Nesvegur 13, Súðavík, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.
Nesvegur 13, Súðavík, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.

Nesvegur 13, Súðavík

Heiti: Litlibær – Litli bær
Byggingarár: ≈1920
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Böðvar Jensson
Aðrir eigendur:
1922: Sigurður Hallvarðsson og Ólöf Halldórsdóttir
Upphafleg staðsetning: Fyrir innan Kambsneseyri, inn undir Kaldáreyri, Álftafirði
Flutt: ≈1923 að Nesvegi 13, Súðavík
Hvernig flutt: Fleytt yfir fjörðinn og síðan dregið á trjám

Saga:

Um húsið númer 13 við Nesveg í Súðavík segir Eiríkur P. Jörundsson í bók sinn Þar sem land og haf haldast í hendur:

Árið 1922 flutti til Álftafjarðar Sigurður Hallvarðsson úr Aðalvík með fjölskyldu sína og með honum kom bróðir hans Jón, sem þá var ókvæntur. Sigurður keypti og flutti ásamt fjölskyldu sinni inn í lítið hús sem Böðvar Jensson hafði byggt á litlum bala fyrir innan Kambsneseyri, inn undir Kaldáreyri. Þaðan sótti hann vinnu yfir fjörðinn við útgerð Gríms Jónssonar. Nokkru síðar fékk hann lóð hjá Grími fyrir ofan Bólstaðarlóðina og tók á það ráð að flytja litla húsið í heilu lagi á nýjan stað. Húsinu var fleytt yfir fjörðinn og síðan dregið á trjám upp á lóðina, þar sem húsið fékk nafnið Litlibær. Hann lét síðar stækka húsið, enda var hann með stóra fjölskyldu. Litlibær stendur ennþá við Nesveg 13, en líklega er fátt eftir af upprunalega húsinu sem flutt var yfir fjörðinn.1Eiríkur P. Jörundsson (2016). Þar sem land og haf haldast í hendur. Súðavíkurhreppur að fornu og nýju, bls. 192-193. Útg.: Súðavíkurhreppur.

Í sóknarmannatölum sést að Böðvar Jensson (1872-1921) er skráður á ýmsum bæjum í Álftafirði á árunum 1872 til 1920 . Árið 1920 er hann skráður í Litlabæ í Eyrarsókn, en árið áður í Böðvarsbæ í sömu sókn. Sigurður Hallvarðsson (1892-1977) er fyrst skráður í Litlabæ árið 1922 ásamt konu sinn Ólöfu Halldórsdóttur (1896-1985), dóttur þeirra og fjórum öðrum.2Þjóðskjalasafn Íslands. Sóknarmannatöl. Sótt 30. júlí 2025 af https://salnaregistur.manntal.is/Leit. Þau hjón fluttu til Reykjavíkur árið 1944.3Sigurður Hallvarðsson – Minningarorð (1977, 4. mars). Morgunblaðið, 64. árg., 50. tbl., bls. 23; Ólöf Halldórsdóttir – Neðri-Miðvík (1985, 8. mars). Morgunblaðið, 72. árg., 56. tbl., bls. 37.

Súðavíkurhreppur keypti Litlabæ ásamt fjölda annarra húsa eftir mannskaðasnjóflóð í janúar 1995, því húsið er innan snjóflóðahættusvæðis og einungis má nota það til sumardvalar.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. september, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 2. september, 2025