Fremsta húsið á myndinni er Eyrargata 26. Sjá má að áfengisverslunin er í smíðum. Því má gera ráð fyrir að myndin sé tekin skömmu áður en það hús var fullbyggt árið 1947. Ljósmyndasafn Streingríms. Sótt 17. mars 2024 af https://sk2134.is/gamli/horfinhus01.htm
Fremsta húsið á myndinni er Eyrargata 26. Sjá má að áfengisverslunin er í smíðum. Því má gera ráð fyrir að myndin sé tekin skömmu áður en það hús var fullbyggt árið 1947. Ljósmyndasafn Streingríms. Sótt 17. mars 2024 af https://sk2134.is/gamli/horfinhus01.htm

Áhaldahús Siglufjarðar við Norðurgötu, Siglufirði

Heiti: Brandarhúsið - Meyjaskemman - Áhaldahúsið
Byggingarár: 1925
Rifið: 1990-2000
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðbrandur Vigfússon
Aðrir eigendur:
< 1958: Siglufjarðarbær
Upphafleg staðsetning: Eyrargata 26, Siglufirði
Flutt: > 1958 að Norðurgötu, Siglufirði
Hvernig flutt: Dregið með jarðýtum á snjó

Saga:

Við Eyrargötu 26 á Siglufirði, á horni Eyrargötu og Túngötu, byggði Guðbrandur Vigfússon hús árið 1925, sem ætið var kennt við hann og kallað Brandarhúsið.1Örlygur Kristfinnsson (2023). Fólkið á Eyrinni. Smámyndir og þættir, bls. 247. Siglufirði: Söluturninn; Harpa Grímsdóttir (1998, desember). Byggingarár húsa á Siglufirði, bls. 13. Reykjavík: Veðurstofa Íslands. „Þetta var mikið hús á siglfirskan mælikvarða, á tveimur hæðum auk kjallarans. Þar voru innréttaðar allt að fimm íbúðir, að vísu fremur litlar og þröngar en þar bjó fjöldi fólks.“2Örlygur Kristfinnsson (2023), bls. 247.

„Í bæ uppnefna og viðurnefna dugði ekki Brandarhúsnafnið eitt því um skeið fékk það nýtt heiti, Meyjaskemman. Nafnið mun vera dregið af konum tveimur sem bjuggu í kjallaranum og siðgæðisvaktinni í bænum þótti vera full gestrisnar.“3Örlygur Kristfinnsson (2023), bls. 247.

Í byrjun desember 1958 kviknaði í húsinu og misstu þar 20 manns (þrjár fjölskyldur) aleigu sína, en engin meiðsl urðu á fólki. Húsið var þá í eigu Siglufjarðarbæjar, sem var með verkstæði og verkfærageymslu í kjallaranum.4Húsbruni á Siglufirði í gær (1958, 4. desember). Vísir, 46. árg., 270. tbl., bls. 8.

Brandarhúsið flutt. Ljósm.: Steingrímur Kristinsson. Trölli.is. Jón Ólafur Björgvinsson. Horfin eru hús og heill æskuheimur! 1. hluti. sótt 17. mars 2024 af https://trolli.is/horfin-eru-hus-og-heill-aeskuheimur-1-hluti-55-myndir/.

Ekki virðist hafa verið búið í húsinu eftir brunann, en „… skömmu síðar fór Brandarhúsið í heilmikla reisu um götur bæjarins. Það var tekið af steyptum grunni sínum og dregið á snjó af tveimur jarðýtum örstuttan spöl meðfram Túngötu, þá var tekin beygja til austurs og farið eftir Þormóðsgötu þar sem Brandarhúsið rétt sleikti norðurhlið Alþýðuhússins og síðan framhjá Tunnuverksmiðjunni og þriðjan beygjan tekin á Norðurgötu og húsinu loks rennt inn á auða lóð milli Norðurgötu og Eyrargötu. Þar var Brandarhúsið sett niður á nýjan grunn og þannig var til Áhaldahús bæjarins og notað sem þjónustumiðstöð fyrir bæjarbúa nokkuð fram á tíunda áratuginn er það var rifið.“5Örlygur Kristfinnsson (2023), bls. 249. Á ljósmyndum sést að viðbygging undir kvisti á norðuhlið hússins var fjarlægð fyrir flutninginn.

 

Leitarorð: Siglufjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. mars, 2024

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. mars, 2024