Teikning Guðmundar H. Þorláksson af Skipasundi 41, dags. í júní 1945. Sótt 7. maí 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.
Teikning Guðmundar H. Þorláksson af Skipasundi 41, dags. í júní 1945. Sótt 7. maí 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Skipasund 41, Reykjavík

Byggingarár: 1902
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Kristinn Guðmundsson
Upphafleg staðsetning: Hverfisgata 78, Reykjavík
Flutt: 1945 að Skipasundi 41, Reykjavík
Skipasund 41 3

Teikning Davíðs Karls Karlssonar af Skipasundi 41, dags. 7. mars 2004. Sótt 7. maí 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Skipasund 41 1

Skipasund 41, Reykjavík, árið 2023. Ljósm.: Miklaborg. Sótt 7. maí 2025 af https://fastinn.is/soluskra/1101481#images.

Saga:

Í fasteignaskrá er húsið sem nú stendur við Skipasund 41 í Reykjavík sagt byggt árið 1946. Það mun þó vera mun eldra, því árð 1945 var það flutt þangað frá Hverfisgötu 78 í Reykjavík. Þetta kemur fram á teikningu sem undirrituð var af Guðmundi H. Þorlákssyni (1887-1958) húsameistara í júní 1945.1Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 41. Teikn. dags. í júní 1945. Sótt 7. maí 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

Húsið var byggt við Hverfisgötu 78 árið 1902. Fyrsti eigandi þess var Kristinn Guðmundsson. Húsið var einloftað, byggt af bindingi, klætt utan með plægðum borðum, pappa og járni þar yfir. Risþak var á húsinu, klætt járni. Niðri í húsinu voru 3 herbergi og eldhús, allt þiljað og málað og herbergin með panelpappa innan á þiljum og neðan á loftum, sem voru tvöföld. Þar voru tveir ofnar og eldavél. Uppi voru tvö herbergi og framloft, allt þiljað og málað og berbergin með panelpappa innan á þiljum. Þar voru tvær eldavélar. Kjallari, sem hólfaður var í fernt, var undir öllu húsinu.

Við suðurhlið hússins var inngönguskúr, byggður eins og húsið, þiljaður innan og málaður.

Grunnflötur hússins var um 28 fermetrar og við hann bættist skúrinn, sem var um 7 fermetrar.2Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 02-04-1900 til 13-11-1905. Aðfnr. 735. Brunabótanr. 655.

Húsið stóð nyrst á lóðinni, alveg við götuna, en á suðurhluta lóðarinnar var hús úr steinsteypu, sem hýsti lengi bifreiðaverkstæði. Nýbúið var að breyta því í bókagerðarhús, þegar gamla íbúðarhúsið frá 1902 var flutt að Skipasundi 41 í Reykjavík. Þar stendur húsið enn og ber svip gamla timburhússins, en um 2004 var stór einnar hæðar viðbygging byggð við bakhlið hússins.3Borgarsögusafn. Húsaskrá Reykjavíkur;  Teikningavefur Reykjavíkurborgar. Skipasund 41. Teikn. dags.  7. mars. 2004. Sótt 7. maí 2025 af https://skjalasafn.reykjavik.is/fotoweb/.

 

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 7. maí, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 7. maí, 2025