Drafnargata 2, Flateyri
Saga:
Árið 1920 var byggt hús á Flateyri, sem síðar var skráð við Túngötu 5b. Þar er nú (2025) hús númer 7 við Túngötu, á horni Túngötu og Oddavegar, sem er framhald af Brimnesvegi.
Húsbyggjandinn og fyrsti eigandi hússins var Steingrímur Árnason (1889-1972). Árið 1920 er hann skráður til heimilis í Steingrímshúsi í Mosvallahreppi, en Flateyri tilheyrði Mosvallahreppi til ársins 1922, þegar til varð Flateyrarhreppur, en nú tilheyra báðir hrepparnir Ísafjarðarbæ. Í Steingrímshúsi bjuggu auk Steingríms Kristín Hálfdánardóttir (1889-1927) kona hans, tvö börn þeirra, tökubarn og vinnukona.1Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fasteignaskrá. Drafnargata 2, Ísafjarðarbæ; Héraðsskjalasafnið Ísafirði. Flateyri, hús og byggð 1928. Sótt 18. september 2025 af https://skjalasafn.isafjordur.is/4308C; Manntal 1920. Sótt 18. september 2025 https://manntal.is/leit/Steingr%C3%ADmsh%C3%BAs/1920/1/1920; Wikipedia. Frjálsa alfræðiritið. Mosvallahreppur. Sótt 18. september 2025 af https://is.wikipedia.org/wiki/Mosvallahreppur#.
Steingrímur byrjaði á sjó vorið sem hann fermdist og þótti sérstaklega laginn við allar vélar.
Um tvítugsaldur gerðist Steingrímur formaður á vjelbát, fyrst á annarra útgerð, en brátt eignaðist hann bátinn sjálfur. Haustið 1914 fluttist hann með bát sinn vestur til Flateyrar við Önundarfjörð og stundaði þaðan veiðar af miklurn dugnaði og kappi. Brátt tók hann að auka útgerð sín á Flateyri og gerðist síðan hinn mesti framkvæmdamaður þar vestra. Í fjelagi við aðra reisti hann fyrsta íshúsið við Önundarfjörð og kom upp á Flateyri hafskipabryggju þeirri, sem þar stendur enn. Árið 1927 fluttist Steingrímur til Reykjavíkur, festi þar kaup á skipi og fjekkst um skeið við vöruflutninga.2Steingrímur Árnason forstjóri sextugur (1949. 31. maí). Morgunblaðið, 36. árg., 121. tbl., bls. 9.
Líklega hefur Guðjón Jóhannesson (1900-1974) eignast húsið um 1927 þegar Steingrímur flutti með fjölskyldu sína til Reykjavíkur. Ásgeir Sigurðsson (1909-1986) og Sólveig Stefanía Bjarnadóttur (1916-2010) keyptu svo húsið árið 1939, sama ár og þau gengu í hjónaband. Þau voru eigendur þess þegar það var flutt.3Dagur Ásgeirsson (2025, 17. september). Spjallþráður í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook.
17. janúar 1957 gerði mikið óveður um alla Vestfirði og varð mikið tjón á Flateyri, eins og lesa má um þessari frétt:

Morgunblaðið, 19. janúar 1957, 44. árg., 15. tbl., bls. 16. Sótt 18. september 2025 af https://timarit.is/page/1308574?iabr=on.
Eftir þessar miklu hamfarir ákváðu eigendur hússins að flytja það ofar á Eyrina og stendur það enn (2025) við Drafnargötu 2 á Flateyri. Síðar var byggt við húsið.
Þegar húsið var flutt voru settir staurar undir húsið og það síðan dregið með gömlum hertrukki. Margir fylgjust áhugasamir með þessum húsaflutningi og börnum fannst mikið til um að fá far með trukknum, eða laumuðu sér jafnvel inn í húsið meðan verið var að flytja það.4Spjallþráður í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook (2025, 17. september).
