Aðalstræti 30, Akureyri
Laxagata 1 sett á nýjan grunn við Aðalstræti 30 á Akureyri í maí 1986. Heimild: Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2012, maí). Húsakönnun - Fjaran og innbærinn 2012 endurskoðun könnunar frá 1982 og deiliskipulags frá 1986, ekkert bls.tal.
Aðalstræti 30 í ágúst 2023. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Árið 1929 fékk Axel Kristjánsson (1892-1942) kaupmaður, bæjarfulltrúi og konsúll á Akureyri, leyfi til að byggja timburhús á lóð við austanvert Ráðhústorg á Akureyri. Axel var kvæntur Hólmfríði Jónsdóttur (1896-1944). Axel lést 16. apríl 1942 af völdum sára sem hann hlaut tveimur dögum áður þegar flugvélin Smyrill féll til jarðar skömmu eftir flugtak á Reykjavíkurflugvelli og gjöreyðilagðist.1Jón Hjaltason (2021). Ótrúlegt en satt. Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi, stundum skemmtilegu, stundum sorglegu, jafnvel vandræðalegu en alltaf fróðlegu, bls. 137. Akureyri: Völuspá útgáfa í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri; Flugvjelin ,Smyrill‘ hrapar til jarðar (1942, 14. apríl). Morgunblaðið, 29. árg., 53. tbl., bls. 3.
Hús Axels var kallað „bráðabirgðaskúr“ þegar blaðið Verkamaðurinn sagði frá því að Axel hefði í hyggju að byggja „varanlega byggingu“ á lóð sinni. Seldi hann Jakobi Ólsen (1897-1978) málarameistara „bráðabirgðaskúrinn“ árið eftir. Jakob lét draga húsið á ís að Laxagötu 1 þar sem Jakob bjó í húsinu ásamt eiginkonu sinni, Guðbjörgu Pétursdóttur (1899-1988) og tveimur börnum.2Byggingar (1929, 10. ágúst). Verkamaðurinn, 12. árg., 65. tbl., bls. 3; Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2012, maí). Húsakönnun – Fjaran og innbærinn 2012 endurskoðun könnunar frá 1982 og deiliskipulags frá 1986, ekkert bls.tal; Jón Hjaltason (2021), 137.
Áfengis og tóbaksverslun ríkisins keypti húsið og lóðina árið 1986 til að rýma fyrir vörumóttöku fyrir verslun ÁTVR. Stefán Jóhannesson trésmíðameistari keypti húsið með það fyrir augum að flytja það á lóðina við Aðalstræti 30. Húsið var svo flutt í einu lagi og sett niður á steyptan kjallara við Aðalstræti 30 sama ár. Það var endurbyggt hólf í gólf og bætt á það kvistum til að auka nýtingu á rishæðinni og byggt var sólstofa meðfram bakhliðinni.
Samkvæmt upplýsingum frá Stefáni þá var húsið endurgert frá grunni. Gert var við húsgrindina og sett ný einangrun í alla veggi. Þegar steinblikkið var tekið utan af húsinu kom í ljós að grindin var klædd með plægðum viði og er hann enn undir núverandi útveggjaklæðningu. Gluggasetningu í risi var breytt frá upphaflegri með því að tveimur litlum tígulgluggum í suðurstafni var lokað og einn gluggi var settur á miðjan norðurstafn í stað tveggja áður auk þess sem nýjum glugga var bætt á norðurhliðina.3Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2012, maí).
Þó húsið hafi verið flutt að Aðalstræti 30 22. maí 1986 flutti Stefán þó ekki inn í húsið fyrr en í nóvember 1990.4Jón Hjaltason (2021), 138.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. október, 2024
Heimildaskrá
- 1Jón Hjaltason (2021). Ótrúlegt en satt. Saga Akureyrar í öðruvísi ljósi, stundum skemmtilegu, stundum sorglegu, jafnvel vandræðalegu en alltaf fróðlegu, bls. 137. Akureyri: Völuspá útgáfa í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri; Flugvjelin ,Smyrill‘ hrapar til jarðar (1942, 14. apríl). Morgunblaðið, 29. árg., 53. tbl., bls. 3.
- 2Byggingar (1929, 10. ágúst). Verkamaðurinn, 12. árg., 65. tbl., bls. 3; Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2012, maí). Húsakönnun – Fjaran og innbærinn 2012 endurskoðun könnunar frá 1982 og deiliskipulags frá 1986, ekkert bls.tal; Jón Hjaltason (2021), 137.
- 3Hjörleifur Stefánsson og Hanna Rósa Sveinsdóttir (2012, maí).
- 4Jón Hjaltason (2021), 138.
Deila færslu
Síðast uppfært 26. október, 2024

