Smáratún 11, Selfossi
Gamla íbúðarhúsið á Ósabakka losað frá grunni sínum. Ljósm.: Óþekktur. Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Sótt 19. júní 2025 https://myndir.myndasetur.is/.
Gamla húsið frá Ósabakka komið að Smáratúni 11 á Selfossi. Ljósm.: Óþekktur. Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Sótt 19. júní 2025 https://myndir.myndasetur.is/.
Saga:
Árið 1921 kvæntist Sveinn Gestsson (1890-1964) Auðbjörgu Káradóttur (1899-1988) heimasætu á Ósabakka á Skeiðum. Þau tóku við jörðinni af Guðrúnu Hafliðadóttur (1869-1922) móður Auðbjargar sama ár. Þau bættu bæði jörð og húsakost á Ósabakka meðan þau stunduðu þar búskap, en þau fluttu til Reykjavíkur árið 1957 og tóku þá synir þeirra við jörðinni. Þau Sveinn og Auðbjörg eignuðust 11 börn og komust 10 þeirra til fullorðinsára. Því veitti ekki af stóru húsnæði en þau hjón reistu tvö íbúðarhús á jörðinni.1Sveinn Gestsson, Ósabakka (1960, 30. október). Tíminn, 44. árg., 245. tbl., bls. 2.Hið fyrra byggðu þau árið 1930.
Það hús var virt til brunabóta 19. desember 1930. Í virðingunni kemur fram að húsið var byggt úr timbri, klætt að utan með 1“ borðum, pappa og járni og var 7,5 x 6,3 m að flatarmáli. Það var alþiljað með panel að innan, skiptist í baðstofu sem var 6,3 x 3,8 m, stofu sem var 3,8 x 3,15 m, herbergi 3,8 x 3,8 m og bæjardyr 3,8 x 1,2 m. Húsið var allt þiljað sundur með tvöföldum timburveggjum. Óþiljað geymsluloft var yfir öllu húsinu. Kjallari var undir því öllu, þiljaður í sundur í eldhús, sem var 4 x 3 m, 3 x 3 m borðstofu og geymslu, 6 x 3 m að stærð. Kjallarinn var hlaðinn úr grjóti og steypt innan á hleðslu. Gólfið í kjallaranum var steypt. Í eldhúsinu var eldavél og reykháfur. Við vesturgafl hússins var óþiljaður skúr, 6,3 x 2,5 m að stærð.2Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Brunavirðingabók Skeiðahrepps 1909-1932, bls. 135.
En barnahópurinn stækkaði og þörf var á stærra húsi. Í byggingu þess var ráðist árið 1951 og var þá byggt stór og reisulegt steinsteypt hús. Þá var ekki þörf fyrir gamla húsið lengur og var það flutt í heilu lagi að Smáratúni 11 á Selfossi. Þar fékk Sigurjón Kristinn Jóhannesson (1908-1969) bifvélavirki lóð undir húsið.3Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Jón Eiríksson (20.10.1921-28.05.2010)/ 2021_67_JE_00347; Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Lítil ljósmyndasöfn/ 1023_3_SKJ_00003; Smáratún 11. Lóðaleigusamningur, dags. 14. mars 1952. Sótt 19. júní 2025 af https://loftmyndir.arborg.is/teikningar/Sm%C3%A1rat%C3%BAn11.pdf. Eiginkona hans var Vilborg Eiríksdóttir (1923-2015).
Þegar húsið var flutt 35 km leið eftir Skeiðavegi þurfti að komast yfir eða undir margar hindranir af síma- og rafleiðslum.4Brynjólfur Melsteð (1953, 15. febrúar). Fjárflutninganir miklu, bls. 6. Lesbók Morgunblaðsins, 28. árg., 8. tbl., bls. 1-6.
Í september 1990 gaf byggingafulltrúi á Selfossi út vottorð um búið væri að rífa húseignina að Smáratúni 11, Selfossi, að öllu leyti nema kjallaraveggi og sökkul.5Vottorð byggingafulltrúa Selfoss, dags. 19. september 1990. Sótt 19. júní 2025 af https://loftmyndir.arborg.is/teikningar/ACF90F.pdf. Engu að síður ber húsið enn með sér andblæ gamla hússins.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. júní, 2025
Heimildaskrá
- 1Sveinn Gestsson, Ósabakka (1960, 30. október). Tíminn, 44. árg., 245. tbl., bls. 2.
- 2
- 3Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Jón Eiríksson (20.10.1921-28.05.2010)/ 2021_67_JE_00347; Héraðsskjalasafn Árnesinga. Myndasetur. Lítil ljósmyndasöfn/ 1023_3_SKJ_00003; Smáratún 11. Lóðaleigusamningur, dags. 14. mars 1952. Sótt 19. júní 2025 af https://loftmyndir.arborg.is/teikningar/Sm%C3%A1rat%C3%BAn11.pdf.
- 4Brynjólfur Melsteð (1953, 15. febrúar). Fjárflutninganir miklu, bls. 6. Lesbók Morgunblaðsins, 28. árg., 8. tbl., bls. 1-6.
- 5Vottorð byggingafulltrúa Selfoss, dags. 19. september 1990. Sótt 19. júní 2025 af https://loftmyndir.arborg.is/teikningar/ACF90F.pdf.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. júní, 2025

