Turninn nýbyggður í ágúst 1925. Ljósm.: Alda Ólafsdóttir. Ljósmyndasafnið Ísafirði, mynd nr. AÓ1. Sótt 3. janúar 2023 af http://myndasafn.isafjordur.is/.
Turninn nýbyggður í ágúst 1925. Ljósm.: Alda Ólafsdóttir. Ljósmyndasafnið Ísafirði, mynd nr. AÓ1. Sótt 3. janúar 2023 af http://myndasafn.isafjordur.is/.

Aðalstræti 21, Turninn, Ísafirði

Heiti: Turninn
Byggingarár: 1925
Upphafleg notkun: Verslunarhús
Fyrsti eigandi: Matthías Sveinsson kaupmaður
Upphafleg staðsetning: Silfurtorgi, Ísafirði
Fyrst flutt: ≈1930 að Aðalstræti 21, Ísafirði
Aðalstræti 21 4

Turninn á Silfurtorgi við hlið nýbyggingar, líklega skömmu áður en hann var fluttur. Heimild: ]Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003). Ísafjörður og Vestfirðir – miðstöð hvalveiða, bls. 241. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 227-249. Reykjavík: Mál og menning.

Aðalstræti 21 3

Aðalstræti 21 í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Árið 1925 var Turninn byggður á Silfurtorgi á Ísafirði, þar sem húsið Silfurtorg 1 er í dag (2023). Talið er með nokkurri vissu að Rögn­valdur Á. Ólafsson arkitekt hafi teiknað Turninn, en bróðir hans, Jón Þ. Ólafsson byggt hann. Rögnvaldi auðnaðist þó aldrei að líta hann augum, því hann lést árið 1917.1Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003). Ísafjörður og Vestfirðir – miðstöð hvalveiða, bls. 241. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 227-249. Reykjavík: Mál og menning. Það var Matthías Sveinsson kaupmaður (1892-1971) sem lét byggja Turninn fyrir verslunarrekstur sinn. Þá var hann nýfluttur aftur til Ísafjarðar, en hafði áður tekið sér ýmislegt fyrir hendur, stundað verslunarstörf á Patreksfirði á unglingsárum sínum, verið á enskum togurum, lært rakaraiðn og rekið rakarastofu á Ísafirði á árunum 1915 til 1919 og síðast verslunarstjóri í Bolungarvík áður en hann flutti aftur til Ísafjarðar. Í Turninum stundaði Matthías verslun með búsáhöld og matvörur.

Þegar nýtt aðalskipulag var gert árið 1930 var ákveðið að reisa nýjar byggingar við Silfurtorg. Þá seldi Matthías Turninn og var hann þá fluttur suður yfir Silfurtorg, þangað sem hann stendur enn við Aðalstræti 21 (við suðurhlið húss nr. 25 við Aðalstræti).2 Jón Páll Helgason (2007). Kaupmaður á hverju horni. Þættir úr sögu verzlunar á Ísafirði frá 1944 til 1993, bls. 56-57. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.; Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003), bls. 241. „Mikil húsnæðisekla var á Ísafirði á þessum árum og var hann innréttaður til íbúðar eftir flutninginn og búið í honum allt fram á síðustu ár.“3Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003), bls. 241.

Árið 1925 er húsið einlyft timburhús með porti, klætt 26mm borðum en síðar klætt sléttu járni, þakið járnvarið. Þegar húsinu var breytt í íbúð mun það hafa verið hækkað og er nú tvílyft auk þess sem kjallari var steyptur undir 1930.4Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (ódags.). Skutulsfjarðareyri. Húsakönnun á Ísafirði 1992-3, bls. 40. Handrit. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

 

Leitarorð: Ísafjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. janúar, 2024

Heimildaskrá

  • 1
    Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003). Ísafjörður og Vestfirðir – miðstöð hvalveiða, bls. 241. Í Hjörleifur Stefánsson, Kjell H. Halvorsen og Magnús Skúlason ritnefnd, Af norskum rótum – gömul timburhús á Íslandi, bls. 227-249. Reykjavík: Mál og menning.
  • 2
    Jón Páll Helgason (2007). Kaupmaður á hverju horni. Þættir úr sögu verzlunar á Ísafirði frá 1944 til 1993, bls. 56-57. Ísafirði: Sögufélag Ísfirðinga.; Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003), bls. 241.
  • 3
    Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (2003), bls. 241.
  • 4
    Elísabet Gunnarsdóttir og Jóna Símonía Bjarnadóttir (ódags.). Skutulsfjarðareyri. Húsakönnun á Ísafirði 1992-3, bls. 40. Handrit. Í gagnasafni Húsafriðunarnefndar.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. janúar, 2024