Jón Benediktsson yfirlögregluþjónn. Heimild: Minning: Jón Benediktsson, fv. yfirlögregluþjónn (1991, 25. júní). Morgunblaðið, 79. árg., 140. tbl., bls. 36.
Jón Benediktsson yfirlögregluþjónn. Heimild: Minning: Jón Benediktsson, fv. yfirlögregluþjónn (1991, 25. júní). Morgunblaðið, 79. árg., 140. tbl., bls. 36.

Laxagata 9, Akureyri

Byggingarár: 1928
Rifið: 1995
Upphafleg notkun: Skrifstofuhúsnæði
Fyrsti eigandi: Anton Jónsson og Ingvar Guðjónsson
Aðrir eigendur:
1943: Jón Benediktsson
Upphafleg staðsetning:

Hafnarstræti, Akureyri

Fyrst flutt:

1934 að Skipagötu, Akureyri, til bráðabirgða

Flutt:

1943 að Laxagötu 9, Akureyri

Saga:

Árið 1928 byggðu útgerðarmennirnir Anton Jónsson (1879-1958) og Ingvar Guðjónsson (1888-1943) lítið hús við Hafnarstræti á Akureyri, þar sem þeir félagarnir voru með skrifstofuaðstöðu. Húsið stóð skammt fyrir neðan húsið sem nú (2026) er númer 94 við Hafnarstræti (Hamborg).

Haustið 1934 var eigendum hússins gert að fjarlægja það. Sú skipun kom ekki á óvart því strax í upphafi var ljóst að húsið var þarna til bráðabirgða og ekki gert ráð fyrir að það fengi að vera til frambúðar á þessari dýrmætu lóð við sjálfa höfnina.

Þá fékk húsið bráðabirgðastöðuleyfi við Skipagötu svo líklega hefur húsið ekki verið fært langt.  „En þaðan var hús þeirra Antons og Ingvars flutt árið 1943 út í Laxagötu. Eigandi þess var þá Jón Benediktsson [1984-1991] yfirlögregluþjónn en hann bjó í húsinu ævina á enda.“1Jón Hjaltason (2004). Saga Akureyrar. IV. bindi. Vályndir tímar 1919-1940, bls. 131. Akureyri: Akureyrarbær.

Hús Jóns númer 9 við Laxagötu, nyrsta húsið við götuna og stóð þar sem Laxagata og Smáragata mætast.

Jón hóf störf í lögreglunni á Akureyri árið 1930, varð yfirlögregluþjónn fimm árum síðar og starfaði um þrjátíu ára skeið í lögreglunni. Áður hafði hann unnið við bókhald og kennt bókfærslu, stundað útgerð og sinnt tungumálakennslu. Hann var ritari í Bæjarþingi Akureyrar um langt árabil, hætti ekki fyrr en hann var að nálgast níræðisaldurinn. Jón var vel hagmæltur og gaf út tvær ljóðabækur. Auk þess lék hann á mörg hljóðfæri og samdi sönglög. Hann bjó alla tíð einn í húsi sínu við Laxagötu og sá þar um sig sjálfur.2Minning: Jón Benediktsson, fv. yfirlögregluþjónn (1991, 25. júní). Morgunblaðið, 79. árg., 140. tbl., bls. 36.

Í júlí 1995 fól bæjarráð Akureyrar bæjarverkfræðingi að láta rífa húsið að Laxagötu 9 þegar það losnaði úr leigu. Húsið hvarf af sjónarsviðinu skömmu síðar.3Akureyri: Bæjarmálapunktar (1995, 14. júlí). Dagur, 78. árg., 133. tbl., bls. 3; Arnór Bliki Hallmundsson (2015, 23. september). Hús dagsins: Laxagata 6 og Laxagata 7. Sótt 7. september 2026 af Hús dagsins: Laxagata 6 og Laxagata 7 – arnorbl.blog.is.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 7. september, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 7. september, 2026