Kobba Ella hús er lengst til hægri á myndinni. Heimild: Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 176. Útg.: Súðavíkurhreppur.
Kobba Ella hús er lengst til hægri á myndinni. Heimild: Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 176. Útg.: Súðavíkurhreppur.

Kálfavík í Skötufirði, Súðavíkurhreppi

Heiti: Kobba Ella hús - Kálfavík
Byggingarár: 1900-1920 ?
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Jóhannes Jónsson
Aðrir eigendur:
?-1952: Jakob Elíasson og Halldóra Jónsdóttir
1984: Úlfar Önundarson
1994: Hjalti Guðröðsson og Guðrún Valborg Kristinsdóttir
Upphafleg staðsetning:

Aðalgata 1, Súðavík

Fyrst flutt:

1984 að Hattardal í Álftafirði

Aftur flutt:
1994-1995 í Kálfavík í Skötufirði
Hvernig flutt: Fleytt á tunnum og dregið með bát
20250825_182929

Húsið dregið út Álftafjörð í júlí 1994. Ljósm. í eigu Hjalta Guðröðssonar og Guðrúnar Valborgar Kristinsdóttur.

20250825_182649

Húsið að nálgast áfangastað. Ljósm. í eigu Hjalta Guðröðssonar og Guðrúnar Valborgar Kristinsdóttur.

20250825_183055

Húsið í fjörunni í Kálfavík. Ljósm. í eigu Hjalta Guðröðssonar og Guðrúnar Valborgar Kristinsdóttur.

20250825_183435

Húsið komið á undirstöður í Kálfavík. Ljósm. í eigu Hjalta Guðröðssonar og Guðrúnar Valborgar Kristinsdóttur.

Saga:

Við Aðalgötu 1 í Súðavík stendur nú hús þar sem áður var veitingaskáli og bensínsala. Þar stóð áður hús sem erfitt hefur reynst fá að upplýsingar um. Í ritinu Byggingarár húsa í Súðavík segir um húsið:1Svanbjörg Helga Haraldsdóttir (2005, maí). Byggingarár húsa í Súðavík, bls. 17.

Í bók Eiríks P. Jörundssonar um Súðavík segir um ljósmyndina efst á þessari síðu:

Beggabær sem Bergsteinn Ólafsson byggði [rétt fyrir aldamótin 1900] og bjó þar lengi. Húsið til hægri byggði Jóhannes Jónsson og seinna bjó þar Jakob Elíasson og var húsið þá nefnt Kobba Ella húsið. Það var síðar flutt inn í Kálfavík í Skötufirði.2Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 175-176. Útg.: Súðavíkurhreppur.

Ekki hefur tekist að finna upplýsingar um húsbyggjandann, né hvenær húsið var byggt, en gera má ráð fyrir að það hafi verið um aldamótin 1900 eða á fyrstu áratugum 20. aldar.

Jakob Elíasson (1897-1970) kvæntist Halldóru Jónsdóttur (1889-1980) árið 1919. Þau hófu búskap í Hnífsdal. Síðan lá leiðin til Ísafjarðar, þar sem þau bjuggu í mörg ár. Þaðan fluttu þau hjón til Súðavíkur þar sem þau áttu heima til ársins 1952 þegar þau fluttu til Reykjavíkur. Í Súðavík var Jakob fyrst skipstjóri hjá útgerðarmanninum Grími Jónssyni en síðar stofnaði hann eigin útgerð í félagi við aðra.3Jakob Elíasson (1971, 25. janúar). Vesturland, 48. árg., 1. tbl., bls. 4.

Um 1984 þurfti húsið að víkja vegna skipulagsbreytinga. Þá eignaðist Úlfar Önundarson húsið og hafði í hyggju að flytja það á flutningavagni í Hörgshlíð í Mjóafirði í Ísafjarðardjúpi. Í þessum áfanga komst það þó ekki lengra en að Hattardal í Álftafirði, þar sem vagninn gaf sig. Þar stóð húsið í vegkantinum í 10 ár. Þá eignuðust hjónin Hjalti Guðröðsson og Guðrún Valborg Kristinsdóttir húsið.

Í júlí 1994 var húsið híft upp á bíl, settir undir það tveir símastaurar og keyrt niður í fjöru. Þar var húsið tekið af bílnum og það dregið með dráttarvél neðar í fjöruna þannig að flæddi undir það. Búið var að safna saman a.m.k. 100 járntunnum sem voru nú settar á gólfið í húsinu og settar stífur á þær sem náðu að þaki, til þess að koma í veg fyrir að þær flytu upp. Einnig voru tunnur festar við húsið að neðanverðu. Húsið var nú dregið með bát út fjörðinn. Vegna veðurs barst húsið inn í höfnina í Vigur við undrun heimamanna. Þar slitnaði húsið frá bátnum, en með skjótum viðbrögðum tókst að koma því aftur í tog. Síðan var húsið dregið að Kálfavík í Skötufirði. Þegar þangað var komið var húsið dregið með handafli eins langt upp í fjöruna og kostur var en slæmt veður auðveldaði ekki það verk. Til að koma í veg fyrir að húsið færi aftur á flot voru stífurnar sem héldu tunnunum niðri nú slegnar niður og húsið settist á símastaurana sem settir höfðu verið undir það. Húsið var nú dregið með dráttarvél og talíum ofar í fjörukambinn þar sem það var til næsta vors.

Húsið í Kálfavík í ágúst 2025. Ljósm.: Guðjón Jónsson.

Um vorið 1995 var húsið sett upp á undirstöðustaura, sem búið var að koma fyrir. Það var þrautin þyngri og ýmsum ráðum beitt. Settar voru sjófullar tunnur undir húsið þegar búið var að koma því upp á tóft utan við húsið og það dregið með talíum yfir á staurana. M.a. losnaði stór steinn utan við húsið sem talíurnar voru festar við, en hald fékkst í öðrum stærri steini innan við húsið.

Tók nú við endurbygging hússins, settur kvistur og inngönguskúr á miðja vesturhlið hússins. Eigendur hafa lagt sig fram um að endurnýta sem mest af gömlu efni við þá vinnu, t.d. er skorsteinninn úr járnsteyptum skolprörum úr Bolungarvík, hitað upp með gamalli Morsø kamínu og fleira.

Enn stendur húsið í Kálfavík og þar er dvalið öll sumur.4Hjalti Guðröðsson og Guðrún Valborg Kristinsdóttir (2025, 25. ágúst). Munnleg heimild.

 

Leitarorð: Skötufjörður

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. mars, 2026

Heimildaskrá

  • 1
    Svanbjörg Helga Haraldsdóttir (2005, maí). Byggingarár húsa í Súðavík, bls. 17.
  • 2
    Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 175-176. Útg.: Súðavíkurhreppur.
  • 3
    Jakob Elíasson (1971, 25. janúar). Vesturland, 48. árg., 1. tbl., bls. 4.
  • 4
    Hjalti Guðröðsson og Guðrún Valborg Kristinsdóttir (2025, 25. ágúst). Munnleg heimild.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 24. mars, 2026