Túngata 2, Grindavík
Hluti uppdráttar af Þórkötlustaðahverfi eftir Loft Jónsson.
Túngata 2, Grindavík, í ágúst 2022. Ljósm.: Ja.is.
Saga:
Árið 1932 byggðu hjónin Vilhjálmur Jónsson (1867-1960) og Jóhanna Bjarnadóttir (1886-1962) nýtt íbúðarhús að Miðhúsum í Þórkötlustaðarhverfi í Grindavík. Húsið stóð um 25 m suðaustan við suðausturhorn íbúðarhússins Búða, sem enn stendur. Þegar fornleifaskráning var gerð á svæðinu árið 2018 sáust greinilegar leifar af steyptum grunni þar sem Miðhús stóðu. Best sást austur- og suðurhlið grunnsins og virtist hann um 8 x 8 m.
Vindmylla sem framleiddi rafmagn til ljósa var á Eyvindarstöðum og fleiri bæjum í Þórkötlustaðahverfi áður en rafman var leitt til Grindavíkur frá Sogsvirkjun árið 1947.1 Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 102-103. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172; Loftur Jónsson (ódags.). Þórkötlustaðahverfi Grindavík. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
Vilhjálmur Jónsson seldi sonum sínum, Bjarna Kristni (1912-1943) og Reginbaldri (1911-1998), húsið árið 1937.2Kaupsamningur dags. í október 1937. Sóttur 19. ágúst 2025 af https://vefuppfletti.fasteignaskra.is/leit.
Um og upp úr miðri síðustu öld tók íbúum í Þórkötlustaðahverfi að fækka vegna aukinna umsvifa í Járngerðarstaðahverfi sem varð þungamiðja athafnalífsins í Grindavík m.a. með uppbyggingu hafnarmannvirkja og útgerðar- og fiskvinnslufyrirtæki sem reist voru þar. Árið 1966 höfðu a.m.k. 6 íbúðarhús verið flutt úr Þórkötlustaðahverfinu yfir í Járngerðarstaðahverfi og nokkur til viðbótar verið rifin.3Efla verkfræðistofa (2019, 16. september). Verndarsvæði í byggð, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, bls. 16.
Árið 1961 voru Miðhús flutt að Túngötu 2 í Járngerðarstaðahverfi í Grindavík og stendur þar enn. Líklega hefur hugmyndin verið að stækka húsið þegar það var flutt, a.m.k. er til teikning frá þeim tíma sem sýnir stækkun hússins, en sú stækkun hefur ekki komið til framkvæmda.4Loftur Jónsson (ódags.); Grindavíkurhreppur. Kortavefsjá. Sótt 19. ágúst 2025 af https://www.map.is/grindavik/.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 19. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Birna Lárusdóttir, Elín Ósk Hreiðarsdóttir, Ragnheiður Gló Gylfadóttir og Þóra Pétursdóttir (2018). Fornleifar í Þórkötlustaðahverfi: Verndarsvæði í byggð, bls. 102-103. Reykjavík: Fornleifastofnun Íslands ses. Skýrsla nr. FS701-17172; Loftur Jónsson (ódags.). Þórkötlustaðahverfi Grindavík. Í gagnasafni Minjastofnunar Íslands.
- 2Kaupsamningur dags. í október 1937. Sóttur 19. ágúst 2025 af https://vefuppfletti.fasteignaskra.is/leit.
- 3Efla verkfræðistofa (2019, 16. september). Verndarsvæði í byggð, Þórkötlustaðahverfi í Grindavík, bls. 16.
- 4Loftur Jónsson (ódags.); Grindavíkurhreppur. Kortavefsjá. Sótt 19. ágúst 2025 af https://www.map.is/grindavik/.
Deila færslu
Síðast uppfært 19. ágúst, 2025

