Víkurgata 7, Súðavík, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.
Víkurgata 7, Súðavík, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Víkurgata 7, Súðavík

Heiti: Rekavík - Stefánshús - Innri Grund
Byggingarár: ≈ 1937
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Pálmi Ólafur Guðmundsson og Stefán Guðmundsson
Aðrir eigendur:
1950: Stefán Guðmundsson
Upphafleg staðsetning: Rekavík bak Látur, Ströndum (áður Sléttuhreppi, nú Ísafjarðarbæ)
Fyrst flutt: Um 1950 að Aðalgötu 60, Súðavík
Flutt: 1997 að Víkurgötu 7, Súðavík
Hvernig flutt: 1950 var húsið tekið niður, en 1997 var það flutt í heilu lagi

Saga:

Á árunum 1937 til 1948 bjuggu bræðurnir Pálmi Ólafur (1907-1964) og Stefán (1906-1995) í Rekavík bak Látur ásamt Guðmundi Pálmasyni (1878-1951) föður þeirra. Þar stunduðu þeir bæði útgerð og búskap og höfðu einnig umsjón og eftirlit með Straumnesvita, eins og faðir þeirra hafði áður haft.

Árið 1944 kvæntist Pálmi Þorstínu Jóhönnu Maríu Friðriksdóttur (1914-2008) úr Aðalvík, en Stefán var alla tíð ókvæntur og barnlaus.

Þeir bræður reistu nýtt íbúðarhús í Rekavík. Ekki þurfti langt að fara til að nálgast efnivið því mikill reki var á þessum slóðum eins og nafn víkurinnar bendir til. Og ekki skorti heldur iðnaðarmenn því Stefán var smiður góður á tré og járn. Allt timbur söguðu þeir bræður með stórviðarsög í bita og borð.

Í húsinu bjuggu Guðmundur og Bjarney Andrésdóttir (1890-1976) ráðskona hans og barnsmóðir ásamt börnum þeirra og börnum Guðmundar frá fyrra hjónabandi sem enn voru heima; Pálmi og Jóhanna og þeirra börn; og Stefán.

Árið 1948 fluttu þau öll til Súðavíkur, en skömmu síðar flutti Pálmi með fjölskyldu sína til Flateyrar við Önundarfjörð. Þegar byggð lagðist af í Rekavík var húsið rifið, flutt til Súðavíkur og reist þar á nýjum grunni við Aðalgötu 50, næsta hús fyrir innan Grund, Aðalgötu 58, sem enn stendur. Þar bjó Stefán um árabil með Bjarneyju stjúpmóður sinni og tveimur hálfsystkinum. Árið 1951 eru þrír skráðir til heimilis í Stefánshúsi í Súðavík, en árið eftir er búið að nefna húsið Innri Grund.

Stefán bjó í húsinu til ársins 1967. Þá slasaðist hann illa, varð óvinnufær og gat ekki búið einn.1Pálmi Ólafur Guðmundsson – Minning (1965, 24. febrúar). Morgunblaðið, 52. árg., 46. tbl., bls. 20; Hrólfur Kjartansson (1995, 14. júní). Stefán Guðmundsson. Morgunblaðið, 83. árg., 132. tbl., bls. 32; Þjóðskjalasafn. Sóknarmanntöl. Sótt 5. ágúst 2025 af  https://salnaregistur.manntal.is/;  Svanbjörg Helga Haraldsdóttir (2005, maí). Byggingarár húsa í Súðavík, bls. 28. Reykjavík: Veðurstofa Íslands.

Eftir hið mannskæða snjóflóð sem féll á Súðavík 16. janúar 1995 og grandaði 14 manns var ákveðið að flytja hús sem stóðu á svæði sem metið var snjóflóðahættusvæði sunnar í fjörðinn á land Eyrardals, þar sem skipulögð var framtíðarbyggð þorpsins. Innri Grund, sem stóð við Aðalgötu 60, var flutt að Víkurgötu 7 í Súðavík, þar sem það stendur enn ásamt fjórum öðrum gömlum húsum sem standa öll hlið við hlið.2Svanbjörg Helga Haraldsdóttir (2005, maí), bls. 28.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. september, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 1. september, 2025