Björnshús í Viðey. Heimild: Örvar Birkir Eiríksson (ódags.). Björnshús. Fræðsluskilti um húsin í Viðey. Aðstoð við texta og eign myndar: Örlygur Hálfdanarson. Hönnun: Árni Tryggvason.
Björnshús í Viðey. Heimild: Örvar Birkir Eiríksson (ódags.). Björnshús. Fræðsluskilti um húsin í Viðey. Aðstoð við texta og eign myndar: Örlygur Hálfdanarson. Hönnun: Árni Tryggvason.

Austurvegur 48, Grindavík

Heiti: Björnshús
Byggingarár: <1909
Upphafleg notkun: Íbúðarhús ?
Fyrsti eigandi: Pétur J. Thorsteinsson ?
Aðrir eigendur:
1907: Milljónafélagið ?
≈ 1924: Kárafélagið
≈ 1931: Útvegsbankinn
1943: Björn Bjarnason
1971: Ólafur Arnberg Þórðarson og Helga Þórarinsdóttir
Upphafleg staðsetning: Bíldudalur
Fyrst flutt: 1909 á Sundbakka í Viðey
Aftur flutt:
1943 að Langholtsvegi 45, Reykjavík
1971 að Austurvegi 48 í Grindavík
Hvernig flutt: Í heilu lagi 1971
Austurvegur 48 3.jpg

Langholtsvegur 45 í Reykjavík. Heimild: Flöskuskeyti með fornum upplýsingum: Í þessu húsi gisti Lindberg (2002, 4. júní). Dagblaðið-Vísir, 71. og 7. árg., 262. tbl., bls. 21.

Austurvegur 48 1

Saga:

Í upphafi 20. aldar tók að myndast svolítið þorp í Viðey, þegar Milljónafélagið hóf þar útgerð, fiskvinnslu og aðra atvinnustarfsemi. Félagið reisti á skömmum tíma mikil og mörg mannvirki (þau fyrstu árið 1907), fiskverkunarhús, bryggjur og íbúðarhús.1Örlygur Hálfdánarson (ódags.). Fræðsluskilti um Viðey. Auk verbúðar voru alls reist 9 íbúðarhús í þorpinu, auk þess að búið var í tveimur öðrum húsum.2Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Fornleifaskrá Viðeyjar. Óútgefið. Í byggingar sínar notaði félagið bæði byggingarefni úr hvalveiðistöðinni í Dýrafirði og gamlar bryggjur og jafnvel hús frá Mandal í Noregi.3Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.). Fræðsluskilti um Sundbakka í Viðey; Arinbjörn Vilhjálmsson (1997-2000). Húsakönnun Hólmavíkur. Handrit. GATA ehf. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar; Páll Kristjánsson segir frá því í endurminningum sínum að hann hafi unnið við niðurrif á Framnesi fyrir Milljónafélagið. (Páll Kristjánsson (1977). Það er gaman að vera gamall. Æviminningar Páls Kristjánssonar skráðar af honum sjálfum, bls. 48-49. Reykjavík: Félagsprentsmiðjan).

Til Viðeyjar fluttist fjöldi manns, í þorp sem í daglegu tali kallaðist Stöðin, en hét Sundbakki. Í þorpinu var bæði vatn, rafmagn og sími, verslun og skólahús. Árið 1910 voru 108 manns skráðir til heimilis á Sundbakka.

