Aðalstræti 21, Þingeyri, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.
Aðalstræti 21, Þingeyri, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Aðalstræti 21, Þingeyri

Byggingarár: <1915
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Hermann Bjarni Kristjánsson og Jóna Hafliðadóttir
Aðrir eigendur:
1915: Jóna Hafliðadóttir
Upphafleg staðsetning: Ketilseyri, Dýrafirði
Flutt: ≈1917 að Aðalstræti 21, Þingeyri

Saga:

Síðasta dag marsmánaðar árið 1917 birtist í Ísafold það þakkarávarp sem hér sést frá Jónu Hafliða­dóttur (f. 1865), ekkju Hermanns Bjarna Kristjánssonar, sem látist hafði tveimur árum áður frá fimm börnum.1Jóna Hafliðadóttir (1917, 31. mars). Þakkarávarp. Ísafold, 44. árg., 22. tbl., bls. 4. Eftir lát Hermanns flutti Jóna frá Ketilseyri í Dýrafirði, réð sig til vinnu út á Þingeyri til Proppébræðra. Áður en hús hennar var flutt fékk hún húsaskjól í einu af húsum þeirra bræðra.2Þórir Guðmundsson, Þingeyri (2010, 1. nóvember). Munnleg heimild.

Velgjörðarmenn ekkjunnar, bræðurnir Carl Friedrich (1876-1942), Jón Adolph (1879-1948), Anton Wilhelm (1885-1963), Ólafur Jóhann (1886-1949) og Jóhannes Harald Proppé (1888-1918) voru synir hjónanna Helgu Jónsdóttur (1848-1925) og Claus Eggert Dietrich Proppé (1839-1898), sem fæddur var í Holstein í Þýskalandi en kom hingað til lands árið 1868 og rak lengst af brauð­gerðar­hús í Hafnarfirði. Árið 1914 stofnuðu þeir verslunar- og útgerðarfyrirtæki á Þingeyri, sem þeir störfuðu allir að einhverju leyti við til ársins 1926 þegar fyrirtækið varð gjaldþrota. Ólafur, sá sem hafði forgöngu um aðstoðina við Jónu, var framkvæmdastjóri fyrirtækis­ins og sat á þingi fyrir Vestur-Ísafjarðarsýslu á árunum 1919 til 1923.3Ólafur Proppé (1993). Proppéættin á Íslandi. Niðjatal Helgu Jónsdóttur Proppé og Clausar Eggert Dietrichs Proppé auk ýmiss fróðleiks um sögu ættarinnar. Gefið út af tilefni af ættarmóti Proppéættarinnar á Íslandi 28. ágúst 1993.. Þess má geta að þegar Anton Proppé flutti til Reykjavíkur árið 1947 lét hann rífa nokkur hús sem hann átti á Þingeyri, þ. á m. „faktorshúsið“ og notaði efniviðinn til að byggja þrjú hús við Skipasund (Ólafur Proppé, 1993:19 og 24).

Hús Jónu var sett niður á lóð sem nú er lóð nr. 21 við Aðal­stræti þar sem það stendur enn.4Þórir Guðmundsson, Þingeyri (2010, 1. nóvember). Munnleg heimild.

 

Leitarorð: Dýrafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. september, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Jóna Hafliðadóttir (1917, 31. mars). Þakkarávarp. Ísafold, 44. árg., 22. tbl., bls. 4.
  • 2
    Þórir Guðmundsson, Þingeyri (2010, 1. nóvember). Munnleg heimild.
  • 3
    Ólafur Proppé (1993). Proppéættin á Íslandi. Niðjatal Helgu Jónsdóttur Proppé og Clausar Eggert Dietrichs Proppé auk ýmiss fróðleiks um sögu ættarinnar. Gefið út af tilefni af ættarmóti Proppéættarinnar á Íslandi 28. ágúst 1993.. Þess má geta að þegar Anton Proppé flutti til Reykjavíkur árið 1947 lét hann rífa nokkur hús sem hann átti á Þingeyri, þ. á m. „faktorshúsið“ og notaði efniviðinn til að byggja þrjú hús við Skipasund (Ólafur Proppé, 1993:19 og 24).
  • 4
    Þórir Guðmundsson, Þingeyri (2010, 1. nóvember). Munnleg heimild.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. september, 2025