Sólvellir 8, Stokkseyri
1983 að Sólvöllum 8, Stokkseyri
Saga:
„Aftanköld er upphaflega skemma, er Jón Adólfsson í Grímsfjósum byggði aftan við bæinn á Stokkseyri á árunum 1860-65, þá er hann fór að verzla, sem stóð þó í skamma hríð. Nafnið var dregið af staðsetningu skemmunnar og því, að húsið þótti kalt. Það kemur fyrst fyrir í húsvitjun árið 1884 og bjó þar þá og lengi síðan Einar Ólafsson, áður bóndi á Grjótlæk. Árið 1900 skírði hann bæ sinn upp og kallaði Varmadal.“1Guðni Jónsson (1952). Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi, bls. 378. Reykjavík: Stokkseyringafélagið í Reykjavík.
Varmidalur brann í Stokkseyrarbrunanum mikla árið 1926 og var þá byggt nýtt íbúðarhús. Aftanköld eða Varmidalur stóð þar sem í dag (2026) er bílastæði milli húsanna númer 6 og 10 við Hafnargötu, austan við frystihúsið Hólmaröst, þar sem nú (2026) er rekin Menningarverstöð.2Edda Linn Rise, Guðlaug Vilbogadóttir og Guðný Zoëga (2005, júlí). Fornleifaskráning vegna deiliskipulags við Hafnargötu á Stokkseyri, bls. 16-17. Eyrarbakka: Byggðasafn Árnesinga.
Árið 1983 var Varmidalur fluttur á lóðina númer 8 við Sólvelli á Stokkseyri. Um þann flutning sá Sigurjón Jónsson smiður. Þá var einnig byggt við húsið. Þar stendur húsið enn og hefur núverandi eigandi, Hlynur Óskarsson, byggt aftur við það.3Guðmundur L. Hafsteinsson (2010). Stokkseyri. Byggða- og húsakönnun 2010, bls. 38. Sveitarfélagið Árborg; Hlynur Óskarsson (2026, 24. júní). Tölvupóstur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 27. júlí, 2026
Heimildaskrá
- 1Guðni Jónsson (1952). Bólstaðir og búendur í Stokkseyrarhreppi, bls. 378. Reykjavík: Stokkseyringafélagið í Reykjavík. ↩︎
- 2Edda Linn Rise, Guðlaug Vilbogadóttir og Guðný Zoëga (2005, júlí). Fornleifaskráning vegna deiliskipulags við Hafnargötu á Stokkseyri, bls. 16-17. Eyrarbakka: Byggðasafn Árnesinga. ↩︎
- 3Guðmundur L. Hafsteinsson (2010). Stokkseyri. Byggða- og húsakönnun 2010, bls. 38. Sveitarfélagið Árborg; Hlynur Óskarsson (2026, 24. júní). Tölvupóstur. ↩︎
Deila færslu
Síðast uppfært 27. júlí, 2026