Þó Milljónafélagið yrði gjaldþrota árið 1914 og hætti starfsemi sinni í eyjunni hélt útgerð þar áfram. Kárafélagið svokallaða gerði Sundbakka að miðstöð starfsemi sinnar árið 1924 og gerði þaðan m.a. út tvo togara.4Magnús Þorkelsson (1996). Stöðin í Viðey – heimildir í hættu? Landnám Ingólfs. Nýtt safn til sögu þess, 5, bls. 148-156. Reykjavík: Ingólfur.; Örlygur Hálfdánarson (ódags.). „Í kjölfarið fylgdu ár þar sem útgerð stóð með blóma og á annað hundrað manns voru heimilisfastir í þorpinu auk skipshafna á þremur togurum og fjölda vertíðarfólks. Þá hafa oft verið um 200 manns við störf í eynni á hverjum tíma og áreiðanlega oft líf og fjör.“5Örlygur Hálfdánarson (ódags.).  Þegar togaraútgerð var hætt frá eynni árið 1931 misstu íbúarnir lífsafkomu sína og það fjaraði smám saman undan byggðinni og þegar stríðið skall á og mikil eftirspurn var eftir vinnuafli fluttu íbúarnir sig um set og þeir síðustu yfirgáfu Sundbakka árið 1943.6Örlygur Hálfdánarson (ódags.); Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.). „Bæði bryggjur, íbúðar- og fiskverkunarhús voru rifin og flutt úr eyjunni í upphafi síðari heimsstyrjaldar þegar timburskortur gerði verulega vart við sig.“7Páll Líndal (1986-1991). Reykjavík. Sögustaður við Sund. 3 bindi, bls. 168-169. Reykjavík: Örn og Örlygur. Ýmist fluttu íbúarnir í Sundbakkaþorpi húsin sín með sér eða þau voru seld öðrum. Þegar þau voru byggð upp á nýjum stað var það annað hvort í sömu mynd eða viðirnir notaðir til byggingar á annars konar húsi, sem venjulega var þá minna en upprunalega húsið.8Örlygur Hálfdánarson (2010, 20. júlí); Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.).

Björnshús var eitt þeirra húsa sem Milljónafélagið lét byggja fyrir starfsmenn sína. Í upphafi voru fjórar íbúðir í húsinu, tvær á hæðinni og tvær í risinu, en eftir að Kárafélagið eignaðist húsið um 1924 var íbúðunum fækkað í þrjár. Eftir gjaldþrot Kárafélagsins eignaðist Útvegsbankinn húsið eins og flest mannvirki í þorpinu. Björn Bjarnason, verkstjóri og ferjumaður milli lands og eyjar, flutti í húsið ásamt konu sinni, Þorbjörgu Ásgrímsdóttur, árið 1924 og bjó þar til ársins 1943 þegar hann flutti frá Sundbakka. Eftir það var húsið tekið niður.9Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Fornleifaskrá Viðeyjar. Síðustu árin starfaði Björn sem eftirlitsmaður með eignum Útvegsbankans á Sundbakka. „Í ágúst 1933 gistu Charles Lindbergh flugkappi og Anne eiginkona hans í húsinu á leið sinni yfir Atlantshafið er þau könnuðu flug­leiðir milli Evrópu og Ameríku.“10Örvar Birkir Eiríksson (ódags.). Björnshús; Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.).

Árið 2002 fannst flöskuskeyti í fjörunni við Ægisíðu í Reykjavík. Í skeytinu stóð:

Þetta hús var flutt frá Bíldudal 1909 og byggt upp í Viðey af Milljónafélaginu sem starfaði þar. Ég bjó í því í 19 ár í Viðey, reif það 1943 og flutti það hingað og byggði það mest sjálfur. Byggingarmeistari var Bergsveinn Guðmundsson, Ránargötu 14.
Í þessu húsi gistu Lindberg og kona hans þegar þau komu fljúgandi frá Ameríku, með viðkomu á Grænlandi, 1933, 15. ágúst, og stóð húsið þá í Viðey og var ég þá eigandi þess eins og nú og er ég að klára að smíða það  með meistaranum sem fyrr er nefndur. Ég bý á Túngötu 36/A á meðan verið er að byggja.

Björn Bjarnason verkstjóri
19/1 1944 Reykjavík.11Flöskuskeyti með fornum upplýsingum: Í þessu húsi gisti Lindberg (2002, 4. júní). Dagblaðið-Vísir, 71. og 7. árg., 262. tbl., bls. 21.

Afar líklegt má telja að húsið hafi verið reist á Bíldudal í tengslum við þá umfangsmiklu atvinnustarfsemi sem Pétur J. Thorsteinsson (1854-1929) rak þar frá 1879, þegar hann keypti fátæklegan húsakost verslunarinnar á staðnum, þar til hann stofnaði Milljónafélagið í samvinnu við Thor Jensen og fleiri árið 1907. P. J. Thorsteinsson gjörbreytti ásýnd og efnahag Bíldudal á athafnaárum sínum þar.12Örlygur Hálfdánarson (ódags.); Helgi Hjálmtýsson (2002, 1. október). Bíldudalur – Saga kauptúnsins við Bíldudalsvog í Arnarfirði. Sótt 13. mars 2011 af http://www.arnfirdingur.is/ menning/stadir/Bildudalur/Bildudalur_saga.asp.

