Una Gísladóttir (1854-1924) og sonur hennar Erlendur Hafsteinn Guðmundsson (1892-1947). Sótt 10. september 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/2568453/
Una Gísladóttir (1854-1924) og sonur hennar Erlendur Hafsteinn Guðmundsson (1892-1947). Sótt 10. september 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/2568453/

Hús Guðmundar borgara Jónssonar, Blönduósi

Heiti: Hús Guðmundar Jónssonar
Byggingarár: 1881
Horfið: ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Guðmundur Jónsson og Una Gísladóttir
Aðrir eigendur:
1885: Jósef Einarsson
Flutt:

1887 til Akureyrar

Saga:

Árið 1881 byggði Guðmundur borgari Jónsson (1851-1899) veglegt hús á Blönduósi. Guðmundur var hómópati sem hugðist stunda lyfsölu og hafði keypt mikið magn lyfja í þeim tilgangi. Þetta framtak var þó ekki litið hýru augu, því héraðslæknirinn sem sat á Sauðárkróki kærði hann fyrir ólöglega lyfsölu árið eftir og hrökklaðist þá Guðmundur slippur og snauður frá Blönduósi, fyrst til Stykkishólms og síðar til Reykjavíkur. Húsið var selt á uppboði að ósk Guðmundar árið 1885, en andvirði þess nægði engan veginn fyrir skuldum Guðmundar sem voru aðallega við C. W. Salomons í Kaupmannahöfn. Þá er húsið sagt 12 x 8 álnir með gólfi og lofti, tveimur herbergjum uppi og einu niðri. Húsið var slegið Jósefi Einarssyni (1836-1916) bónda á Hjallalandi, sem reyndar var innheimtumaður uppboðsins. Árið 1887 var húsið tekið niður og flutt til Akureyrar.1Pétur Sæmundsen (1975). Blönduós. Drög að sögu fram um 1940, bls. 427. Í Sigurður Líndal og Stefán Á. Jónsson (ritstjórar), Húnaþing I, bls. 420-473. [Akureyri:] Búnaðarsamband Austur-Húnvetninga; Jón Arason (2010, 17. júlí). Tölvupóstur. Ekki er vitað hver átti húsið þá. Ekki er heldur ljóst hvar húsið var sett niður á Akureyri eða hvort það standi þar enn.

 

Þess má geta að eiginkona Guðmundar var Una Gísladóttir (1854-1924), sú sem Unuhús er nefnt eftir, en þau hjón byggðu það hús árið 1896 eftir að þau fluttu til Reykjavíkur.2Freyja Jónsdóttir (2000, 10. júní). Una í Unuhúsi. Dagur – Íslendingaþættir, 83. og 84. árg., 22. tbl., bls. 2-3.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. september, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Pétur Sæmundsen (1975). Blönduós. Drög að sögu fram um 1940, bls. 427. Í Sigurður Líndal og Stefán Á. Jónsson (ritstjórar), Húnaþing I, bls. 420-473. [Akureyri:] Búnaðarsamband Austur-Húnvetninga; Jón Arason (2010, 17. júlí). Tölvupóstur. ↩︎
  • 2
    Freyja Jónsdóttir (2000, 10. júní). Una í Unuhúsi. Dagur – Íslendingaþættir, 83. og 84. árg., 22. tbl., bls. 2-3. ↩︎

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. september, 2026