Hof 3, Norðfirði
Sunnuhvoll hífður á nýjan grunn á Hofi í Norðfirði. Ljósm.: Sveinn Guðmundsson. Sótt 11. maí 2026 af Facebook.
Hof í Norðfirði. Ljósm.: Baldvin Baldvinsson.
Saga:
Í skýrslunni Byggingarár húsa í Neskaupstað kemur fram að húsið Sunnuhvoll hafi verið byggt við Nesgötu 13, Neskaupstað, árið 1926. Í sóknarmannatali fyrir Nessókn er Alfons Pálmason (1899-1986) skráður til heimilis í Sunnuhvoli á árunum 1926 til 1929 ásamt eiginkonu sinni Sigrúnu Stefánsdóttur (1903-1981) (Hann er ýmist skráður Alfons Ágúst Pálmason eða Ágúst Alfons, sem mun vera rétt. Alfons rak verslun og var framkvæmdastjóri Pöntunarfélags alþýðu í Neskaupstað um tíma. Hann var einnig ritari í fyrstu stjórn Sósíalistafélags Neskaupstaðar og sat um skeið í bæjarstjórn. Meðan Alfons bjó í húsinu var það nefnt eftir honum.1Harpa Grímsdóttir (1998, febrúar). Byggingarár húsa í Neskaupstað, bls. 22. Reykjavík: Veðurstofa Íslands; Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Nessókn; Pöntunarfélag alþýðu tuttugu ár (1952, 6. febrúar). Þjóðviljinn, 17. árg., 29. tbl., bls. 8; Jóhannes Stefánsson (1953, 14. nóvember). 1938 – 13. nóvember – 1953 Sósíalistafélag Neskaupstaðar. Austurland, 37. tbl., bls. 3; Ágúst A. Pálmason (1981, 23. desember). Fransmannaöldin á Norðfirði. Austurland, 31. árg., 45. tbl., bls. 3.
Lengst bjuggu þó í húsinu hjónin Óskar Björnsson (1924-2009) og Brigitte Björnsson (fædd Czubaiko, 1928-2013) ásamt fimm sonum. Óskar byrjaði snemma til sjós og stundaði einnig almenna verkamannavinnu þar til hann gerðist húsvörður við Barnaskólann í Neskaupstað árið 1964 og gegndi hann því starfi til 1994 þegar hann hætti fyrir aldurs sakir.285 ára í dag: Óskar Björnsson (2009, 12. mars). Dagblaðið Vísir, 99. árg., 44. tbl., bls. 32. Lengst af var því ekki langt fyrir Óskar að fara í vinnuna því hús hans var svo gott sem á skólalóðinni.
Árið 2006 keypti Fjarðabyggð húsið af Óskari og Brigitte og árið eftir seldi sveitarfélagið þeim Jófríði Gilsdóttur og Þorfinni Hermannsyni eignina til brottfluttnings eða niðurrifs.
Þau fluttu húsið inn að Hofi í Norðfirði sama ár þar sem það stendur enn í góðu yfirlæti.3Upplýsingar úr fasteignaskrá; Bryndís Zoëga (2024, 30. janúar). Tölvupólstur.
Leitarorð: Norðfjörður – Neskaupstaður
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 11. maí, 2026
Heimildaskrá
- 1Harpa Grímsdóttir (1998, febrúar). Byggingarár húsa í Neskaupstað, bls. 22. Reykjavík: Veðurstofa Íslands; Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Nessókn; Pöntunarfélag alþýðu tuttugu ár (1952, 6. febrúar). Þjóðviljinn, 17. árg., 29. tbl., bls. 8; Jóhannes Stefánsson (1953, 14. nóvember). 1938 – 13. nóvember – 1953 Sósíalistafélag Neskaupstaðar. Austurland, 37. tbl., bls. 3; Ágúst A. Pálmason (1981, 23. desember). Fransmannaöldin á Norðfirði. Austurland, 31. árg., 45. tbl., bls. 3.
- 285 ára í dag: Óskar Björnsson (2009, 12. mars). Dagblaðið Vísir, 99. árg., 44. tbl., bls. 32.
- 3Upplýsingar úr fasteignaskrá; Bryndís Zoëga (2024, 30. janúar). Tölvupólstur.
Deila færslu
Síðast uppfært 11. maí, 2026