Hvert íbúðar- og atvinnuhúsnæðið af öðru rís af grunni. Stórskipabryggja er reist, brautarteinar lagðir um  athafnasvæðið niður á bryggju, vatni veitt í leiðslur, landsetningarsliskjum komið fyrir á hafnarkambi, mikill grjótskans reistur út eftir reitunum þar sem fiskurinn var þurkaður og vegur lagður út úr þorpinu.
Þegar Thorsteinsson kom til Bíldudals voru fá hús á Eyrinni. En 1899 voru risin 22 íbúðarhús auk 13 annarra húsa og mannvirkja. Um aldamótin gengu 20 skip til fiskveiða frá Bíldudal og auk þess leiguskip til millilandaferða. Atvinna var geysimikil og menn komu hvaðanæfa af landinu í atvinnu og sumir ílengdust. Verkaður saltfiskur frá Bíldudal naut þá mikils álits meðal neytenda í fjarlægum löndum.13Helgi Hjálmtýsson (2002, 1. október).

Á fyrstu starfsárum Milljónafélagsins hafði það nokkur umsvif á Bíldudal, en hætti þar allri starfsemi um áramótin 1913 til 1914.14Helgi Hjálmtýsson (2002, 1. október).

Björnshús stóð norðan megin við aðalgötuna sem lá gegnum Sundbakkaþorpið, eilítið austan við skólahúsið sem þar stendur enn. Enn má sjá steinhlaðinn grunn hússins.15Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Fornleifaskrá Viðeyjar.

Svo virðist sem Björn hafi lent í vandræðum með húsaskítur í húsi sínu þannig að næstum ólíft var í húsinu og reynt ýmis ráð til að losna við þann ófögnuð, jafnvel blásýru. Í grein í Morgun­blaðinu í júní 1934 gefur hann hins vegar þetta ráð til að útrýma kvikindunum:

Þegar jeg hafði reynt alt, sem mjer gat dottið í hug, tók jeg það ráð að láta húsið frjósa. Jeg flutti úr því, opnaði allar hurðir, glugga og skápa og ljet húsið standa í 3 sólarhringa í 10-12 stiga frosti. Þetta hreif. Síðan hefir húsaskíta ekki orðið vart og eru þó liðin 3 ár síðan.16Einfalt ráð við húsaskítum (1934, 28. júní). Morgunblaðið, 21. árg., 151. tbl., bls. 6.

Húsaskítir virðist vera íslenskt orð yfir kakkalakka.17Húsaskítir (1934, 23. maí). Morgunblaðið, 21. árg., 118. tbl., bls. 5-6. Er hugsanlegt að Lindbergh sjálfur hafi borið þessi kvikindi mér sér í hús Björns?

Í Vísi í júní 1944 má finna klausu sem rituð er í tilefni af sextugsafmæli Björns. Þar kemur fram að hann hafi flutt úr Viðey og reist sér bú á Langholtsvegi 45 í Reykjavík.18Björn Bjarnason, verkstjóri frá Viðey (1944, 20. júní). Vísir, 34. árg., 135. tbl., bls. 3. Örlygur Hálfdanar­son, sem er manna fróðastur um Viðey, segir að Björn hafi flutt húsið úr Viðey og sett niður á lóð, þar sem nú (2023) er bílastæði austan við hús númer 43 við Langholtsveg.19Örlygur Hálfdánarson (2010, 20. júlí). Af myndum að dæma var húsinu mikið breytt þegar það var reist að nýju í Reykjavík. Við Langholtsveginn stóð húsið til ársins 1971 þegar það var flutt í heilu lagi á flutningavagni til Grindavíkur, þar sem það stendur enn og er númer 48 við Austurveg. Húsið hefur líklega verið fyrir þegar útbúa þurfti bílastæði fyrir viðskiptavini Landsbanka Íslands, sem rak útibú í húsinu um árabil. Ólafur Arnberg Þórðar­son stóð fyrir þessum flutningi. Hann var þá við nám í Stýrimannaskólanum í Reykjavík og hafði fengið atvinnu í Grindavík. Þar var ekkert húsnæði að hafa og hann ákvað því að kaupa húsið við Langholtsveg því honum lá á að fá húsnæði í Grindavík og flutningur á húsi tók mun skemmri tíma en að byggja nýtt hús. Þegar Ólafur keypti húsið var búið að múrhúða það. Sú múrhúðun var brotin af húsinu og það múr­húðað að nýju í Grindavík.20Ólafur Arnberg Þórðarson (2011, 23. febrúar). Munnleg heimild. Á nýlegum myndum af húsinu verður ekki betur séð en skipt hafi verið um klæðningu á húsinu.

