Væringjaskálinn, Árbæjarsafni, Reykjavík
Væringjaskálinn í Árbæjarsafni. Ljósm.: Árbæjarsafn. Sótt 21. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/2cab3bc0-b3c0-4826-85ec-239bb8bd1b6c.
Væringjaskálinn í Árbæjarsafni. Ljósm.: Árbæjarsafn. Sótt 21. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/2cab3bc0-b3c0-4826-85ec-239bb8bd1b6c.
Saga:
Í Árbæjarsafni er gamall skátaskáta, sem reistur var í Lækjarbotnum fyrir ofan Reykjavík (í landi Kópavogs) árið 1920 og var fyrsti skáli sem reistur var til útivistar á Íslandi. Það var skátafélagið Væringjar sem reisti skálann, en sá félagsskapur var stofnaður árið 1913 af sr. Friðrik Friðrikssyni í nánu sambandi við KFUM. Guðmundur H. Sigurðsson bóndi í Lækjarbotnum (1876-1957) gaf Skátafélaginu Væringjum landið í Gömlubotnum sem skálinn var reistur á. Í fyrstu gekk skálinn undir nafninu Væringjaskálinn en síðar Lækjarbotnaskálinn. Skálinn er úr timbri, með langveggjum hlöðnum úr torfi og grjóti.
Væringjaskálinn var fluttur í Árbæjarsafn 1962. Árið 1991 var hann gerður upp að nýju í samráði við skátahreyfinguna.1Árbæjarsafn. Væringjaskálinn. Sótt 21. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/2cab3bc0-b3c0-4826-85ec-239bb8bd1b6c; Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. ÁBS S93 19 1-2. Sótt 21. febrúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=L%C3%A6kjarbotnar&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IsOBQlMgUzkyIDE5IDEtMi5qcGciLCJwYWdlIjowfQ%3D%3D.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 21. febrúar, 2025
Heimildaskrá
- 1Árbæjarsafn. Væringjaskálinn. Sótt 21. febrúar 2025 af https://app.arbaejarsafn.is/hus/2cab3bc0-b3c0-4826-85ec-239bb8bd1b6c; Borgarsögusafn. Myndasafn. Mynd nr. ÁBS S93 19 1-2. Sótt 21. febrúar 2025 af https://borgarsogusafn.is/myndasafn?q=L%C3%A6kjarbotnar&h=eyJmaWxlbmFtZSI6IsOBQlMgUzkyIDE5IDEtMi5qcGciLCJwYWdlIjowfQ%3D%3D.
Deila færslu
Síðast uppfært 21. febrúar, 2025

