Templarinn (Búðavegur 8), Fáskrúðsfirði er lengst til hægri á þessari mynd. Dökka húsið vinstra megin við hann (innan við) er Hamborg. Myndin er tekin um 1925, stuttu eftir að húsið var reist og enn ekki búið að klæða það nema með tjörupappa. Ljósm.: Hallgrímur Sigtryggsson. Sótt 17. apríl 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/1444520/
Templarinn (Búðavegur 8), Fáskrúðsfirði er lengst til hægri á þessari mynd. Dökka húsið vinstra megin við hann (innan við) er Hamborg. Myndin er tekin um 1925, stuttu eftir að húsið var reist og enn ekki búið að klæða það nema með tjörupappa. Ljósm.: Hallgrímur Sigtryggsson. Sótt 17. apríl 2026 af https://sarpur.is/is/collection/item/1444520/

Brimnesgerði, Fáskrúðsfirði

Heiti: Hamborg - Brimnesgerði
Byggingarár: 1925
Brann: 2000-2010
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Finnbogi Jóhann Indriðason og Björg Lilja Jónsdóttir
Aðrir eigendur:
1933: ?
1936: Árni Gíslason og Jónína Sigurðardóttir
1965: Gunnlaugur Árnason

Saga:

Í Sóknarmanntali Kolfreyjustaðarsóknar árið 1925 er í fyrsta sinn skráðir íbúar í húsinu Hamborg í Fáskrúðsfirði. Það var Finnbogi Jóhann Indriðason (1897-1970) og Björg Lilja Jónsdóttir (1909-2002) ráðskona hans. Þau gengu síðar í hjónaband og eignuðust börn.

Síðasta árið sem íbúar eru skráðir í Hamborg er 1932 og búa þau Jóhann og Björg þar enn og eru nú börn þeirra orðin fimm. Önnur fjölskylda býr einnig í húsinu og eru þar alls skráðir 14 til heimilis.1Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmanntöl. Hamborg. Kolfreyjustaðarsókn.

Árið 1933 fluttu þau hjón Jóhann og Björg með fjölskyldu sína til Akureyrar.2Minning: Freyja Jóhannsdóttir (2012, 24. maí). Morgunblaðið, 100. árg., 121. tbl., bls. 26.

Hamborg stóð neðan við húsið sem nú er númer 10a við Búðaveg (Baldurshaga) á Fáskrúðsfirði og innan við Templarann sem er við Búðaveg 8.3Kristín Ágústsdóttir (2005, október). Byggingarár húsa á Búðum í Fáskrúðsfirði, bls. 12. Unnið fyrir Veðurstofu Íslands. Neskaupstað: Náttúrustofa.

Árið 1936 var húsið flutt í Brimnesgerði, sem er um 5 km austan við ystu hús í Fáskrúðsfjarðarþorpi. Þar hafði íbúðarhúsið brunnið og gripið var til þess ráðs að flytja Hamborg á grunn hússins sem brann, en hann var úr höggnu steinlímdu grjóti. Þá voru hjónin Árni Gíslason (1893-1965) og Jónína Sigurðardóttir (1886-1957) ábúendur í Brimnesgerði. Þegar Árni féll frá árið 1965 tók sonur hans, Gunnlaugur (1919-1995) við búinu. Hann bjó í Brimnesgerði til ársins 1993 þegar hann fór á elliheimili og fór þá jörðin í eyði. Um áratug síðar brann húsið.4Albert Eiríksson (2009, 1. júlí). Sigurrós í Brimnesgerði. Franskir dagar, bls. 6-7; Sveitir og jarðir í Múlaþingi. III. bindi (1976). Brimnesgerði, bls. 210-212. Búnaðarsamband Austurlands; Albert Eiríksson (2026, 17. apríl). Munnleg heimild.

Brimnesgerði í Fáskrúðsfirði um 1975. Ekki verður betur séð en húsið sé klætt svokölluðu steinblikki. Ljósm.: Vilberg Guðnason. Heimild: Sveitir og jarðir í Múlaþingi. III. bindi (1976). Brimnesgerði, bls. 211. Búnaðarsamband Austurlands

 

Leitarorð: Fáskrúðsfjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. apríl, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. apríl, 2026