Þórshamar er fremsta húsið, lengst til vinstri. Myndin er tekin 1974.  Ljósm.: Sigurður Pétur Björnsson (Silli). Sótt 27. apríl 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10220385719303844&set=gm.3109807182578737.
Þórshamar er fremsta húsið, lengst til vinstri. Myndin er tekin 1974. Ljósm.: Sigurður Pétur Björnsson (Silli). Sótt 27. apríl 2025 af https://www.facebook.com/photo/?fbid=10220385719303844&set=gm.3109807182578737.

Þórshamar, Mánárbakka, Tjörneshreppi

Heiti: Þórshamar
Byggingarár: 1931
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Baldvin Friðfinnsson
Aðrir eigendur:
1951: Hákon Maríusson
≈ 1967-1973: Hákon Jónsson og Sigrún Kristbjörg Hólmgeirsdóttir
Upphafleg staðsetning: Á þeim slóðum sem nú er Skálabrekka 19, Húsavík
Flutt: 1994 að Mánárbakka, Tjörnesi
Hvernig flutt: Í heilu lagi
3629590036782382231

Þórshamar á Húsavík er lengst til vinstri á myndinni, sem tekin var 1981. Sótt 27. apríl 2025 af https://www.facebook.com/groups/1980279532198180/search/?q=%C3%BE%C3%B3rshamar.

IMG_0623

Þórshamar á Mánárbakka á Tjörnesi líklega árið 2020. Ljósm.: Albert Eiríksson. Sótt 27. apríl 2025 af https://alberteldar.is/2020/06/24/minjasafnid-manarbakka/.

Saga:

Árið 1921 flutti Baldvin Friðfinnsson (1879-1961) sjó- og verkamaður til Húsavíkur frá Flatey á Skjálfanda. Þar hafði hann byggt nýbýlið Sæland árið 1916. Þegar hann flutti til Húsavíkur tók hann með sér viði hússins Sælands og notaði þá við byggingu hússins Brekkubæjar á Húsavík árið 1921. Þar bjó hann með tveimur sonum sínum frá fyrra hjónabandi og móður sinni, sem þá var orðin ekkja.

Árið 1931 gekk Baldvin að eiga Aldísi Gunnarsdóttur (1887-1951) og sama ár reisti Baldvin nýtt hús, sem hann nefndi Þórshamar. Þar bjuggu þau Aldís þar til hún lést árið 1951, en þá flutti Baldvin til Nóa sonar síns þar sem hann bjó til æviloka.1Úr gögnum sem Hólmgeir H. Hákonarson tók saman.

Brekkubær var á þeim slóðum sem nú er húsið númer 19 við Skálabrekku á Húsavík og reisti Baldvin nýja húsið Þórshamar á svipuðum slóðum.2Elín Ósk Hreiðarsdóttir (2019). Hjúkrunarheimili á Húsavík: Deiliskráning vegna ráðagerða um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í nágrenni Heilbrigðisstofnunar Húsavíkur, bls. 24-25. Reykjavík: Fornleifastofanun Íslands ses.

Í fasteignamati sem gert var á Þórshamri árið 1931 kemur þetta m.a. fram:

Lóðin er 177m². Leigulóð, erfðafesta. Ársleiga 5.krónur. Enginn ágreiningur um lóðamörk. Vegur að túni sem fylgir. Lóðin girt innan túngirðingar. Lóðin ræktuð og notuð í þarfir býlis. Ekkert sérstakt er eykur eða rýrir verðmæti lóðar. Mannvirki á lóðinni: Íbúðarhús, skemma og hlaða.
Stærð húss: 6,9 m. á lengd , 5,64 m. á breidd, stofuhæð 2,5 m . Rishæð með porti(0,96) 3,85m. Kjallari undir húsinu, steyptur, hæð 2,3m.
Húsið er byggt; einlyft timburhús m.porti. Útveggir: Úr timbri, alklæddir pappa og járni. Þak: járn á borðum og pappi. Gólf og loft úr timbri. Skilrúm úr timbri. Húsið notað til íbúðar.
Herbergjaskipun: Á stofuhæð; forstofa, eldhús, 2.stofur. Á lofti: 2.herbergi, 2.hliðarkompur. Kjallari til geymslu, óskiptur annars.
Húsið byggt 1930, verður fullgert í haust. Húsið vandað að efni og smíði. Hirðing og viðhald að innan og utan góð. Í húsinu er vatnsleiðsla og rafleiðsla. Í húsinu er ekki Vatnssalerni, skólpleiðsla eða baðherbergi.
Upphitun hússins (ofn eða miðstöð)? Óákveðið enn. Herbergi með hitunartækjum verða fimm. Steyptur reykháfur. Húsið er einstætt (ekki samstætt). Er húsið rakalaust, hlýtt? Ekki enn. Engir gallar, kvaðir eða skemmdir á húsinu.
Útihús; Torfskemma til geymslu og sem fjós fyrir eina kú. Steypuhlaða m. járnþaki 61 m³.3Skráð af  Hólmgeiri H. Hákonarsyni úr Virðingabók Brunabótafélags Íslands fyrir Húsavíkurumboð 1932-1943, bls. 98-99, HérÞing. HRP-469/2.

Í endurvirðingu sem gerð var á vegum Brunabótafélags Íslands árið 1936 þegar Þórshamar var fullgerður kemur fram að húsið er hitað upp með miðstöð með fjórum vatnsofnum. Þá var einnig búið að skipta kjallaranum í tvö rými.4Skráð af  Hólmgeiri H. Hákonarsyni úr Virðingabók Brunabótafélags Íslands fyrir Húsavíkurumboð 1932-1943, bls. 98-99, HérÞing. HRP-469/2.

