Arnarhraun 4, Grindavík
Saga:
Árið 1929 byggðu hjónin (Guðmundur) Kristinn Jónsson (1894-1981), sjómaður og síðar fiskmatsmaður, og Guðríður Pétursdóttir (1903-1980) sér hús í túninu austan við Þórkötlustaði, æskuheimili Guðríðar og nefndu Brekku. Húsið stóð á milli Þórkötlustaða og Buðlungu, þar sem nú (2025) er malarplan þar sem heyrúllur eru geymdar miðju vegu milli Buðlungu og Bjarmalands.
Tuttugu árum síðar, árið 1949, fluttu þau húsið að Arnarhrauni 4 í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík. Þar stendur húsið enn og hefur verið breytt talsvert í tímans rás, m.a. var settur stór kvistur á það um 1980.1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 109. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172; Fasteignaskrá HMS; Jón Tómasson (1981, 1. desember). Kristinn Jónsson frá Brekku, Grindavík – Minning. Faxi, 41. árg., 7. tbl., 201.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 109. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172; Fasteignaskrá HMS; Jón Tómasson (1981, 1. desember). Kristinn Jónsson frá Brekku, Grindavík – Minning. Faxi, 41. árg., 7. tbl., 201.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. ágúst, 2025
