Pöntun fyrir 1920. Ljósm.: Ólafur Methúsalemsson. Heimild: Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 282. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður.
Pöntun fyrir 1920. Ljósm.: Ólafur Methúsalemsson. Heimild: Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 282. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður.

Bakki, Bjarnarfirði

Heiti: Pöntun - Bakki
Byggingarár: 1898
Upphafleg notkun: Íbúðarhús og sölubúð
Fyrsti eigandi: Pöntunarfélag Fljótsdæla
Aðrir eigendur:
1919: Framtíðin hf.
1922: Hinar sameinuðu íslensku verslanir
1926: Harald og Gemma Johansen
1959: Guðmundur Emilsson og Guðný Guðmundsdóttir
1979: Kolbeinn Agnarsson og Ljósbrá Guðmundsdóttir
1985: Magnús Rafnsson og Arnlín Óladóttir
Upphafleg staðsetning: Hafnargata 55, Seyðisfirði
Flutt: 1985 að Bakka í Bjarnarfirði á Ströndum
Hvernig flutt: Bútað niður, fjöl fyrir fjöl, sett í kassa og flutt með flutningabíl
Bakki 1

Búið að reisa grindina á Bakka í Bjarnarfirði. Heimild: Endurbygging hins níræða húss „Pöntun“ í fullum gangi (1987, 1. september). Morgunblaðið, 74. árg., 195. tbl., bls. 54-55.

Bakki 7

Bakki í Bjarnarfirði árið 1996. Ljósm.: Áslaug Jensdóttir.

Saga:

Á fögrum stað í miðjum Bjarnarfirði á Ströndum stendur gamalt timburhús, sem fangar athygli vegfarenda fyrir góða umhirðu og vandað handverk.

Hús þetta á sér merkilega sögu sem hófst árið 1898 í Seyðifirði. Pöntunarfélag Fljótsdalshérað, sem var forveri Kaupfélags Héraðsbúa, var með talsverð umsvif á Austurlandi um þar síðustu aldamót. Í Seyðisfirði hafði félagið fyrst aðstöðu sína skammt utan við Þórshamar í sunnanverðum firðinum. Þar féllu skriður á hús félagsins og starfsemin var flutt enn utar, í svokallaða Forvaðavík. Þar féll einnig skriða á hús félagsins árið 1897. Þrátt fyrir það var ákveðið að reisa nýtt hús á skriðusvæðinu árið 1898. Ljóst var frá upphafi að staðsetning hússins var slæm og skriður úr Strandartindi þjörmuðu að því strax á fyrsta byggingarstigi hússins. Þegar Hafnargata var farin að liggja á annan metra hærra en húsið var farið að huga að flutningi þess. Fyrst var áformað að flytja húsið frá Hafnargötu 55 að Austurvegi, en mun lengra ferðalag beið hússins sem ætíð var kallað Pöntun.

Húsið, sem flutt var til landsins frá Noregi, þótti afar fallegt, vel viðað og vandað að allri gerð.1Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 282-284. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður.

Í húsavirðingu frá 1899 er húsinu svo lýst:
„Íbúðarhús og sölubúð Pöntunarfélags Fljótsdalshéraðs: 20×14 ál hæð 17 1/2 al.
Byggt úr bindingsverki, klætt með tvö­faldri borðaklæðningu og pappi á milli. Þakið er úr plægðum borðum með járnim yfir. Það er allt þiljað innan uppi og niðri. Í því er niðri krambúð; pakk-kammessi, kontor, stofa og eldhús svo og forstofa. Á loptinu eru 5 herbergi, 1 kvistherbergi og miðlopt. Undir húsinu er kjallari steinlímdur, og úr honum gengur múrpípa alla leið upp úr þaki. Í húsinu eru 4 ofnar og 1 eldavjel; 3 af þessum eldstæðum ganga í múrpípuna og 2 í leirpípu er nær frá gólfi og upp úr þaki; við eldhúsdyr er forskygni úr timbri. Hús þetta er virt á 7000 kr.“
Og í brunabótamati 40 árum síðar:
Íbúðarhús einlyft portbyggt með kvisti. Innanþiljað panel og skilrúmsborðum, málað og veggfóðrað.
Niðri 2 stofur og svefnherbergi, baðherbergi með tilheyrandi, eldhús, geymsluherbergi og gangur. Í eldhúsinu er rafmagnseldavél.
Uppi: Innendi 2 herbergi og eldhús. Útendi 2 herbergi og eldhús, ennfremur kvistherbergi. Kjallari er með sements­gólfi. Panell er í loptum neðan á bitum. Við innstafn hússins hefur skúr verið breytt í opnar svalir.2Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 284.

Margs konar starfsemi fór fram í húsinu og húsið skipti um eigendur í tímans rás. Árið 1919 keypti verslunin Framtíðin allar eigur Pöntunarfélagsins og síðar Hinar sameinuðu íslensku verslanir. Árið 1926 eignuðust hjónin Harald og Gemma Johansen húsið. Hann rak gosdrykkjaverksmiðju í kjallara hússins og Gemma kom upp afar fallegum blómagarði í kringum húsið. Í fjölda ára var afgreiðsla Eimskips og Ríkisskips í húsinu.3Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 284; Endurbygging hins níræða húss „Pöntun“ í fullum gangi (1987, 1. september). Morgunblaðið, 74. árg., 195. tbl., bls. 54-55.

Bakki, Bjarnarfirði, líklega um 2007. Gagnasafn Húsafriðunarnefndar.

Þegar hjónin Arnlín Óladóttir og Magnús Rafnsson sáu húsið á Seyðisfirði hafði ekki verið búið í því um áratug og húsið í mikilli niðurníðslu. Þau keyptu það og fluttu að Bakka í Bjarnarfirði haustið 1985. Þar var húsið sett á nýjan grunn og þau fluttu í húsið einu og hálfu ári eftir að grunnurinn var grafinn.4Fluttu húsið í kössum landshorna á milli (1991, 17. júlí). Þjóðviljinn, 56. árg., 132. tbl., bls. 6.

Arnlín og Magnús veittu húsinu athygli þegar þau voru á Seyðisfírði við vinnu og ákváðu nokkru síðar að kaupa það og gera það upp. Ekki var hægt að flytja húsið i heilu lagi á bíl þannig að ekki var um annað að ræða en að búta það niður, fjöl fyrir fjöl. Það var síðan flutt í kössum norður á Strandir með flutningabíl og reist aftur. Efniviðurinn er góður, segir Magnús, og enginn fúi í timbrinu. Allar innréttingar eru upprunalegar svo og panellinn á veggjunum. Einangrað er með steinull á milli. Undir húsinu er óuppfylltur sökkull með gluggum og klöpp undir.5Fluttu húsið í kössum landshorna á milli (1991, 17. júlí).

Leitarorð: Seyðisfjörður – Bjarnarfjörður – Strandir

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. desember, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Þóra Guðmundsdóttir (2021). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, 2. útg., bls. 282-284. Seyðisfjörður: Seyðisfjarðarkaupstaður.
  • 2
    Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 284.
  • 3
    Þóra Guðmundsdóttir (2021), bls. 284; Endurbygging hins níræða húss „Pöntun“ í fullum gangi (1987, 1. september). Morgunblaðið, 74. árg., 195. tbl., bls. 54-55.
  • 4
    Fluttu húsið í kössum landshorna á milli (1991, 17. júlí). Þjóðviljinn, 56. árg., 132. tbl., bls. 6.
  • 5
    Fluttu húsið í kössum landshorna á milli (1991, 17. júlí).

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. desember, 2025