Árgerði gamla. Héraðsskjalasafn Svarfdæla. Sótt 18. febrúar 2024 af https://www.dalvikurbyggd.is/heradsskjalasafn/arsskyrslur/ljosmyndasofn/gomul-og-horfin-hus/gomul-og-horfin-hus-1/argerdi-gamla
Árgerði gamla. Héraðsskjalasafn Svarfdæla. Sótt 18. febrúar 2024 af https://www.dalvikurbyggd.is/heradsskjalasafn/arsskyrslur/ljosmyndasofn/gomul-og-horfin-hus/gomul-og-horfin-hus-1/argerdi-gamla

Árgerði, Svarfaðardal

Heiti: Læknishús - Árgerði
Byggingarár: 1896
Rifið: Um 1946
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Sigurður Hjörleifsson og Þuríður Jakobsdóttir
Aðrir eigendur:
1906: Sigurjón Jónsson og Sigríður Ólafsdóttir
1938: Ingimar Aðalsveinn Óskarsson og Margrét Kristjana Steinsdóttir
1945: Daníel Ágúst Daníelsson
Upphafleg staðsetning: Grenivík, Grýtubakkahreppi
Flutt: 1908 í Árgerði í Svarfaðardal
Hvernig flutt: Tekið niður og flutt á mótorbátum

Saga:

Árið 1900 var Sigurður Jón Hjörleifsson Kvaran (1862-1936) skipaður héraðslæknir Höfðahverfislæknishéraðs, en hafði áður verið þar aukalæknir frá árinu 1894. Hann var kvæntur Þuríði Jakobsdóttur (1865-1937). Fyrstu árinu bjuggu þau hjón í Nesi og Höfða, en árið 1896 ákvað Sigurður að reisa sér íbúðarhús fyrir eigið fé á Grenivík1Björn Ingólfsson (2013). Brot úr byggðarsögu. Mannlíf í Grýtubakkahreppi í 150 ár, bls. 227 og 238. Reykjavík: Bókaútgáfan Hólar.. „Í lok október var búslóð læknisins flutt á klyfjum [frá Höfða] niður á Kljáströnd, á bát þaðan út á Grenivík og borin síðasta spölin úr fjörunni upp í Læknishús.“2Björn Ingólfsson (2013), bls. 238. Húsið stóð nokkurn veginn á þeim stað sem seinna var reist skóla- og samkomuhús Grenivíkurbúa.

Sigurður tók virkan þátt í félagsmálum og var bygging sjúkraskýlis á Grenivík aðal baráttumál hans. Árið 1904 fékk hann stöðu héraðslæknis á Akureyri og flutti þangað. Við tók Sigurjón Jónsson (1862-1955). Fyrst leigði hann hús Sigurðar, en keypti það árið 1906. Eiginkona Sigurjóns var Sigríður Ólafsdóttir (1875-1952).

Árið 1908 var Sigurjón skipaður héraðslæknir í Svarfdælahéraði. Þegar hann flutti þangað tók hann húsið með sér og reisti það í Árgerði þar sem hann stundaði búskap með læknisstörfunum.3Björn Ingólfsson (2013), bls. 227-228.

Svarfdælingar vildu allt til vinna að fá Sigurjón að sínu nýja læknishéraði og sömdu við hann um húsið. Sigurjón skyldi sjálfur sjá um að rífa það og koma viðunum niður í fjöru. Þar tóku Svarfdælingar við og fluttu það yfir um og sáu um að gera undir það grunn og reisa það. Var til þess tekið að tólf mótorbátar voru í förum með húsviðina auk annarra báta og þótti mikill floti.4Björn Ingólfsson (2013), bls. 228.

Sigurjón fékk lausn frá embætti árið 1938 og flutti til Reykjavíkur. Sá læknir sem tók við af honum settist að á Dalvík, en í Árgerði kom “… Ingimar Aðalsveinn Óskarson [1892-1981], hinn kunni náttúrufræðingur,5Hér má lesa um Ingimar: https://hidislenskanatturufraedifelag.files.wordpress.com/2017/02/ingimar_oskarsson.pdf og kona hans Margrét Kristjana Steinsdóttir.  Þau bjuggu þar til 1945, en höfðu lítið bú, enda búskapurinn hjáverk. Eftir að þau fluttu burt lagðist búskapur alveg af í Árgerði.”6Húsakönnun í Dalvíkurbyggð, hús byggð fyrir 1950 (IIV áfangi, í Svarfaðardal). Sótt 18. febrúar 2024 af https://www.dalvikurbyggd.is/static/files/Hvoll/husaskraning/141201-svarfd-allur.pdf

Daníel Ágústi Daníelssyni var veitt embætti héraðslæknis árið 1944. “Hann vildi endurreisa læknisbústað í Árgerði og keypti jörðina, lét rífa timburhúsið sem þar stóð og reisa í staðinn nýtískulegt hús. Íbúðarhúsið var byggt 1947, í Funkisstíl, úr steinsteypu á steinsteyptum grunni.”7Húsakönnun í Dalvíkurbyggð, hús byggð fyrir 1950 (IIV áfangi, í Svarfaðardal).

 

Leitarorð: Svarfaðardalur

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. febrúar, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 18. febrúar, 2024