Stekkjarholt, Birtingaholti, Hrunamannahreppi
Saga:
Um hús sem byggt var árið 1929 við Fálkagötu 1 í Reykjavík segir í húsakönnun sem gerð var á Grímsstaðaholtinu og nágrenni árið 2008:
Um er að ræða timburhús sem áður stóð á lóðinni Fálkagötu 1. Leyfi fékkst fyrir byggingu þess í mars 1929 og það var fyrst virt í júní 1929, sem nýtt verslunarhús, og var þá fullbyggt. Húsið byggði Ögmundur Hansson Stephensen [1874-1969], … Þetta var einlyft hús með risi og kjallara, byggt úr bindingi og klætt bárujárni á veggjum og þaki. Á aðalhæðinni var sölubúð með skápum, borðum og skúffum, auk íbúðarherbergis. Þar rak Ögmundur verslun um skeið. Síðar var þarna prentsmiðjan Dögun sem Stefán sonur Ögmundar rak og prentaði m.a. Straumrof eftir Halldór Laxness, Vort daglega brauð eftir Vilhjálm frá Skálholti, Sovétvininn og fleiri rit. Síðast mun hafa búið í þessu húsi Sigurður Guðmundsson [1912-1973] ritstjóri Þjóðviljans, ásamt barnmargri fjölskyldu sinni. Í maí 1966 fékkst leyfi til að byggja nýtt íbúðarhús úr steinsteypu á lóðinni og var gamla húsið þá tekið upp og flutt austur að Birtingaholti í Hreppum og gert að sumarbústað. Núverandi hús á lóðinni var fullbyggt í febrúar 1968.1Drífa Kristín Þrastardóttir, Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008). Húsakönnun. Grímsstaðaholtið og nágrenni, bls. 126. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 140.
Í húsakönnuninni kemur fram að Þorleifur Eyjólfsson (1886-1968) arkitekt hafi teiknað húsið.2Drífa Kristín Þrastardóttir, Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008), bls. 126
Ögmundur bjó ásamt eiginkonu sinni, Ingibjörgu Þorsteinsdóttur (1975-1943) í Hólabrekku í Grímsstaðaholti (Grímshaga 2). Þar stunduðu þau búskap og um nokkurt skeið rak hann verslun. En aðalatvinna Ögmundar var akstur, fyrst með hestvögnum og síðar vörubifreiðum. Hann var með fyrstu mönnum sem hófu atvinnurekstur með vörubílum.3Minning: Ögmundur Hansson Stephensen. Hólabrekku (1970, 14. janúar). Íslendingaþættir Tímans, 3. árg., 1. tbl., bls. 17-18.
Eiginkona Sigurðar ritstjóra var Ásdís Þórhallsdóttir (1922-2001) Þau gengu í hjónaband árið 1945 og eignuðust fimm börn. Þau bjuggu allan sinn búskap á Fálkagötu 1. Hús þeirra Sigurðar og Ásdísar þurfti að víkja fyrir byggingu fjölbýlishúss á lóðinni og þangað fluttu þau þegar það var tilbúið og gáfu gamla húsið þá hjónunum Helga Skúlasyni (1933-1996) og Helgu Bachmann (1931-2011) sem bæði voru þekktir leikarar.4Hann hefði séð eftir því að taka ekki tilmælum félaganna (1986, 11. október). Þjóðviljinn, Afmælisblað, bls. 4-5. Ásdís lýsti húsakynnum við blaðaviðtali sem tekið var við hana árið 1986:
Þið bjugguð mjög þröngt hérna á Fálkagötu eitt sem var?
– Já þetta voru ekki nema tvö lítil herbergi og lítið eldhús. Stundum þegar verið var að tala um það hve þröngt við byggjum sögðum við sem svo að við ættum ekkert nema börn og bækur. En það var ósköp gott að búa í litlu húsi þótt maður gæti varla þver- fótað fyrir krökkum, gestum og bókastöflum.
Þið gáfuð svo þetta hús?
– Já, þau fengu það Helgi Skúlason og Helga Bachman, það var flutt í heilu lagi austur í Birtingaholt og notað sem sumarbústaður. Brotnaði ekki einu sinni í því gluggi á leiðinni.5Hann hefði séð eftir því að taka ekki tilmælum félaganna (1986, 11. október).
Það voru hjónin Helgi og Helga sem fluttu húsið austur í Birtingaholt en þaðan var Helgi ættaður. Bústaðurinn var kallaður Stekkjarholt. Hann var sumarhús fjölskyldunnar allt til ársins 1984 eða 1985 þegar þau keyptu einingarhús og fluttu þangað. Þá var gamla húsið “jarðað” enda orðið nokkuð laskað.6Helga Vala Helgadóttir (2026, 15. mars). Tölvupóstur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. júní, 2026
Heimildaskrá
- 1Drífa Kristín Þrastardóttir, Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008). Húsakönnun. Grímsstaðaholtið og nágrenni, bls. 126. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 140.
- 2Drífa Kristín Þrastardóttir, Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2008), bls. 126
- 3Minning: Ögmundur Hansson Stephensen. Hólabrekku (1970, 14. janúar). Íslendingaþættir Tímans, 3. árg., 1. tbl., bls. 17-18.
- 4Hann hefði séð eftir því að taka ekki tilmælum félaganna (1986, 11. október). Þjóðviljinn, Afmælisblað, bls. 4-5.
- 5Hann hefði séð eftir því að taka ekki tilmælum félaganna (1986, 11. október).
- 6Helga Vala Helgadóttir (2026, 15. mars). Tölvupóstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 2. júní, 2026
