Kort frá gosdrykkjaversmiðjunni Sanitas, frá árunum 1910 til 1915. Sarpur. númer B: 2011-31-1. Sótt 26. október 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/1453077/.
Kort frá gosdrykkjaversmiðjunni Sanitas, frá árunum 1910 til 1915. Sarpur. númer B: 2011-31-1. Sótt 26. október 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/1453077/.

Teigur við Nesveg, Seltjarnarnesi

Heiti: Sanitashúsið - Teigur
Byggingarár: 1905
Brann: 1964
Upphafleg notkun: Gosdrykkjaverksmiðja
Fyrsti eigandi: Gísli Guðmundsson, Guðmundur Ólafsson og Jón Jónsson
Aðrir eigendur:
1931 ?: Steindór Ingimundarson og Oddný Hjartardóttir

Saga:

Í Seltirningabók Heimis Þorleifssonar segir um gosverksmiðjuna Sanitas:

Í landi Melshúsa, nálægt Hreppsveginum [þ.e. Nesvegi], var 1905 reist hús fyrir gosdrykkjaverksmiðjuna Sanitas. Hún hóf starfsemi sína 30. nóvember það ár og var í þessu húsi til 1916. Eigendur verksmiðjunnar voru Gísli Guðmundsson gerlafræðingur, tengdasonur Þórðar í Ráðagerði, Guðmundur Ólafsson í Nýjabæ og Jón Jónsson í Melshúsum. Sanitas framleiddi í fyrstu öl, gos og saftir, en hætti síðan ölgerð 1913. Eftir brottflutning verksmiðjunnar var húsið notað sem íbúðarhús þar í nokkur ár, en síðan var það flutt yfir veginn og nefnt Teigur. Þetta var timburhús með viðbyggingu, 7,6×8,8 m.1Heimir Þorleifsson (1991). Seltirningabók, bls. 106. Seltjarnarnes: Seltjarnarnesbær.

Verksmiðjan stóð á þeim slóðum þar sem nú er raðhúsið Selbraut 8 á Seltjarnarnesi.2Minjavefsjá Minjastofnunar Íslands. Sótt 26. október 2026 af https://minjastofnun.gis.is/mapview/. Norðan Nesvegar hefur húsið væntanlega staðið þar sem húsið númer 48 við Suðurmýri stendur nú (2026), en það hús er nefnt Teigur I á skipulagsuppdrætti frá 2014. Það hús var byggt 1988.3Seltjarnarnes – Kolbeinsstaðamýri. Deiliskipulag, dags. 15. október 2014. 

Að Teigi bjuggu til margra ára hjónin Steindór Ingimundarson (1899-1960) ættaður frá Sogni í Ölfusi, og kona hans, Oddný Hjartardóttir (1898-1976) frá Borðeyri við Hrútafjörð. Þau eignuðust fjórtán börn, en misstu fjögur þeirra ung. Steindór var verkstjóri í Sænska frystihúsinu.4Ingimundur G. Steindórsson – Minning (1993, 19. ágúst). Morgunblaðið, 81. tbl., 185. tbl., bls. 39.

Húsið brann til kaldra kola að morgni nýársdags 1964. Þá var búið að setja kvist á húsið. Oddý var enn eigandi hússins og bjó hún í því ásamt syni sínum, konu hans og fimm börnum þeirra hjóna.5Freyja Jónsdóttir (2003, 17. nóvember). Ráðagerði, Seltjarnarnesi. Morgunblaðið, 91. árg., 312. tbl., bls. 20 C; Mátti ekki tæpara standa með björgun (1964, 3. janúar). Tíminn, 48. árg., 1. tbl., bls. 16 og 15.

Allir voru í fastasvefni, þegar eldurinn kom upp, en gestkomandi maður í húsinu vakti fólkið, sem tókst með naumindum að bjarga sér undan eldinum. Auk mikilla skemmda á húsinu sjálfu brann allt innbú og hefur fólkið því orðið fyrir miklu tjóni.6Íbúðarhús á Seltjarnarnesi gereyðileggst í eldsvoða (1963, 3. janúar). Morgunblaðið, 51. árg., 1. tbl., bls. 24.

Heimild: Íbúðarhús á Seltjarnarnesi gereyðileggst í eldsvoða (1963, 3. janúar). Morgunblaðið, 51. árg., 1. tbl., bls. 24.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. október, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 26. október, 2026