í Eyjafirði: Fornleifaskráning vegna deiliskipulags, bls. 30. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. FS682-18021; Lárus Zophoníasson (1980). Glerárþorp – 100 ára byggð, bls. 29. Súlur, X. árg., 19-20. hefti, bls. 3-32; Steindór Steindórsson (1993). Akureyri. Höfuðborg hins bjarta norðurs, bls. 91. Ritstjórn texta: Einar S. Arnalds, ritstjórn myndefnis: Ívar Gissurarson. Reykjavík: Örn og Örlygur; Byggðir Eyjafjarðar 1990. Síðara bindi, bls. 582 og 596 (1993). Ritnefnd: Guðmundur Steindórsson, Jóhannes Sigvaldason og Kristján Sigfússon. Akureyri: Búnaðarsamband Eyjafjarðar; Hanna Rósa Sveinsdóttir, Minjasafni Akureyrar (2010, 15. september). Tölvupóstur; Vefur Gunnars Frímannssonar. Barnafræðsla í Hörgársveit 1910-1963. Sótt 30. október 2024 af https://www.gunnarf.is/is/skrar/ymsar-greinar/barnafraedsla-i-horgarsveit-1910-1963.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. október, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. október, 2024