Þorvaldsstaðir, Breiðdal
1940 að Þorvaldsstöðum, Breiðdal
Saga:
Árið 1918 fór fram fasteignamat á húsi sem nefndist Garður í Búðaþorpi, Fáskrúðsfirði, sem sagt var í eigu Stefáns Péturs Jakobssonar (1880-1940). Húsið var sagt tvílyft timburhús, byggt árið 1906. Kjallari var undir húsinu. Það var allt járnvarið að utan. Vatnsleiðsla var í húsinu. Grunnflötur þess var rúmir 28 fermetrar og hæð þess í ris var 6,28 m.1Þjóðskjalasafn Íslands. Búðaþorp í Fáskrúðsfirði. Fasteignamat 1916-1918.
Húsið stóð við Hafnargötu á Fáskrúðsfirði, fyrir utan (austan við) húsið Félagsgarð, sem enn stendur á lóð númer 8 við götuna.2Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 11. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa.
Höfundi hefur ekki tekist að finna upplýsingar um hver byggði húsið né hver bjó í því fyrstu árin. Hugsanlega vegna þess að skipt var um nafn á húsinu, en árið 1917 eru Stefán Jakobsson fyrst skráður þar til heimilis ásamt eiginkonu sinni, Þorgerði Sigurðardóttur (1893-1982), en þau gengu í hjónaband árið 1915. Hjá þeim bjó ársgömul dóttir þeirra, foreldrar Stefáns, vinnukona með ungan son og léttingur á fermingaraldri, alls 8 manns.
Stefán stundaði útgerð og verslun og einnig voru þau hjón með talsverðan búskap. Oft var mannmargt á heimilinu, stundum jafnvel 20 manns, en síðasta árið, þ.e. árið 1937, eru 12 skráðir þar heimilisfastir.
Um tíma mun verslunin Concondia (Concordia) hafa verið rekin í kjallara hússins, en ekki hefur tekist að finna nánari upplýsingar um hana.
Árið 1938 fluttu þau Stefán og Þorgerður til Hjalteyrar við Eyjafjörð þar sem Stefán fékk vinnu við síldarverksmiðjuna. Tveimur árum síðar lést hann af völdum vinnuslyss sem hann varð fyrir í verksmiðjunni.
Síðasta árið sem þau eru skráð í húsinu, þ.e. 1937, er 12 heimilisfastir þar.
Árið 1938 eru tvær fjölskyldur skráðar til heimilis í Garði, en það er síðasta árið sem þar er einhver skráður til heimilis.[4]3Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Kolfreyjustaðarsókn; Þorgerður Sigurðardóttir – Minning (1982, 23. október). Morgunblaðið, 69. árg., 236. tbl., bls. 35; Slys (1940, 5. júlí). Íslendingur, 26. árg., 28. tbl., bls. 3; Kristín Ágústsdóttir (2005, október), bls. 11.

Guðný Jónasdóttir (1891-1956) og Jón Björgólfsson (1881-1960). Heimild: 75 ára: Jón Björgólfsson. Sótt 24. apríl 2026 af https://timarit.is/page/1025669?iabr=on.
Árið 1940 var ákveðið að flytja húsið suður á Þorvaldsstaði í Breiðdal. Þar voru þá ábúendur hjónin Jón Björgólfsson (1881-1960) og Guðný Jónasdóttir (1891-1956). Enn var húsið tvílyft með 10 herbergjum, enda hefur ekki veitt af, því þau hjón eignuðust 13 börn. Þar var búið í húsinu til ársins 1964 en þá kviknaði í húsinu og það brann til kaldra kola. Það var lán í óláni að verið var að byggja nýtt íbúðarhús þegar þetta gerðist, en þar sem veður var gott barst eldurinn ekki í nýja húsið sem stóð þó aðeins nokkra metra frá gamla húsinu.4Albert Eiríksson (2026, 17. apríl). Munnleg heimild; Sveitir og jarðir í Múlaþingi. III. bindi (1976). Þorvaldsstaðir, bls. 315-317; Bær brennur (1964, 11. mars). Morgunblaðið, 51. árg., 59. tbl., bls. 28.
Leitarorð: Fáskrúðsfjörður – Breiðdalur
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2026
Heimildaskrá
- 1Þjóðskjalasafn Íslands. Búðaþorp í Fáskrúðsfirði. Fasteignamat 1916-1918.
- 2Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 11. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa.
- 3Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Kolfreyjustaðarsókn; Þorgerður Sigurðardóttir – Minning (1982, 23. október). Morgunblaðið, 69. árg., 236. tbl., bls. 35; Slys (1940, 5. júlí). Íslendingur, 26. árg., 28. tbl., bls. 3; Kristín Ágústsdóttir (2005, október), bls. 11.
- 4Albert Eiríksson (2026, 17. apríl). Munnleg heimild; Sveitir og jarðir í Múlaþingi. III. bindi (1976). Þorvaldsstaðir, bls. 315-317; Bær brennur (1964, 11. mars). Morgunblaðið, 51. árg., 59. tbl., bls. 28.
Deila færslu
Síðast uppfært 29. apríl, 2026