Loftmynd frá 1958. Sótt 5. maí 2026 af map.is.
Loftmynd frá 1958. Sótt 5. maí 2026 af map.is.

Hermannshús, Ólafsfirði

Heiti: Hermannshús - Litla Lander
Byggingarár: 1925
Horfið: ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Hermann Þorgrímsson
Aðrir eigendur:
1944: Ólafsfjarðarkaupstaður ?
Upphafleg staðsetning:

Aðalgata 16a, Ólafsfirði

Flutt:

Um 1960 vestur fyrir ós Ólafsfjarðarár

Saga:

Um Hermannshús á Ólafsfirði segir í bókinni Hundrað ár í Horninu eftir Friðrik G. Olgeirsson:

Árið 1925 byggði Hermann Þorgrímsson [1877-1943] lítið timburhús, nánast kofa, sunnan við byggðina sem þá var komin. Húsið kallaði hann Hermannshús. Var oft glatt á hjalla hjá Hermanni næstu árin og kölluðu gárungarnir húsið Litla Lander og var þar höfðað til stærðar hússins og spilamennsku sem þar fór fram.1Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944 þéttbýlismyndun, fiskveiðar og fiskvinnsla, bls. 139. Ólafsfirði: Ólafsfjarðarkaupstaður.

Í sóknarmanntölum er Hermann skráður til heimilis í Hermannshúsi, en árið 1939 hefur húsið fengið skráninguna Aðalgata 16a. Hermann er ýmist skráður sem lausamaður, verkamaður eða tómhúsmaður.2Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Hermann Þorgrímsson. Ólafsfjarðarprestakall.

Húsið stóð þar sem verslunin Valberg var reist við Aðalgötu 16 um 1960 og þurfti Hermannshús að víkja fyrir hinu nýja stórhýsi líkt og húsið Sæbali, sem lesa má um hér: Kirkjuvegur 19, Sæbali, Ólafsfirði – Húsaflutningar. Þá var Hermannshús flutt vestur fyrir Ósinn á tún sem Guðmundur Þorsteinsson (Mummi í Mummabúð) átti, skammt frá veginum að Héðinsfjarðargöngunum og notað þar sem áhaldahús.3Friðrik G. Olgeirsson (2026, 5. maí). Tölvupóstur. Væntanlega hefur húsið þá verið komið í eigu Ólafsfjarðarkaupstaðar. Ekki er vitað hvenær húsið hvarf af sjónarsviðinu.

 

Leitarorð: Ólafsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Friðrik G. Olgeirsson (1984). Hundrað ár í Horninu. Saga Ólafsfjarðar 1883-1944 þéttbýlismyndun, fiskveiðar og fiskvinnsla, bls. 139. Ólafsfirði: Ólafsfjarðarkaupstaður. ↩︎
  • 2
    Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Hermann Þorgrímsson. Ólafsfjarðarprestakall. ↩︎
  • 3
    Friðrik G. Olgeirsson (2026, 5. maí). Tölvupóstur. ↩︎

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 5. maí, 2026