Þegar Baldvin lést festi Hákon Maríusson (1909-1982) kaup á húsinu. Hann bjó þó aldrei í því en leigði það út og oft var mannmargt í húsinu þar sem oftast bjuggu tvær fjölskyldur í húsinu. Frá árinu 1951 til 1956 bjuggu hjónin Kjartan Jóhannesson (1925-2019) verkamaður og Kristín Aðalheiður Þórðardóttir (1930-2018) í húsinu ásamt fleirum í lengri eða skemmri tíma.

Árið 1958 fluttu hjónin Hákon Jónsson (1918-2005) og Sigrún Kristbjörg Hólmgeirsdóttir (1914-1973) í húsið ásamt tveimur sonum sínum og föður Hákonar.

Hólmgeir H. Hákonarson (f. 1951) hefur tekið eftirfarandi saman um húsaskipan í Þórshamri:

Þegar við flytjum til Húsavíkur var Þórshamar í eigu Hákonar Maríussonar, sem leigði það út. Hann var einnig með fjárhús og hlöðu sem áföst voru norðan og austan við húsið. Þarna hafði hann allmargar kindur, líklega milli 20 og 30 talsins.
Að koma úr litla húsinu í Tungugerði og hingað í þetta þriggja hæða, háreysta hús þótti mér eins og að koma í höll. Húsaskipan var þannig er við fluttum í Þórshamar. Allt heimafólk, kunningjar og tíðir gestir gengu inn í kjallarann undir tröppum sem voru framan og vestan við húsið. Tröppurnar voru steyptar og lágu að aðaldyrurm hússins. Þegar komið var inn um kjallaradyrnar var komið inn í rými sem notað var sem þvottahús og fleira. Á vinstri hönd var brattur stigi sem lá upp í eldhúsið. Til hægri var rúmgott, lokað herbergi með tveimur gluggum sem móðir mín notaði sem kalt búr. Í innra rými kjallarans, við vegginn vinstra megin, var salernið. Þar til hægri, við skorsteininn, var hitaketill hússins, sem kyntur var með kolum þegar við fluttum í Þórshamar. Seinna var settur upp olíubrennari og svo um 1971 kom hitaveita í húsið.
Þegar gengið var upp stigann úr kjallaranum var komið í eldhúsið. Það þætti nú ekki stórt í nútímanum en var samt aðal íverustaður heimafólks og gesta yfir daginn, ásamt stofunni. Til hægri við eldhúsið var forstofan, inn af aðaldyrum sem voru á vesturhlið hússins. Sunnan við hana var stofan og inn af henni var herbergi. Þar hafði föðurafi minn aðsetur sitt, svefn og vinnuaðstöðu. Stofan var aðal íverustaður fjölskyldunnar á kvöldin en þar var útvarpið og orgel föður míns, sem hann spilaði á flest síðdegi og sum kvöld.
Úr forstofunni, við norðurgafl hússins, lá fremur brattur stigi upp á loftið. Þar á skörinni til vinstri var herbergi, sem hafði áður verið eldhús, meðan hér bjuggu tvær fjölskyldur. Var fyrstu árin okkar þarna eldhúsbekkur og vaskur við norðurstafnin. Kom það sér vel þegar bróðir minn var að framkalla og kópíera myndir í þessu herbergi. Suður af herberginu var svokölluð „hliðarkompa“ með suðurglugga. Á loftinu miðju, sunnanmegin var nokkuð stórt herbergi. Hefur áður líklega verið stofa en varð nú að svefnherbergi foreldra minna. Hægra megin við það herbergi var svo önnur hliðarkompa. Yfir lofthæðinni var síðan geymsluloft sem var lítið notað af okkur, minnir mig. Eins og fyrr sagði leigðu foreldrar mínir Þórshamar fyrstu árin okkar þar. Það mun svo hafa verið fljótlega eftir 1967 að þau kaupa húsið af Hákoni Maríussyni.5Minningar Hólmgeirs H. Hákonarsonar um húsaskipan í Þórshamri.

Þau Hákon og Sigrún Kristbjörg bjuggu í Þórshamri til ársins 1973. Eftir það bjuggu nokkrar fjölskyldur í húsinu, en engin þeirra lengi. Síðustu ár Þórshamars á Húsavík bjó Hákon Jónsson aftur í húsinu.

Hér má sjá íbúatal Þórshamars á Húsavík, sem Hólmgeir H. Hákonarson tók saman: Íbúatal Þórshamars á Húsavík 1930 – 1994

Árið 1994 þurfti Þórshamar af víkja vegna breytinga á skipulagi. Var það tekið af grunni sínum og flutt að Mánárbakka á Tjörnesi þar sem það stendur enn. Þar var það sett á steyptan grunn, lagfært og opnað sem minjasafn í júni 1995. Þau sem að þessu stóðu voru hjónin Aðalgeir Egilsson og Elísabet Bjarnadóttir búendur á Mánárbakka.6Úr gögnum sem Hólmgeir H. Hákonarson tók saman. Hér má lesa grein um minjasafnið á Mánárbakka.

 

Hólmgeiri H. Hákonarsyni eru þakkaðar þær greinargóðu upplýsingar sem hann sendi þeirri sem þetta skrifar.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2025

Heimildaskrá

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 29. apríl, 2025