Heimild: Árni Sigurjónsson (1979, 1. júlí). Áfram að markinu! Bjarmi, 73. árg., 7.-8. tbl., bls. 14.
Heimild: Árni Sigurjónsson (1979, 1. júlí). Áfram að markinu! Bjarmi, 73. árg., 7.-8. tbl., bls. 14.

Þverásbyggð 24, Drengjaborg, Stóra-Fjalli, Borgarbyggð

Heiti: Drengjaborg
Byggingarár: < 1924
Upphafleg notkun: Garðskúr / Samkomuhús
Fyrsti eigandi: KFUM (Kristilegt félag ungra manna) ?
Aðrir eigendur:
1980: Tvenn hjón frá Akranesi
1990: Sigurbjörg Sæmundsdóttir
Flutt:

1953 að Langagerði 1, Reykjavík

Aftur flutt:
≈1964 í Vatnaskóg, Svínadal,Hvalfjarðarsveit
≈ 1980 Þverásbyggð 24 í landi Stóra- Fjalls, Borgarfirði
Hvernig flutt: Flutt í heilu lagi

Saga:

Drengjaborg, Þverásbyggð 24, Borgarfirði, árið 2017. Ljósm.: Fasteignasalan Hákot. Sótt 11. september 2026 af https://www.facebook.com/photo?fbid=1442163939199833&set=pcb.1442164379199789&locale=is_IS

 

Í Alfræði Reykjavíkur sem Guðjón Friðriksson sagnfræðingur hefur tekið saman segir um hús sem þar er nefnt Drengjaborg:

Drengjaborg. Hús KFUM nálægt Þvottalaugunum í Laugardal. Þar var útibú frá Barnaskóla Reykjavíkur 1924-1927. Síðar var húsið flutt þar sem nú eru gatnamót Kirkjuteigs og Reykjavegar og í þvi var rekið æskulýðsstarf á vegum KFUM frá árinu 1942. …1Guðjón Friðriksson (2015, 23. september). Alfræði Reykjavíkur. Sótt 13. ágúst 2026 af Alfræði Reykjavíkur | Guðjón Friðriksson.

KFUM hafði skika við Þvottalaugarnar í Laugardal til að stunda jarðrækt og var húsið notað sem nokkurs konar garðhús í upphafi auk þess að vera fundarstaður KFUM-drengjanna í nágrenninu. Höfundi hefur hvorki tekist að finna heimildir um hvenær húsið var byggt né hver gerði það, en gera má ráð fyrir að fyrsti eigandi þess og húsbyggjandi hafi verið Kristilegt félag ungra manna (KFUM).

Við Kirkjuteig var húsið stækkað um helming og notað þar í nokkur ár. Þegar samtökin byggðu nýtt hús við Kirkjuteig fyrir starf Laugarnesdeildar KFUM og K var litla timburhúsið sem hafði verið notað fyrir starfið og kallað Drengjaborg flutt á lóð, sem félagið hafði fengið á horni Langagerðis og Réttarholtsvegar. Hús þetta þótti allt of ófullkominn aðbúnaður og var því reist nýtt hús fyrir starfsemina við Langagerði 1 um 1964. Þá var Drengjaborg flutt í Vatnaskóg í Svínadal í Hvalfjarðarsveit þar sem KFUM rak sumarbúðir. Þar var húsið notað sem geymsla við íþróttavöllinn.2KFUM og KFUK. Ártöl í sögu KFUM og KFUK. Sótt 13. ágúst 2026 af https://kfum.is/um-okkur/saga-felagsins/; Árni Sigurjónsson (1979, 1. júlí). Áfram að markinu! Bjarmi, 73. árg., 7.-8. tbl., bls. 1 og 14-15; Félagshús K.F.U.M. & K.F.U.K (1970, 1. apríl). Bjarmi, 64. árg., 4. tbl., bls. 20;  Þórður Möller yfirlæknir – Minning (1975, 7. ágúst). Morgunblaðið, 62. árg., 176. tbl., bls. 11.

Á vef KFUM og KFUK kemur fram að eftir að hætt var að nota húsið í Vatnaskógi var það selt og gert að sumarbústað í Borgarfirði.3KFUM og KFUK. Bjarni Ólafsson sæmdur Gullmerki Skógarmanna. Sótt 13. ágúst 2026 af Bjarni Ólafsson sæmdur Gullmerki Skógarmanna – KFUM og KFUK á Íslandi.

Það voru tvenn hjón sem búsett voru á Akranesi sem keyptu húsið um 1980 og settu það niður á lóðinni Þverásbyggð 24 í landi Stóra-Fjalls í Borgarbyggð, þar sem húsið stendur enn. Húsið var flutt í heilu lagi á flutningabíl í Borgarfjörðinn. Árið 1990 keypti Sigurbjörg Sæmundsdóttir húsið. Hún lét byggja bíslag við húsið. Hún kallaði hús sitt Drengjaborg. Hún átti húsið til 2018.

Ekki er loku fyrir það skotið að húsið hafi staðið á fjórða staðnum í Reykjavík áður en það var flutt í Vatnaskóg, en ekki hafa fundist skriflegar heimildir um það.4Sæmundur Óskar Ólason (2026, 26. ágúst). Munnleg heimild.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. september, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. september, 2026