Garðbær, bær Gissurar Bjarnasonar, á Eyrarbakka með tveimur burstum fyrir miðri mynd. Ljósm.: Sigfús Eymundsson. Myndhluti. Heimild: Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 101. Eyrarbakka: Laugabúð.
Garðbær, bær Gissurar Bjarnasonar, á Eyrarbakka með tveimur burstum fyrir miðri mynd. Ljósm.: Sigfús Eymundsson. Myndhluti. Heimild: Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 101. Eyrarbakka: Laugabúð.

Litla-Hraun, Árborg

Heiti: Garðbær – Litla-Hraun
Byggingarár: 1879
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Gissur Bjarnason og Sigríður Sveinsdóttir
Upphafleg staðsetning: Garðbæjarhverfi, Eyrarbakka
Flutt: 1889 að Litla-Hrauni, austan Eyrarbakka

Saga:

Árið 1879 byggði Gissur Bjarnason (1847-1907) söðlasmiður á Eyrarbakka nýtt hús í stað torfbæjarins sem hann hafði búið. Húsið var kennt við Garðbæ og stóð í Garðbæjarhverfinu á svipuðum stað og húsið Garðbær stendur nú (2025) á milli og örlítið austan húsanna númer 75a og 77 við Eyrargötu.

Húsið bar svip torfbæjar, með torfþaki, og var tvær sambyggðar burstir, en þó var það virt sem timburhús en ekki bær. Húsið var 15 álnir að lengd og 13 á breidd, með lofti og kjallara. Inngöngudyr voru á öðrum gaflinum og níu rúða gluggi til hliðar við þær. Á lofti var sex rúðu gluggi. Á hinum gaflinum voru tveir sex rúðu gluggar niðri og þar var einnig sex rúðu gluggi á lofti. Tvö reykrör voru á hvorri burst.

Eiginkona Gissurar var Sigríður Sveinsdóttir (1848-1917), sem var síðari kona hans. Þau gengu í hjónaband árið 1884 og eignuðust sex börn.1Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 101. Eyrarbakka: Laugabúð; Mannalát (1907, 15. nóvember). Fjallkonan, 24. árg., 45. tbl., bls. 176-177. Þau fluttu að Litla-Hrauni árið 1889 og var þá „… húsið tekið niður, viðirnir fluttir þangað og byggt úr þeim nýtt hús.“2Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 101.

Ekki liggur fyrir hvernig hús Gissur byggði á Litla-Hrauni úr viðum gamla hússins og því erfitt að segja til um hvort húsið hafi verið flutt í orðsins fyllstu merkingu.

Í manntali árið 1901 kemur fram að það ár bjuggu þau Sigríður og Gissur að Litla-Hrauni ásamt 6 börnum sínum, tveimur vinnumönnum, tveimur sveitarómögum og lausakonu.3Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Litla Hraun, Stokkseyrarsókn, Eyrarbakkahreppi í Árnessýslu 1901. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 3. júlí 2025 af https://smb.mshl.is/m/baer/61808.

Þau Gissur og Sigríður bjuggu að Litla-Hrauni til ársins 1903 þegar þau fluttu til Reykjavíkur.4Mannalát (1907, 15. nóvember). Ekki er vitað um afdrif hússins sem þau tóku með sér frá Eyrarbakka að Litla-Hrauni.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. júlí, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025). Eyrarbakki. Byggð í mótun. Horfin hús 1878-1960, bls. 101. Eyrarbakka: Laugabúð; Mannalát (1907, 15. nóvember). Fjallkonan, 24. árg., 45. tbl., bls. 176-177.
  • 2
    Inga Lára Baldvinsdóttir og Magnús Karel Hannesson (2025), bls. 101.
  • 3
    Miðstöð stafrænna hugvísinda og lista. (2025). Litla Hraun, Stokkseyrarsókn, Eyrarbakkahreppi í Árnessýslu 1901. Sögulegt mann- og bæjatal, útg. 1.0. Sótt 3. júlí 2025 af https://smb.mshl.is/m/baer/61808.
  • 4
    Mannalát (1907, 15. nóvember).

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 13. júlí, 2025