Árbraut 1, Vík í Mýrdal
Árbraut 1, Vík í Mýrdal, skömmu eftir að húsið var flutt. Ljósm.: Ja.is.
Árbraut 1, Vík í Mýrdal, í júní 2023. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Árið 1909 fékk Þorleifur Þorleifsson (1862-1939) leyfi til að byggja einlyft timburhús með kjallara, risi og inngönguskúr við norðurausturgafl. Húsið hefur ýmist verið skráð Bræðraborgarstígur 32, 32a eða 32b. Þorleifur átti einnig steinbæ, sem stóð lengi við hlið hússins. Sá bær var nefndur Stakkahlíð, og færðist það nafn yfir á húsið.
Húsið byggði Þorleifur á árunum 1909 og 1910. Það var virt til brunabóta í janúar 1910. Í virðingunni kemur fram að húsið var byggt úr bindingi og var frá upphafi klætt að utan með járni á þaki og veggjum. Undir því öllu var kjallari með steinsteypugólfi, 4 al. á hæð, og við norðurgafl þess var inngönguskúr með risi og kjallara, byggður eins og húsið, 2 x 3,47 x 4 al. að stærð.
Í manntali árið 1910 kemur fram að þá búa í húsinu þau Þorleifur og Geirlína Þorgeirsdóttir (1863-1959) kona hans og Pálína Þóra María (1896-1983) dóttir þeirra, ásamt annarri þriggja manna fjölskyldu og einum aðkomumanni, alls 7 manns. Þar kemur einnig fram að Þorleifur hafi unnið við fiskverkun og gegnt allri almennri vinnu sem fyrir kemur. Eftir að Þorleifur lést árið 1939 eignaðist Pálína dóttir hans húsið.
Árið 1977 var búið að taka allt húsið í gegn, setja nýja járnklæðningu á það allt og rífa skúr á lóðinni.
Árið 2006 þurfti húsið að víkja af Bræðraborgarstíg og var það þá flutt austur í Vík í Mýrdal, þar sem það stendur enn við Árbraut 1 og ber mikinn svip af gamla húsinu, þó það hafi verið stækkað eitthvað.1Páll V. Bjarnason og Drífa Kristín Þrastardóttir (2004). Húsakönnun. Holtsgata – Bræðraborgarstígur – Sólvallagata – Vesturvallagata, bls. 17. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 120; Húsaskrá Árbæjarsafn. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar; Manntal 1910. Sótt 30. júlí 2024 af https://manntal.is/.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. júlí, 2024
Heimildaskrá
- 1Páll V. Bjarnason og Drífa Kristín Þrastardóttir (2004). Húsakönnun. Holtsgata – Bræðraborgarstígur – Sólvallagata – Vesturvallagata, bls. 17. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 120; Húsaskrá Árbæjarsafn. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar; Manntal 1910. Sótt 30. júlí 2024 af https://manntal.is/.
Deila færslu
Síðast uppfært 30. júlí, 2024

