Gröndalshús, Vesturgötu 16b í Reykjavík árið 1965. Ljósm.: Skarphéðinn Haraldsson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SHK ÁBS 765.
Gröndalshús, Vesturgötu 16b í Reykjavík árið 1965. Ljósm.: Skarphéðinn Haraldsson. Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. SHK ÁBS 765.

Gröndalshús, Vesturgata 5b, Reykjavík

Heiti: Skrínan – Púltið – Gröndalshús
Byggingarár: 1882
Upphafleg notkun: Íbúðarhús og járnsmiðja
Fyrsti eigandi: Sigurður Jónsson
Aðrir eigendur:
1888: Benedikt Gröndal
? : Ólafur R. Ólafsson
1927: Ámundi Hjörleifsson
1935: Ámundi Hjörleifsson og Eugenia I. Nilsen
1945: Eugenia I. Nilsen
Upphafleg staðsetning:

Vesturgata 16b, Reykjavík

Fyrst flutt:

2010 að Fiskislóð í Reykjavík til viðgerðar

Hvernig flutt: Í heilu lagi
Vesturgata 16b 2007

Vesturgata 16 b í Reykjavík árið 2007. Ljósm.: Höfundur.

Gröndalshús 4

Gröndalshús híft frá Vesturgötu 16b í janúar 2010. Ljósmynd sótt 25. febrúar 2026 af Gröndalshús aftur í miðborgina | Reykjavik.

Saga:

Á vef Minjaverndar hf. segir eftirfarandi um Gröndalshús, sem áður stóð við Vesturgötu 16b í Reykjavík, en nú við Vesturgötu 5b í Reykjavík:

Sigurður Jónsson (1843-1935) járnmiður lét byggja  húsið 1882 að Vesturgötu 16 b. Hann hafði járnsmiðju sína í austurhluta neðri hæðar hússins. Form hússins og skipulag þess ber upphaflegrar notkunar merki, t.d. eru í því tveir skorsteinar annar fyrir járnsmiðjuna en hinn til nota fyrir húsið að öðru leyti. Jafnframt ber það nokkuð form af efnivið þeim sem til byggingarinnar var notaður, en það var að stórum hluta til timbur úr strandi skipsins Jamestown, stóru skipi sem strandaði við Garðskaga fulllestað timbri. Húsið þótti sérstakt í formi og var í upphafi nefnt Skrínan eða Púltið.
Bygging hússins og rekstur járnsmiðjunnar varð Sigurði ofviða fjárhagslega. Hann missti húsið og verkfæri járnsmiðjunnar urðu grunnur t.d. að Vélsmiðjunni Héðni. Benedikt Gröndal [f. 1826] keypti húsið 1888 og bjó í því þar til hann lést 1907. Húsið var nefnt eftir Benedikt eftir að keypti það, kallað Gröndalshús. Gröndalshús er merkilegt bæði fyrir byggingarsögu og form, en ekki síður fyrir þátt sinn í menningarsögu landsins en í því ritaði Benedikt mörg verka sinna og teiknaði þær stórfenglegu myndir og skjöl sem eftir hann liggja.
Húsið var komið í mikla niðurníðslu og stóð í vegi fyrir stórhuga framkvæmdaaðilum hvar það var byggt. Um nokkurt árabil var þrefað um framtíð þess, en að lokum var það flutt af sínum stað og geymt á Grandagarði. Í samningi milli Reykjavíkurborgar og Minjaverndar tók Minjavernd að sér sð annast endurgerð hússins og flutning þess á nýjan stað að Vesturgötu 5 b. Reykjavíkurborg ákvað að eiga húsið og nýta fyrir menningarstarfsemi tengri Reykjavík – bókmenntaborg Evrópu. Húsið var flutt, endurbyggt á vandaðan máta og tekið í notkun í júní 2017. Þar er nú sýning um Benedikt Gröndal á aðalhæð þess, íbúð í kjallara og vinnuaðstaða fyrir fræðimenn á efri hæð.1Minjavernd. Gröndalshús. Sótt 8. maí 2025 af https://www.minjavernd.is/is/verkefni/grondalshus.

Gröndalshús við Vesturgötu 5b, Reykjavík. Ljósm.: Minjavernd hf. Sótt 8. maí 2025 af https://www.minjavernd.is/is/verkefni/grondalshus/myndir?page=1.

Einnig má benda á grein Freyju Jónsdóttur um Gröndalshús frá árinu 1999: Freyja Jónsdóttir (1999, 3. júlí). Vesturgata 16b. Dagur – Íslendingaþættir, 24. tbl., bls. 3.

Þegar sú grein var rituð bjó Eugenia I. Nilsen (1916-2004), ekkja Ámunda Hjörleifssonar (1914-1945) í húsinu ásamt seinni manni sínum, Þorsteini Hjálmssyni (1921-1966), og tveimur sonum þeirra, Jens og Ámunda, sem áttu húsið ásamt móður sinni.2Freyja Jónsdóttir (1999, 3. júlí). Vesturgata 16b. Dagur – Íslendingaþættir, 24. tbl., bls. 3.

Guðjón Friðriksson sagnfræðingur hefur einnig ritað um húsið á Facebook-síðu sinni.

Við þetta má bæta að það var í upphafi árs 2010 sem húsið var híft af grunni sínum sínum við Vesturgötu 16b og flutt út í Örfirisey til viðgerðar. Þar stóð húsið þar til því var komið fyrir á nýjum grunni við Vesturgötu 5b í apríl 2015.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. febrúar, 2026

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 25. febrúar, 2026