Árstígur 9, Seyðisfirði, um 1994. Heimild: Þóra Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 137. Seyðisfirði: Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
Árstígur 9, Seyðisfirði, um 1994. Heimild: Þóra Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 137. Seyðisfirði: Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Árstígur 8, Seyðisfirði

Heiti: Vaðbrekka
Byggingarár: <1928
Upphafleg notkun: Íbúðarhús ?
Fyrsti eigandi: ?
Aðrir eigendur:
1928: Halldór Jónsson
1937: Finnbogi Laxdal Sigurðsson og Kapitóla Sveinsdóttir
Upphafleg staðsetning:

Þórshöfn, Langanesi

Flutt:

1928 að Árstíg 8, Seyðisfirði

Saga:

Í bókinni Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar segir að Halldór Jónsson kaupmaður í Skaftfelli hafi flutt húsið sem nú er númer 8 við Árstíg á Seyðisfirði norðan frá Þórshöfn árið 1928 til að leigja það verkafólki sem vann hjá honum. Lengst af bjuggu hjónin Hallgrímur Jakob Friðriksson (1876-1955) og Rósalind Jóhannsdóttir (1898-1979) í húsinu þegar það var í eigu Halldórs. Þau voru af Jökuldal og nefndu þau húsið Vaðbrekku eftir heimkynnum sínum. Hjónin Finnbogi Laxdal Sigurðsson (1901-1988) og Kapitóla Sveinsdóttir (1907-1976) keyptu húsið árið 1937 og ólu upp 11 börn í þessu litla húsi.1Þóra Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 137-138. Seyðisfirði: Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.

Árstígur 8 á Seyðisfirði í júní 2023. Ljósm.: Ja.is.

Húsinu er lýs svo í brunabótamati frá 1928:
„Íbúðarhús innanþiljað paneli og málað. Í húsinu eru 3 herbergi, 1 eldhús og gangur. Kjallari er undir öllu húsinu úr steinsteypu. Húsið er út timbri og austurgafl járnvarinn.“
Ekki er nákvæmlega vitað hvenær húsið var múrhúðað en það hefur sennilega verið rétt eftir stríð, er mjög komst í tísku að „forskala“ hús.2Þóra Guðmundsdóttir (1995), bls. 138.

Ekki hefur verið hægt að nota kjallarann til íbúðar því inn í hann flæðir þegar Fjarðará er í vexti.3Þóra Guðmundsdóttir (1995), bls. 138.

 

 

Leitarorð: Seyðisfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. janúar, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Þóra Guðmundsdóttir (1995). Húsasaga Seyðisfjarðarkaupstaðar, bls. 137-138. Seyðisfirði: Safnastofnun Austurlands og Seyðisfjarðarkaupstaður.
  • 2
    Þóra Guðmundsdóttir (1995), bls. 138.
  • 3
    Þóra Guðmundsdóttir (1995), bls. 138.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. janúar, 2026