Hávallagata 55, Reykjavík
Saga:
Í janúar 1904 var virt til brunabóta einloftað timburhús sem Kristján Jónsson hafði byggt á lóð sinni við Kaplaskjólsveg. Lóð þessi fékk síðar númerið 33 við Bræðraborgarstíg. Hús þetta var byggt af bindingi, klætt að utan með plægðum borðum, pappa og járni þar yfir og með járnþaki á plægðri borðasúð með pappa á milli. Innan á binding í útveggjum var lagður pappi. Niðri í húsinu voru 3 íbúðarherbergi, eldhús og einn fastur skápur. Allt var þetta þiljað og herbergi voru með pappír og máluðu striga á veggjum og loftum. Tveir ofnar og ein eldavél var í húsinu. Kjallari var undir öllu húsinu.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðf.nr. 735. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
Í gagnasafni Borgarsögusafns kemur að Guðbjartur Guðbjartsson (1872-1954), vélstjóri á varðskipum, hafi keypti húsið af Kristjáni árið 1912. Í manntali árið 1910 er hann reyndar skráður til heimilis í húsinu ásamt eiginkonu sinni, Halldóru Sigmundsdóttur (1877-1939) og fjórum börnum þeirra hjóna.
Árið 1912 valt leikfang sem barn þeirra var að leika sér að undir rúm. Barnið kveikti á eldspýtu til að leita að leikfanginu undir rúminu. Þá kviknaði í rúminu og af varð nokkur eldur, sem eyðilagði m.a. einn glugga og mála þurfti eitt herbergi. Árið eftir hækkaði Guðbjartur húsið, setti á það port og ris og gerði á því margvíslegar endurbætur. Hann klæddi þá allt húsið að utan með járni, en veggir höfðu áður aðeins verið að litlu leyti járnklæddir.
Í febrúar 1938 var húsið virt á lóðinni númer 55 við Hávallagötu og er þá bæjarsjóður Reykjavíkur eigandi hússins og hafði látið flytja það þessa fáu metra til austurs. Líklega hefur það staðið út í götuna á horni Hávallagötu og Bræðraborgarstígar. Reistur hafði verið nýr kjallari undir húsið við Hávallagötu og nýjar steinsteyptar tröppur komnar við það. Herbergjaskipan var sú sama og áður var, en allt var nýmálað að innan og ýmislegt endurbætt. Í kjallaranum voru tvö geymsluherbergi, þvottahús og miðstöðvarherbergi.
Sama ár gerðu þeir Ólafur Ingimundarson (1899-1973) innheimtumaður og Ingimundur Ólafsson (1864-1943) annars vegar og borgarstjórinn í Reykjavík hins vegar með sér makaskiptasamning um að þeir feðgar fengu húseignina Hávallagötu 55 í skiptum fyrir Bræðraborgarstíg 27 (sem væntanlega hefur einnig verið á skjön við skipulag). Eiginkona Ólafs var Guðrún Ingimundarson (1904-1992) en Guðbjörg Magnúsdóttir (1860-1939) var gift Ingimundi.
Aftur kviknaði í húsinu árið 1955. Þá var allt hreinsað innan úr húsinu og það innréttað upp á nýtt.2Manntal í Reykjavík 1910. 1. hluti: Aðalstræti – Bræðraborgarstígur. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1910/manntal-i-reykjavik-1910-1.-hluti.pdf; Gögn úr gagnasafni Borgarsögusafns; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-06-1937 til 21-04-1942. Aðf.nr. 747. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/747-bok-21-06-1937-til-21-04-1942-adfnr-747.pdf; Manntal í Reykjavík 1938 III. 3. hluti: Grímstaðaholt – Laugarnesvegur. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1931-1940/1938/manntal-i-reykjavik-1938-iii-3.-hluti.pdf.
Á mynd af húsinu, sem tekin var um 1970, sést bíslag á vesturgafli hússins, mjög sérstakt að gerð.3Borgarsögusafn. Myndasafn. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0522. Sótt 5. febrúar 2026 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=H%C3%A1vallagata+55&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDnsOTIMOBQlMgMDUyMi5qcGciLCJwYWdlIjowfQ%3D%3D. Nú er þetta bíslag horfið, en árið 1945 var samþykkt að lengja húsið til vesturs.4Teikningavefur Reykjavíkurvikurborgar. Hávallagata 55. Sótt 5. febrúar 2026 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22H%C3%A1vallagata%2055%22. Gaflsneiðningin, sem setur mikinn svip á húsið hefur fengið að halda sér. Höfundi hefur ekki tekist að finna upphaflegu teikningar af húsinu.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 6. febrúar, 2026
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðf.nr. 735. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/735-bok-02-04-1900-til-13-11-1905-adfnr-735.pdf.
- 2Manntal í Reykjavík 1910. 1. hluti: Aðalstræti – Bræðraborgarstígur. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1906-1910/1910/manntal-i-reykjavik-1910-1.-hluti.pdf; Gögn úr gagnasafni Borgarsögusafns; Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 21-06-1937 til 21-04-1942. Aðf.nr. 747. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/747-bok-21-06-1937-til-21-04-1942-adfnr-747.pdf; Manntal í Reykjavík 1938 III. 3. hluti: Grímstaðaholt – Laugarnesvegur. Sótt 5. febrúar 2026 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Manntol/M_1931-1940/1938/manntal-i-reykjavik-1938-iii-3.-hluti.pdf.
- 3Borgarsögusafn. Myndasafn. Ljósm.: Sveinn Þórðarson. Mynd nr. SÞÓ ÁBS 0522. Sótt 5. febrúar 2026 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=H%C3%A1vallagata+55&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IlPDnsOTIMOBQlMgMDUyMi5qcGciLCJwYWdlIjowfQ%3D%3D.
- 4Teikningavefur Reykjavíkurvikurborgar. Hávallagata 55. Sótt 5. febrúar 2026 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/archives/5000-A%C3%B0aluppdr%C3%A6ttir/?q=%22H%C3%A1vallagata%2055%22.
Deila færslu
Síðast uppfært 6. febrúar, 2026