Árið 1983 sendi þjóðháttadeild Þjóðminjasafnsins út spurningaskrá sem varðaði húsnæði og heimilishætti fólks. Eitt svaranna er frá konu sem fædd var árið 1916. Hún hóf sinn búskap í Steingrímshúsi og átti það þegar það var flutt. Svar hennar, sem er afar áhugavert, má lesa hér í fullri lengd. Hún segir m.a.:
Seinna fluttum við húsið vegna flóða og er það nú Drafnargata 2. Þetta hús er eins og þau voru flest á Flateyri, timburhús með háu risi, járnklætt. Þakið og gluggarnir voru grænmáluð, en húsið sjálft var ljóst. Seinna breyttum við og máluðum gluggana brúna og húsið alhvítt. Tveir gluggar voru á hvorum gafli, en 3 á vestari hliðinni og einn á þeirri austari. Á risinu var 1 gluggi á hvorum gafli, en kvistur að vestan og austanverðu. Gengið var inn að austanverðu. Áður en gengið var inn í sjálft húsið var komið í lítinn skúr. Húsið hefur ekki alltaf staðið þar sem það stendur nú. Það var upphaflega reist á sjávarkambi, en í janúar 1956 eða 57 gerði voðalegt brim og hvassviðri og fór þá allt sem var fyrir framan húsið. Þar var áður steinveggur og bílfært með honum. Um morguninn var allt landið horfið og veggurinn hékk á brúninni. … Ég og krakkarnir fórum yfir í næsta hús. Til að komast á milli urðum við að bíða eftir lagi, eins og sagt var þegar árabátarnir voru að lenda í brimi. Maðurinn minn stóð við húshornið og hélt í hendurnar á strákunum. Svo kallaði hann „komið þið“, þá hlupum við. Það var víða rafmagnslaust vegna flóðanna, en ég átti gamla olíuvél og á þessu elduðum við kjötsúpu ofan í 3 fjölskyldur.5Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Þjóðhættir. Spurningaskrár- Svar nr. 6627/1983-3. Sótt 18. september 2025 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=538918.
Þess má geta að frá aldamótum til dauðadags bjó Úlfar Önundarson (1955-2022) í húsinu við Drafnarstíg 2 og byggði stóran bílskúr við húsið. Þar má eiginlega segja að heil skipasmíðastöð hafi verið til húsa, því þar smíðaði Úlfar fjöldann allan af skipslíkönum, sem afar skemmtilegt var að skoða.

Úlfar Önundarson smáskipasmiður með líkan af Titanic. Heimild: Smíðaði líkan af Titanic. Sótt 19. september 2025 af https://www.mbl.is/frettir/forsida/2010/01/27/smidadi_likan_af_titanic/.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 22. september, 2025
Heimildaskrá
- 1Húsnæðis- og mannvirkjastofnun. Fasteignaskrá. Drafnargata 2, Ísafjarðarbæ; Héraðsskjalasafnið Ísafirði. Flateyri, hús og byggð 1928. Sótt 18. september 2025 af https://skjalasafn.isafjordur.is/4308C; Manntal 1920. Sótt 18. september 2025 https://manntal.is/leit/Steingr%C3%ADmsh%C3%BAs/1920/1/1920; Wikipedia. Frjálsa alfræðiritið. Mosvallahreppur. Sótt 18. september 2025 af https://is.wikipedia.org/wiki/Mosvallahreppur#.
- 2Steingrímur Árnason forstjóri sextugur (1949. 31. maí). Morgunblaðið, 36. árg., 121. tbl., bls. 9.
- 3Dagur Ásgeirsson (2025, 17. september). Spjallþráður í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook.
- 4Spjallþráður í hópnum Flateyri og Flateyringar á Facebook (2025, 17. september).
- 5Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Þjóðhættir. Spurningaskrár- Svar nr. 6627/1983-3. Sótt 18. september 2025 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=538918.
Deila færslu
Síðast uppfært 22. september, 2025


