Bergvegur 12, Keflavík, Reykjanesbæ
Laugavegur 157, Reykjavík, á árunum 1975-1987. Ljósm.: Kristinn Guðmundsson. Sarpur: Menningarsögulegt gagnasafn. Mynd KG-200. Sótt 15. febrúar 2025 af https://sarpur.is/Adfang.aspx?AdfangID=1733017.
Laugavegur 157, Reykjavík, um 2005. Heimild: Helga Maureen Gylfadóttir og Guðný Gerður Gunnarsdóttir (2005). Húsakönnun. Hverfisgata - Laugavegur - Rauðarárstígur - Skúlagata, bls. 33. Reykjavík: Minjasafn Reykjavíkur. Skýrsla nr. 128.
Laugavegur 157 hífður á flutningabíl í mars 2022. Ljósm.: Grétar. Heimild: Viktor Örn Ásgeirsson (2022, 1. apríl). Sögufrægt hús flutt af Laugavegi til Keflavíkur. Visir.is. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.visir.is/g/20222242856d/sogu-fraegt-hus-flutt-af-lauga-vegi-til-kefla-vikur.
Bergvegur 12 í Keflavík, Reykjanesbæ, í maí 2022. Ljósm.: Margrét Eyjólfsdóttir. Sótt 15. febrúar 2025 af https://www.facebook.com/photo?fbid=10227635098727146&set=pcb.7536472679727325.
Saga:
Í maí 1919 var að ósk Gunnars Sigurðssonar (1888-1962) yfirdómslögmanns virt til brunabóta hús sem hann hafði látið byggja á lóð sinni við Laugaveg 113 í Reykjavík, sem síðar fékk númerið 157. Í virðingunni kemur m.a. fram að húsið hafi verið einlyft íbúðarhús með tveimur kvistum og risi, byggt af binding. Útveggir og þak voru klædd með járni. Milligólf var í neðra vitalagi og fyllt með mómold milli bita, í binding útveggja var tjörupappi. Niðri í húsinu voru 4 íbúðarherbergi, eldhús og gangur, allt þiljað. Strigi og pappír var á loftum, en pappi á veggjum, sem allt var málað. Á hæðinni voru 2 fastir skápar, tveir ofnar og ein eldavél. Uppi voru þrjú íbúðarherbergi, eldhús, gangur og 6 skápar, allt þiljað og málað. Þar var einn ofn og ein eldavél. Undir öllu húsinu var kjallari með steinsteyptu gólfi og timburgólf þar ofan á. Þar voru tvö íbúðarherbergi, eldhús og gangur, einn ofn og ein eldavél. Þar voru einnig tveir óþiljaðir geymsluklefar með malargólfi. Við vesturgafl hússins var inngönguskúr með kjallara. Þar voru tveir gangar. Grunnflötur hússins með bíslaginu var samtals um 58 fermetrar.1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 23-11-1917 til 13-11-1920. Aðfnr. 739. Brunav.nr. 1429. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/739-bok-23-11-1917-til-13-11-1920-adfnr-739.pdf.
Af manntölum verður ekki séð að Gunnar hafi búið í húsi sínu, en hann stundaði fasteignaviðskipti með lögfræðistörfum. Hann var alþingismaður Rangæinga tvö kjörtímabil og á árunum 1933 til 1961 gaf hann út Íslenska fyndni í 25 heftum.2Alþingi. Alþingismannatal. Gunnar Sigurðsson. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.althingi.is/altext/cv/is/cv/Gunnar_Sigur%C3%B0sson/211/?nfaerslunr=211.
Árið 1917 rataði húsið við Laugaveg 157 í fréttirnar því þáverandi íbúar hússins þurftu að flytja úr húsinu því í þar hreiðruðu svokallaðir rottumítlar um sig. Ráðast þurfti í gagngerar endurbætur og þrif á húsinu til að gera það íbúðarhæft að nýju.
Árið 2021 fékk þáverandi eigandi hússins heimild til að flytja það á lóðina við Bergveg 12 í Keflavík. Þar stendur húsið nú á nýjum kjallara.3Kristín Clausen (2017, 31. mars). Rottumítlar leggja undir sig íbúð við Laugaveg. Dagblaðið Vísir, 107. árg., 25. tbl., bls. 10; Viktor Örn Ásgeirsson (2022, 1. apríl). Sögufrægt hús flutt af Laugavegi til Keflavíkur. Visir.is. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.visir.is/g/20222242856d/sogu-fraegt-hus-flutt-af-lauga-vegi-til-kefla-vikur.
Höfundur: Guðlaug Vilbogadóttir.
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025
Heimildaskrá
- 1Borgarskjalasafn Reykjavíkur. Brunabótavirðingar. Bók 23-11-1917 til 13-11-1920. Aðfnr. 739. Brunav.nr. 1429. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.borgarskjalasafn.is/static/files/Midlun/Brunabotavirdingar/Brunavirdingar/739-bok-23-11-1917-til-13-11-1920-adfnr-739.pdf.
- 2Alþingi. Alþingismannatal. Gunnar Sigurðsson. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.althingi.is/altext/cv/is/cv/Gunnar_Sigur%C3%B0sson/211/?nfaerslunr=211.
- 3Kristín Clausen (2017, 31. mars). Rottumítlar leggja undir sig íbúð við Laugaveg. Dagblaðið Vísir, 107. árg., 25. tbl., bls. 10; Viktor Örn Ásgeirsson (2022, 1. apríl). Sögufrægt hús flutt af Laugavegi til Keflavíkur. Visir.is. Sótt 14. febrúar 2025 af https://www.visir.is/g/20222242856d/sogu-fraegt-hus-flutt-af-lauga-vegi-til-kefla-vikur.
Deila færslu
Síðast uppfært 14. ágúst, 2025




