Magnússkógar, Hvammssveit, Dalabyggð

Heiti: Hótel Búðardalur - Magnússkógar
Byggingarár: 1932-1934
Upphafleg notkun: Hótel
Fyrsti eigandi: Snorri Halldórsson
Aðrir eigendur:
1939: Guðmundur Halldórsson
Upphafleg staðsetning: Miðbraut 6, Búðardal
Flutt: 1939 í Magnússkóga í Hvammssveit, Dalabyggð
Hvernig flutt: Tekið niður

Saga:

Snorri Halldórsson (1911-1983) byggingameistari og forstjóri fæddist og ólst upp í Magnússkógum í Hvammssveit í Dalasýslu (nú Dalabyggð). Hugur hans stefndi fljótt til smíða og viðskipta. Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1932 og fékk meistarabréf árið 1936. Hann byggði m.a. íþróttahús Háskóla Íslanda á árunum 1945-46, Þjóðminjasafnið 1947-49 og Háskólabíó 1959-61. Árið 1947 stofnsetti hann Húsasmiðju Snorra Halldórssonar með það að markmiði að smíða einingahús. Síðar víkkaði verksvið fyrirtækisins og árið 1971 var félaginu breytt í hlutafélag og hét eftir það og heitir enn Húsasmiðjan hf. Eiginkona Snorra var Inga Berg Jóhannsdóttir (1914-2001).1Drög af niðjatali afkomenda Halldórs Guðmundssonar og Ingibjargar Sigríðar Jensdóttur í Magnússkógum, bls. 45 (2013). Óútgefið rit í eigu Guðbjörns Guðmundssonar.

Í viðtali sem tekið var við Snorra árið 1982 segir hann frá því að eftir sveinspróf hafi hann unnið í tvö ár hjá meistara sínum en fór svo aftur heim í Dali. Síðan segir hann:

Þá rifjaðist það upp fyrir mér, að þegar ég fór fyrst að heiman var ég tvo sólarhringa veðurtepptur í Búðardal og lá þá í svokölluðum gærukofa við heldur lélegan aðbúnað. Því vaknaði sú hugmynd hjá mér, að setja þyrfti upp greiðasölustað í Búðardal, svo ferðamenn gætu fengið þar viðunandi aðhlynningu. Og nú fór ég vestur meðfram þeirra erinda að gera þessa hugmynd að veruleika.2Þorsteinn Matthíasson (1982). Íslenskir athafnamenn. Þættir II, bls. 107. Reykjavík: Bókhlaðan.

Snorri reisti hótel sem stóð suðvestan við húsið sem í dag (2025) er númer 6 við Miðbraut í Búðardal og nefndi Hótel Búðardalur. Stiginn í húsinu var meistarastykki Snorra. Hann rak hótelið ekki lengi því rekstri þessi var hætt árið 1936.3Drög af niðjatali afkomenda Halldórs Guðmundssonar og Ingibjargar Sigríðar Jensdóttur í Magnússkógum, bls. 45 (2013). Óútgefið rit í eigu Guðbjörns Guðmundssonar; Ragnar Ásgeirsson (1936, 26. september). Hjá Barðstrendingum. Framsókn – Bændablað – Samvinnublað, 4. árg., 42 tbl., bls. 2; Guðbjörn Guðmundsson (2025, 19. ágúst). Munnleg heimild.

Þremur árum síðar, árið 1939, keypti Guðmundur (1905-1993) bróðir Snorra húsið og þeir bræður fluttu húsið í Magnússkóga þar sem steinsteyptur grunnur beið þess. Þar leysti húsið af hólmi gamlan torfbæ sem búið hafði verið í. Guðmundur hafði þá tekið við búskap í Magnússkógum af foreldrum  sínum og bjó þar allan sinn búskap. Í Magnússkógum stendur húsið enn og auðséð að vel er hlúð að því. Húsið var nýtt sem íbúðarhús í stað gamla torfbæjarins allt til ársins 1978 þegar núverandi íbúðarhús var reist. Síðan hefur húsið verið nýtt af þeim gestum sem gista í Magnússkógum, sem margir eru afkomendur Snorra og Guðmundar.4Guðbjörn Guðmundsson (2025, 19. ágúst); Friðjón Þórðarson (1980, 17. ágúst). Guðmundur Halldórsson Magnússkógum 75 ára. Morgunblaðið, 184. tbl., bls. 47.

Ekki hefur fundist ljósmynd af Hótel Búðardal og því ekki vitað hvort húsið hafi verið reist í Magnússkógum eins og það var upphaflega í Búðardal.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. september, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. september, 2025