Pálshús, Aðalstræti 3, 1907.  Gingi teiknistofa (2019). Vatneyri húsakönnun. Greinargerð ágúst 2019. Sótt 14. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_142.pdf.
Pálshús, Aðalstræti 3, 1907. Gingi teiknistofa (2019). Vatneyri húsakönnun. Greinargerð ágúst 2019. Sótt 14. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_142.pdf.

Aðalstræti 3, Patreksfirði

Heiti: Pálshús - Hús Benedikts Sigmundssonar - Símstöðin - Gamla símstöðin - Pálshús
Byggingarár: 1895
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Páll N. Christiansen (Páll Færeyingur)
Aðrir eigendur:
1896: P. J. Thorsteinsson og Co.
Upphafleg staðsetning: Neðst á Vatneyrarodda á Patreksfirði
Flutt: 1896 að Aðalgötu 3, Vatneyri, Patreksfirði
Aðalstræti 3 2.png

Aðalstræti 3, bifreiðaverkstæði, árið 2017. Gingi teiknistofa (2019). Vatneyri húsakönnun. Greinagerð ágúst 2019. Sótt 14. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_142.pdf.

Aðalstræti 3 4

Aðalstræti 3 orðið að gistihúsi eftir endurbætur um 2022. Sótt 14. nóvember 2023 af https://www.booking.com/.

Saga:

Árið 1896 keypti félagið P. J. Thorsteinsson og Co. alla kaupstaðarlóðina á Vatneyri á Patreks­firði ásamt öðrum eignum Sigurðar Bachmanns kaupmanns. Sigurður undanskildi þó svonefnda Kampen­borgarlóð handa sjálfum sér. Við kaupin var Páli N. Christiansen gert að flytja burt hús sitt, sem hann hafði byggt neðst á Vatneyri árið áður.1Guðjón Friðriksson (1973). Upphaf þorps á Patreksfirði, bls. 92-94. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 17, bls. 88-143; Guðjón Friðriksson (1974). Upphaf þorps á Patreksfirði. Síðari hluti, bls. 101. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 18, bls. 65-110.

Ætlunin var að flytja það upp á Klampenborgarlóð, en það komst ekki nema 3 lengdir sínar. Keypti þá verzlunin húsið af Páli og kom því fyrir neðan stóra íbúðarhússins, sem Sigurður Backmann var nýbúinn að byggja og síðar var faktorshús.2Guðjón Friðriksson (1974), bls. 101-102.

Hús Páls Færeyings (Aðalstræti 3), eins og hann var ætíð kallaður, var tvílyft og í því bjuggu þrjár fjölskyldur.  Páll hafði komið til Patreksfjarðar sem skipstjóri árið 1894, en starfaði sem járnsmiður við Vatn­eyrar­verslunina og var talinn þúsundþjalasmiður.3Guðjón Friðriksson (1974), bls. 126 og 135.

Halldór Bjarnason sýslumaður bjó í húsinu 1899-1905 en þá flyst í það Benedikt Sigmundsson verslunarmaður og var þá húsið nefnt eftir honum.

Síðar var húsið lengi símstöð og íbúð símstöðvarstjóra, en svo var  bifreiðaverkstæði í húsinu með innkeyrsludyrum á suðvesturgafli. Stór hluti þakhæðar var þá fjarlægður til að pláss væri fyrir bílalyftu og fyllt var upp í kjallara.4Gingi teiknistofa (2019). Vatneyri húsakönnun. Greinagerð ágúst 2019. Sótt 14. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_142.pdf. Um 2020 flutti verkstæðið úr húsinu og var þá hafist handa við endurbætur á húsinu þar sem höfð var hliðsjón af aldri og gerð hússins og er nú rekið þar gistihús.

 

Leitarorð: Patreksfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. september, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Guðjón Friðriksson (1973). Upphaf þorps á Patreksfirði, bls. 92-94. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 17, bls. 88-143; Guðjón Friðriksson (1974). Upphaf þorps á Patreksfirði. Síðari hluti, bls. 101. Ársrit Sögufélags Ísfirðinga, 18, bls. 65-110.
  • 2
    Guðjón Friðriksson (1974), bls. 101-102.
  • 3
    Guðjón Friðriksson (1974), bls. 126 og 135.
  • 4
    Gingi teiknistofa (2019). Vatneyri húsakönnun. Greinagerð ágúst 2019. Sótt 14. nóvember 2023 af https://husaskraning.minjastofnun.is/Husakonnun_142.pdf.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 16. september, 2025