Á þessari loftmynd sést hvar Brekka var staðsett í Þórkötlustaðahverfinu. Loftmynd: Ja.is.
Á þessari loftmynd sést hvar Brekka var staðsett í Þórkötlustaðahverfinu. Loftmynd: Ja.is.

Arnarhraun 4, Grindavík

Heiti: Brekka
Byggingarár: 1929
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Kristinn Jónsson og Guðríður Pétursdóttir
Aðrir eigendur:
2024: Fasteignafélagið Þórkatla ehf.
Upphafleg staðsetning: Þórkötlustaðahverfi, Grindavík
Flutt: 1949 að Arnarhrauni 4, Grindavík

Saga:

Arnarhraun 4, Grindavík, í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.

Árið 1929 byggðu hjónin (Guðmundur) Kristinn Jónsson (1894-1981), sjómaður og síðar fiskmatsmaður, og Guðríður Pétursdóttir (1903-1980) sér hús í túninu austan við Þórkötlustaði, æskuheimili Guðríðar og nefndu Brekku. Húsið stóð á milli Þórkötlustaða og Buðlungu, þar sem nú (2025) er malarplan þar sem heyrúllur eru geymdar miðju vegu milli Buðlungu og Bjarmalands.

Tuttugu árum síðar, árið 1949, fluttu þau húsið að Arnarhrauni 4 í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík. Þar stendur húsið enn og hefur verið breytt talsvert í tímans rás, m.a. var settur stór kvistur á það um 1980.1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 109. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172; Fasteignaskrá HMS; Jón Tómasson (1981, 1. desember). Kristinn Jónsson frá Brekku, Grindavík – Minning. Faxi, 41. árg., 7. tbl., 201.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. ágúst, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. ágúst, 2025