Vinstra megin við Húsavíkurkirkju sést í Árnahús á upphaflegum stað. Heimild: Húsavík: Fyrr og nú. Sótt 28. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10215714028356889&set=gm.2780661505493308.
Vinstra megin við Húsavíkurkirkju sést í Árnahús á upphaflegum stað. Heimild: Húsavík: Fyrr og nú. Sótt 28. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10215714028356889&set=gm.2780661505493308.

Auðbrekka 8b, Húsavík

Heiti: Árnahús - Árnahúsið
Byggingarár: 1927
Upphafleg notkun: Íbúðarhús
Fyrsti eigandi: Árni Stefánsson
Aðrir eigendur:
< 1965: Sjúkrahús Húsavíkur
< 1993: Íslandsbanki
1993: Þorvaldur Daði Halldórsson
Upphafleg staðsetning: Ketilsbraut 8, á þeim slóðum sem Stórigarður 1 er í dag (2025), skammt norðan Húsavíkurkirkju
Flutt: 1993 að Auðbrekku 8a, Húsavík
Hvernig flutt: Í heilu lagi
Auðbrekka 8b 3

Árnahús á upphaflegum stað. Ljósm.: Þorgrímur Aðalgeirsson. Heimild: Húsavík: Fyrr og nú. Sótt 28. mars 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=800652893410849&set=gm.2094745747418224.

Björn Sig 131

Árnahús á leið að nýjum heimkynnum í janúar 1993. Ljósm.: Björn Sigurðsson.

Auðbrekka 8b 2

Árnahús á leið á nýjan grunn við Auðbrekku 8b á Húsavík. Ljósm.: Dagur. Heimild: Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar). Dagur, 76. árg., 2. tbl., bls. 6.

Auðbrekka 8b 1

Auðbrekka 8b, Húsavík, í júlí 2023. Ljósm.: Ja.is.

Saga:

Árið 1927 byggði Árni Stefánsson (1886-1965) söðlasmiður Húsavík íbúðarhús á Húsavík, skammt norðan Húsavíkurkirkju og austan Garðarsbrautar.

Árni var söðlasmiður, uppalinn í Kelduhverfi og varð þar fyrir slysi sem bæklaði hann á fæti. Árni bjó um áratugaskeið í kjallara Árnahússins. Hann var með verkstæði þar, smíðaði hnakka og annaðist ýmsa leðurvinnu fyrir fólk. Hann hafði um tíma tvær ær hjá sér í kompu inn af verkstæðinu, húsmæðrunum á efri hæðunum til skelfingar en börnunum til ómældrar ánægju. Lengst af voru tvær íbúðir á efstu hæðinni en ein íbúð á miðhæðinni. Þar bjuggu þó löngum fleiri en ein fjölskylda með sameiginlega eldunaraðstöðu. Einnig var þar rekin saumastofa á árum áður. Ótalmargar fjölskyldur og einstaklingar hafa búið í Árnahúsinu á þeim rúmlega 60 árum sem liðin eru frá byggingu þess.1Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar). Dagur, 76. árg., 2. tbl., bls. 6.

Árni var heilsubilaður og þegar á leið þurfti hann langtímum saman að vera á sjúkrahúsi. Gerði hann próventusamning við Sjúkrahús Húsavíkur. Komst Árnahús þannig úr eigu hans.2Karl Kristjánsson 1981). Saga Húsavíkur. I. bindi, bls. 128. Húsavík: Húsavíkurkaupstaður.

Þegar miðbæjarsvæðið á Húsavík var endurskipulagt var þurftu m.a. tvö hús að víkja, Árnahús og Þórarinshús. „Það var Þorvaldur Daði Halldórsson, einn af fyrrverandi íbúum hússins og byggingameistari á Húsavík, sem fékk Árnahúsið hjá eiganda þess, Íslandsbanka, til brottflutnings eða niðurrifs.“3Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar), bls. 6.

Þorvaldur Daði flutti húsið á lóð númer 8b við Auðbrekku á Húsavík í janúar 1993, þar sem beið hússins nýr steinsteyptur grunnur.4Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar), bls. 6-7. Þar stendur húsið enn, reisulegt og auðséð að eigendur þess sýna því mikla upphyggju.

 

Hér má lesa grein í Degi 6. janúar 1993, þar sem fjallað er nánar um flutning hússins.

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. apríl, 2025

Heimildaskrá

  • 1
    Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar). Dagur, 76. árg., 2. tbl., bls. 6.
  • 2
    Karl Kristjánsson 1981). Saga Húsavíkur. I. bindi, bls. 128. Húsavík: Húsavíkurkaupstaður.
  • 3
    Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar), bls. 6.
  • 4
    Árnahúsið upp í Auðbrekku (1993, 6. janúar), bls. 6-7.

Deila færslu

Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 4. apríl, 2025