Hellubraut 8, Hafnarfirði. Ljósm. í eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar.
Hellubraut 8, Hafnarfirði. Ljósm. í eigu Byggðasafns Hafnarfjarðar.

Móhóll í landi Hafnar, Hvalfjarðarsveit

Heiti: Móhóll
Byggingarár: 1903
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Geirlaug Sveinsdóttir
Aðrir eigendur:
1984 ?: Hafnarfjarðarbær
1987: Jón Tryggvason og Hrefna Magnúsdóttir
Upphafleg staðsetning: Hellubraut 8 (áður Vesturhamar 3), Hafnarfirði
Flutt: 1987 að Móhól í landi Hafnar í Hvalfjarðarsveit
Hvernig flutt: Flutt í heilu lagi á vörubíl
Móhóll 1

Hellubraut 8 hífð á vörubíl í júlí 1987. Ljósm.: Morgunblaðið/Sverrir. Heimild: Morgunblaðið (1987, 23. júlí). 75. árg., 164. tbl., bls. 18.

20250628_154637

Saga:

Í september árið 1901 fékk kútterinn „Litla-Rósa“ úr Hafnarfirði  á sig brotsjó út af Ísafjarðardjúpi. Tók þá tvo menn útbyrðis og fórust þeir báðir. Annar þeirra var Jón Kristjánsson (1857-1901) þurrabúðarmaður í Hausastaðakoti í Garðahverfi á Álftanesi. Þar bjó hann ásamt konu sinni Geirlaugu Sveinsdóttur (1865-1947) og áttu þau sjö börn, sem nú urðu föðurlaus. Hinn sjómaðurinn var Þorgils Þorgilsson (1863-1901), sem átti hlut í Útgerðarfélaginu við Hafnarfjörð, sem var eigandi kúttersins. Einar Þorgilsson (1865-1934) athafnamaður í Hafnarfirði og bróðir Þorgils var einnig hluthafi í Útgerðarfélaginu og voru þeir bræður afar samrýmdir. „Einar mun hafa tekið slysið nærri sér, og sagt er að hann hafi séð til með ekkju Jóns á Hausastöðum og reist henni lítið hús, sem stendur enn, eða hjálpað henni til þess.“1Ásgeir Jakobsson (1987). Hafnarfjarðarjarlinn. Einars saga Þorgilssonar, bls. 82. Hafnarfirði: Skuggsjá.

Í manntali árið 1890 eru fjórar fjölskyldur skráðar til heimilis í Hausastaðakoti, m.a. þau Jón og Geirlaug ásamt tveimur ungum börnum þeirra. Árið 1901 er Geirlaug skráð þar ásamt fimm börnum sínum. Árið 1910 virðist Geirlaug flutt í eigið hús í Hafnarfirði og er þar skráð ásamt þremur börnum sínum.2Sögulegt mann- og bæjatal. Hausastaðakot 1901. Sótt 2. júlí 2025 af https://smb.mshl.is/m/baer/64716; Þjóðskjalasafn. Manntöl. Sótt 2. júlí 2025 af https://manntal.is/. Hér er vafalaust um að ræða húsið sem Hafnarfjarðarjarlinn Einar Þorgilsson aðstoðaði hana við að koma upp. Væntanlega hefur verið fýsilegra fyrir ekkjuna að búa í þéttbýlinu þar sem auðveldara var að fá vinnu, en í manntalinu frá 1910 kemur fram að hún hafi unnið við að verka fisk við verslun fyrrnefnds Einars Þorgilssonar.3Þjóðskjalasafn. Manntöl. Sótt 2. júlí 2025 af https://manntal.is/.

Þegar húsið fékk götunafn og númer var það fyrst skráð sem Vesturhamar 3, en fékk síðar númerið 8 við Hellubraut í Hafnarfirði.4Málfríður Kristjánsdóttir o.fl. (2022). Suðurgata – Strandgata Hafnarfirði. Húsakönnun, bls. 27. Hafnarfirði: Hafnarfjarðarbær.

Í nóvember árið 1984 var húsið við Hellubraut 8, sem þá var í eigu Hafnarfjarðarbæjar, auglýst til niðurrifs og brottflutnings og skyldi því lokið eigi síðar en 30. apríl 1985.5Byggingarlóð – hús til niðurrifs (1984, 17. nóvember). NT, 68. árg., 257. tbl., bls. 24. Það varð þó ekki af flutningi hússins fyrr en í júlí 1987 þegar hjónin Jón Tryggvason (1931-2012) og Hrefna Magnúsdóttir létu flytja húsið á skika sem þau höfðu fengið undir það í landi Hafnar undir Hafnarfjalli. Húsinu var lyft af Hamrinum niður á vörubíl sem stóð á Strandgötunni og síðan keyrt með það í lögreglufylgd sem leið liggur fyrir Hvalfjörð að Hafnarfjalli í Hvalfjarðarsveit. Gekk flutningurinn alveg snuðrulaust fyrir sig og undir Móhól í landi Hafnar var húsið sett á staura sem þar höfðu verið settir niður. Í upphafi voru litlar breytingar gerðar á húsinu fyrir utan að sett var utan á það liggjandi borðaklæðning í stað járnklæðningar og gerður stór gluggi á vesturgafl hússins, sem snýr mót hafi. Húsið var einungis um 25 fermetrar að grunnfleti sem skiptust í stofu, sem var um helmingur hússins, herbergi, eldhús og lítinn inngönguskúr. Síðar var húsið stækkað til austurs og bætt við svefnherbergjum og þegar þetta er skrifað í júlí 2025 standa yfir umfangsmiklar endurbætur á húsinu. Jón og Hrefna ræktuðu mikið af trjám við bústaðinn. Þau dvöldu mikið á Móhól, jafnt sumar sem vetur, og fjölskyldan öll á þaðan góðar minningar við leik og störf og enn er húsið í eigu afkomanda þeirra hjóna.6Hrefna Magnúsdóttir (2025, 28. júní). Munnleg heimild.

 

Leitarorð: Hafnarfjörður – Höfn

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. júlí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 3. júlí, 2025