Stóri-Núpur 2, Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Saga:
Árið 1905 byggði Sveinbjörn Erlindsson (eða Erlendsson, 1865-1949) einlyft timburhús með risi á lóðinni númer 15 við Vitastíg í Reykjavík. Í brunavirðingu sem gerð var í maí það ár kemur m.a. fram:
Hús þetta er bygt af binding, klætt utan með plægðum 1″ borðum pappa listum og járni þar yfir og með járþaki á plægðri 5/4″ súð með pappa á milli. Í binding og innan á binding er pappi, og millumgólfi í neðra bitalagi.
Niðri í húsi þessu eru 3 íbúðar herbergi og eldhús; allt þiljað, og herbergin með pappa á veggjum, og striga og pappír á loftum; Allt málað. Þaru er 2 ofnar og 1 eldavjel.
Á efri bitum er gólf úr plægðum 5/4″ borðum. Kjallari með steinsteypu gólfi er undir öllu húsinu 3¼ al. á hæð. …
Við norðurgafl er inngönguskúr bygður eins og húsið. Í honum er salerni.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðf.nr. 735. Brunav.nr. 925.
Grunnflötur hússins var sagður vera 28,5 fermetrar. Til viðbótar var tæplega þriggja fermetra inngönguskúr.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðf.nr. 735. Brunav.nr. 925.
Ekki er ljóst hvort Sveinbjörn hafi búið í húsinu en það hefur þá ekki verið lengi því í manntali 1906 búa þar hjónin Gísli Eyjólfsson (1856-1933) járnsmiður og Sigríður Halldórsdóttir (1853-1938) ásamt þremur börnum sínum.3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík og Seltjarnarnesi 1906.
Þau Ingibjörg Örnólfsdóttir (1862-1939) og Guðmundur Helgason (1870-1952) togarasjómaður og daglaunamaður gengu í hjónaband árið 1908. Þau bjuggu lengst af í snotra húsinu við Vitastíg 15. Heimili þeirra þótti „… mjög aðlaðandi og átti húsfreyjan mikinn þátt í að prúða það á allan hátt. Hún var frábærlega vel verki farin og munu flestir, sem þar komu dást að hinum mikla útsaum og fegurð er þar blasir við.“4Minningarorð um Ingibjörgu Örnólfsdóttur (1939, 23. febrúar). Morgunblaðið, 26. árg., 45. tbl., bls. 6. Þau hjón bjuggu að Vitastíg 15 þegar Ingibjörg lést árið 1939 og bjó Guðmundur þar eitthvað lengur.5Sjötugur: Guðmundur Helgason (1941, 13. janúar). Vísir, 31. árg., 9. tbl., bls. 4.
Árið 1935 brann húsið númer 46 til kaldra kola, en húsið stóð rétt norðan við Vitastíg 15. Jafnframt barst eldur í húsin númer 47 og 48 við Grettisgötu og númer 14 og 15 við Vitastíg. Skemmdir urðu miklar á öllum þessum húsum.6Stórbruni á Grettisgötu í gær (1935, 18. apríl). Morgunblaðið, 22. árg., 91. tbl., bls. 3.
Árið 1979 þurfti húsið við Vitastíg 15 að víkja fyrir nýbyggingu. Þá eignaðist Katrín Briem (1945-2016) húsið fyrir milligöngu Sigurðar Harðarsonar arkitekts gegn því að hún fjarlægði það. Þá var húsið flutt austur að Stóra-Núpi 2 í Skeiða- og Gnúpverjahreppi, þar sem það stendur enn og auðséð að vel er hlúð að því. Gamla bíslagið var rifið af húsinu áður en það var flutt og nýtt og stærra bíslag byggt þegar austur var komið.7Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Stgr. 1.190.1 Vitastigur, Grettisgata, Barónsstígur, Njálsgata. Reykjavík. Skýrslur Árbæjarsafns nr. 84; Brynhildur Briem (2026, 11. september). Tölvupóstur.
Flutningur hússins gekk hálf brösuglega. Reiknað hafði verið út að húsið mundi sleppa undir Ölfusárbrúna við Selfoss, en þegar til kom rakst reykháfurinn í efri hluta brúarinnar og rífa þurfti hann af húsinu svo það kæmist yfir brúna. Ástæðan fyrir þessu kom svo í ljós, brúargólfið hafði verið malbikað svo oft að það hafði hækkað um þá sentimetra sem um munaði. Þegar austur kom var húsið sett á tunnur því grunnurinn var ekki tilbúinn og ekki komið leyfi fyrir að setja húsið niður. Seinna fékkst það leyfi og húsið var fært á núverandi stað, einangarað og skipt um járn. Þannig stóð það þegar systur Katrínar, þær Brynhildur og Ólöf, eignuðust húsið árið 1995.8Brynhildur Briem (2026, 17. september). Tölvupóstur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 30. september, 2026
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðf.nr. 735. Brunav.nr. 925. ↩︎
- 2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðf.nr. 735. Brunav.nr. 925. ↩︎
- 3Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Manntal í Reykjavík og Seltjarnarnesi 1906. ↩︎
- 4Minningarorð um Ingibjörgu Örnólfsdóttur (1939, 23. febrúar). Morgunblaðið, 26. árg., 45. tbl., bls. 6. ↩︎
- 5Sjötugur: Guðmundur Helgason (1941, 13. janúar). Vísir, 31. árg., 9. tbl., bls. 4. ↩︎
- 6Stórbruni á Grettisgötu í gær (1935, 18. apríl). Morgunblaðið, 22. árg., 91. tbl., bls. 3. ↩︎
- 7Nikulás Úlfar Másson og Helga Maureen Gylfadóttir (2001). Húsakönnun. Stgr. 1.190.1 Vitastigur, Grettisgata, Barónsstígur, Njálsgata. Reykjavík. Skýrslur Árbæjarsafns nr. 84; Brynhildur Briem (2026, 11. september). Tölvupóstur. ↩︎
- 8Brynhildur Briem (2026, 17. september). Tölvupóstur. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 30. september, 2026
