Bergvegur 10, Keflavík, Reykjanesbæ
Suðurgata 10, Keflavík, árið 2001. Ljósm.: Sigurður Helgi Jónsson. Sótt 21. mars 2025 af Keflavík og Keflvíkingar, https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=Bergveg.
Suðurgata 10, Keflavík, hífð af grunni sínum árið 2001. Ljósm.: Sigurður Helgi Jónsson. Sótt 21. mars 2025 af Keflavík og Keflvíkingar, https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=Bergveg.
Suðurgata 10, Keflavík, á leið að Bergvegi 10 árið 2001. Ljósm.: Sigurður Helgi Jónsson. Sótt 21. mars 2025 af Keflavík og Keflvíkingar, https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=Bergveg.
Saga:
Árið 1930 var gert fasteignamat á nýlegu timburhúsi í við Suðurgötu 8 í Keflavík, sem sagt var í eigu Jóhanns Bergmann Stefánssonar (1906-1996) bifreiðarstjóra. Húsið var byggt árið 1928. Í lýsingu á húsinu kemur m.a. fram: Allir útveggir voru járnvarðir. Undir öllu húsinu var rakalaus kjallari sem ekki var búið í. Hvorki voru baðtæki né vatnssalerni í húsinu því engar vatnsleiðslur voru í því. Í húsinu var einn ofn og ein eldavél. Lóðin umhverfis húsið var girt með vírneti. Grunnflötur hússins var 42,8 fermetrar.1Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar.
Húsið fékk síðar númerið 10 við Suðurgötu og stóð á horni Ránargötu og Suðurgötu.
Jóhann Stefánsson Bergmann (1906-1996) kvæntist Sigríði Árnadóttur (1907-1929) árið 1928. Hún lést árið eftir. Fjórum árum síðar gekk hann að eiga Halldóru Árnadóttur (1914-2006) systur Sigríðar. Þau bjuggu allan sinn búskap á Suðurgötu 10.2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 714-715. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur; Minningar: Halldóra Árnadóttir (2006, 21. mars). Morgunblaðið, 79. tbl., bls. 28.
Framan af ævi starfaði Jóhann sem bifreiðastjóri og sjómaður og rak m.a. eigin vörubifreið um langt skeið. Árið 1949 hóf hann starf sem bifvélavirki þjá Olíufélaginu hf. á Keflavíkurflugvelli en árið 1961 réðst hann til starfa á bifreiðaverkstæði Sérleyfisbifreiða Keflavíkur, sem síðar varð vélaverkstæði Keflavíkurbæjar. Hann lét af störfum þar fyrir aldurs sakir í árslok 1984, þá 78 ára.3Minningar: Jóhann Stefánsson Bergmann (1996, 13. febrúar). Morgunblaðið, 84. árg., 36. tbl., bls. 31.
Árið 2001 þurfti húsið að víkja af Suðurgötunni. Þá áttu hjónin Jón Sigurðsson og Eygló Rós Nielsen húsið og fluttu það að Bergvegi 10 í Keflavík, þar sem það stendur enn töluvert breytt og stækkað. 4Sigurður Helgi Jónsson (2018, 1. apríl). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 21. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=Bergveg.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Gögn í skjalasafni Reykjanesbæjar.
- 2Marta Valgerður Jónsdóttir (1989). Keflavík í byrjun aldar. Minningar frá Keflavík, bls. 714-715. Þrjú bindi. Niðjatöl tóku saman Guðleifur Sigurjónsson og Þorsteinn Jónsson, sem einnig ritstýrði. Reykjavík: Líf og saga í samvinnu við Sögunefnd Keflavíkur; Minningar: Halldóra Árnadóttir (2006, 21. mars). Morgunblaðið, 79. tbl., bls. 28.
- 3Minningar: Jóhann Stefánsson Bergmann (1996, 13. febrúar). Morgunblaðið, 84. árg., 36. tbl., bls. 31.
- 4Sigurður Helgi Jónsson (2018, 1. apríl). Keflavík og Keflvíkingar. Sótt 21. mars 2025 af https://www.facebook.com/groups/59627962212/search/?q=Bergveg.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025