Tilviljun réð því að sonur Björns, Björn Kári þá vitavörður í Reykjanesvita, mætti húsi föður síns á bílpalli á Keflavíkurveginum (Reykjanesbrautinni) þegar það var flutt til Grindavíkur. Það er ekki að undra að hann hafi orðið hissa og hélt að hann „væri að verða vitlaus“ eins og hann orðaði það sjálfur í viðtali.21Flöskuskeyti með fornum upplýsingum: Í þessu húsi gisti Lindberg (2002, 4. júní).

 

Leitarorð: Langholtsvegur

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Örlygur Hálfdánarson (ódags.). Fræðsluskilti um Viðey.
  • 2
    Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Fornleifaskrá Viðeyjar. Óútgefið.
  • 3
    Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.). Fræðsluskilti um Sundbakka í Viðey; Arinbjörn Vilhjálmsson (1997-2000). Húsakönnun Hólmavíkur. Handrit. GATA ehf. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar; Páll Kristjánsson segir frá því í endurminningum sínum að hann hafi unnið við niðurrif á Framnesi fyrir Milljónafélagið. (Páll Kristjánsson (1977). Það er gaman að vera gamall. Æviminningar Páls Kristjánssonar skráðar af honum sjálfum, bls. 48-49. Reykjavík: Félagsprentsmiðjan).
  • 4
    Magnús Þorkelsson (1996). Stöðin í Viðey – heimildir í hættu? Landnám Ingólfs. Nýtt safn til sögu þess, 5, bls. 148-156. Reykjavík: Ingólfur.; Örlygur Hálfdánarson (ódags.).
  • 5
    Örlygur Hálfdánarson (ódags.).
  • 6
    Örlygur Hálfdánarson (ódags.); Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.).
  • 7
    Páll Líndal (1986-1991). Reykjavík. Sögustaður við Sund. 3 bindi, bls. 168-169. Reykjavík: Örn og Örlygur.
  • 8
    Örlygur Hálfdánarson (2010, 20. júlí); Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.).
  • 9
    Minjasafn Reykjavíkur (ódags.). Fornleifaskrá Viðeyjar.
  • 10
    Örvar Birkir Eiríksson (ódags.). Björnshús; Örvar Birkir Eiríksson og Örlygur Hálfdánarson (ódags.).
  • 11
    Flöskuskeyti með fornum upplýsingum: Í þessu húsi gisti Lindberg (2002, 4. júní). Dagblaðið-Vísir, 71. og 7. árg., 262. tbl., bls. 21.
  • 12
    Örlygur Hálfdánarson (ódags.); Helgi Hjálmtýsson (2002, 1. október). Bíldudalur – Saga kauptúnsins við Bíldudalsvog í Arnarfirði. Sótt 13. mars 2011 af http://www.arnfirdingur.is/ menning/stadir/Bildudalur/Bildudalur_saga.asp.
  • 13
    Helgi Hjálmtýsson (2002, 1. október).
  • 14
    Helgi Hjálmtýsson (2002, 1. október).
  • 15
  • 16
    Einfalt ráð við húsaskítum (1934, 28. júní). Morgunblaðið, 21. árg., 151. tbl., bls. 6.
  • 17
    Húsaskítir (1934, 23. maí). Morgunblaðið, 21. árg., 118. tbl., bls. 5-6.
  • 18
    Björn Bjarnason, verkstjóri frá Viðey (1944, 20. júní). Vísir, 34. árg., 135. tbl., bls. 3.
  • 19
    Örlygur Hálfdánarson (2010, 20. júlí).
  • 20
    Ólafur Arnberg Þórðarson (2011, 23. febrúar). Munnleg heimild. Á nýlegum myndum af húsinu verður ekki betur séð en skipt hafi verið um klæðningu á húsinu.
  • 21
    Flöskuskeyti með fornum upplýsingum: Í þessu húsi gisti Lindberg (2002, 4. júní).

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025