Klapparstígur 2, Keflavík, Reykjanesbæ
Heimild: Til sölu Hafnargata 51 (1993, 11. febrúar). Víkurfréttir, 14. árg., 6. tbl., bls. 4
Klapparstígur 2, Keflavík, í ágúst 2025. Ljósm.: Höfundur.
Saga:
Í fasteignaskrá er húsið sem nú stendur við Klapparstíg 2 í Keflavík í Reykjanesbæ sagt reist árið 1932. Það voru hjónin Ágústa Sigurjónsdóttir (1899-2000) og Jón Sigurðsson (1897-1966) sem byggðu húsið við Hafnargötu 51 í Keflavík, og þar bjó Jón til æviloka og Ágústa líklega til ársins 1992.1Ágústa Sigurjónsdóttir 100 ára (1999, 1. desember). Faxi, 59. árg., 4. tbl., bls. 77.
Í febrúar árið 1993 var Keflavíkurbær orðinn eigandi hússins og auglýsti eftir tilboðum í húsið og flutning þess á lóð númer 2 við Klapparstíg í Keflavík. Bærinn tók tilboði Húsaness sf. í verkið og hefur húsið eflaust verið flutt sama ár.2Til sölu Hafnargata 51 (1993, 11. febrúar). Víkurfréttir, 14. árg., 6. tbl., bls. 4; Húsanes fær flutninginn (1993, 4. mars). Víkurfréttir, 14. árg., 9. tbl., bls. 14.
Húsið var flutt í heilu lagi og stendur enn við Klapparstíg 2, þar sem sjá má að það nýtur góðrar umhyggju og viðhalds.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Ágústa Sigurjónsdóttir 100 ára (1999, 1. desember). Faxi, 59. árg., 4. tbl., bls. 77.
- 2Til sölu Hafnargata 51 (1993, 11. febrúar). Víkurfréttir, 14. árg., 6. tbl., bls. 4; Húsanes fær flutninginn (1993, 4. mars). Víkurfréttir, 14. árg., 9. tbl., bls. 14.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025

